Fálkinn


Fálkinn - 30.05.1936, Page 9

Fálkinn - 30.05.1936, Page 9
F A L K I N N 9 > l AÐALVITNI HAUPTMANNSMÁLSINS dr. Condon sjest hjer á myndinni. Það var hann sem afhenti lausnar gjaldið fyrir barn Lindberglis og á Vitnisburði hans var það einkum sem Hauptmann var dæmdur til dauða. DOLORES DEL RIO hin fræga ameríkanska kvikmynda- leikkona er nýkomin til Englands tii þess að leika þar í kvikmynd. Hjer sjest hún þegar hún er að koma til Englands. SPÖNSK „ELDDROTNING". Þessi senorita heitir Maria Luisa Belbis og er talin fegursta stúlkan i Alicante. Var hún kjörin „elddrotn- ing“ við svonefnda hátið þar í bæn- um. ABESSINSKUR HERMAÐUR sjest hjer á myndinni. Hefir hann brunnið í framan af kastblysum þeim, sem ítalir notuðu svo mjög á vígstöðvunum. ÓLYMPS-KYNDILLINN. Hjer sjest einn af Olympskyndlun- um, sem Krupsmiðjurnar hafa gert úr ryðlausu stáli handa boðlilaupurun um 3000, sem eiga að hlaupa með eldinn frá Olympos í Grikklandi til ieikjanna í Berlín. Þetta boðhlaup stendur yfir 11 daga og liggur leið þess um sjö lönd. POLA NEGRI, sem oft sást í kvikmyndahúsum á tímum þöglu kvikmyndanna, er nú farin að leika í talmyndum og þykir tokast ágætiega. FLþJGMAÐURINN MELROSE frá Ástralíu, sem nýlega flaug frá Englandi og heim til sín sjest lijer þegar hann er að leggja af stað í ferðina frá flugvellinum í Hendon. F.RNST VON HOHENBERG fursti, sonur austuríska hertogans og ríkiserfingjans Franz Ferdinands sem myrtur var í Serajevo 1914, hefir nýlega gifst enskri kapteinsdótt- ur, Marie Therese Wood að nafni. Sjást þau hjer á myndinni. I iNLITHGOW LÁVARÐUR er orðinn varakonungur á Indlandi el'tir Willingdon lávarð. Sjest hann hjer á myndinni ásamt konu sinni, á leið til Dehli. MARIA PRINSESSA AF SAVOYEN er dóttir italska krónprinsins. Hún sjest hjer vera að tína blóm í garðinum við sumarbústað krón- prinsins, Villa Rosebery við Neapel. fjármálaráðherra Breta, sem ýms- ir spá að verði eftirmaður Stanley Baldwin, sjest hjer í fríi á búgarði sínum í Skotlandi. KRISTIAN BORDING landbúnaðarráðlierra Dana varð ný- lega sextíu ára. Hann fæddist í Kragelund, lagði stund á búfræði og hjó síðan búi sínu frá árinu 1903 i Bögelund. Þingmaður hefir haun verið síðan 1920, og landbúnaðav- ráðherra 1924—26 og síðar í stjórn Slaunings síðan 1929.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.