Fálkinn - 30.05.1936, Blaðsíða 10
10
F Á L K I N N
Nr. 386. Adamson iðkar sjóböð.
Copyrigiit P. I. B. Box 6 Copenhagen
S k r í 11 u r.
— Já, lögregluþjónn góður. Mjer
fanst jeg verða að dubba svolítið upp
a Ijóskerið, úr }>ví að það stendur
beint fyrir utan húsið mitt.
Sjúklingurinn: — En hvað þjer
nuddið vel — hvar hafið þjer lœrt.
Nuddarnn: — Jeg er útlœrður
baJ<ari.
— Jeg held að það verði gott veð-
ur á morgun, kerli mín. Flugvjel-
arnar fljúga svo hátt.
Lukkan er óútreiknanleg.
í verkbanninu mikla í Danmörku
um daginn var orðinn tilfinnanleg-
ur skortur á eldspítum. ÞaS var al-
gengt aS sjá fleiri menn nota sömu
eldspítuna til þess að kveikja i vindl-
'uim eða vindlingnum.
— Hvernig tók forstjórinn tii-
mœlunum um, að toka snemma á
langardögum?
— Húrral Þarna veiddi jeg aðra
gedduna mína!
— Þá aðra. í dag?
— Nei, þá aðra síðan 1898.
— Nú kemur að mjer að fá að
sitja í garðinum.
Um daginn ljest karl nokkur í
SviþjóS. Allir hjeldu að hann væri
blásnauður, en svo var þó ekki.
Eftir dauða hans fundust 100.000 kr.
í seðlum og gulli grafiS í jörðu undir
kjallaragólfinu. Og í borðskúffu hans
fanst bankabók með 60.000 króna
innstæðu. Karlinn hafði ekki þorað
að láta alla peningana sína í banka.
Þú ræðnr
hvort þú trúir þvi...
MANNLEGUR PRJÓNAKODDI.
Einkennileg skemtun er það, sem
sveitafólkið í Böhmen iðkar og hefir
samkepni í á liverju ári. Þar er kept
um það hver geti stungið flestum
tituprjónum á sig á ákveðnum tíma
og er sigurvegaranum mikil virðing
sýnd. Árið 1928 varð sigaunahöfð-
inginn Bagro fremstur í samkepn-
inni. Stakk hann 3200 títuprjónum í
liandlegginn á sjer á 31 klukkustund.
Þessu meti hefir enginn farið fram
úr fyr eða siðar.
í Kanton í Kína er háð samkepni
um það, hver sje fljótastur að drepa
flugur. Heimsmetið i því hefir Kín-
verji sem heitir Ching hundafangari.
Hann náði í 21.000 flugur á fjórum
timum.
---o----
ABRAHAM VAIt EKKI GYÐINGUR.
Abraham var fæddur í Ur í Kaldeu
(Ur Kasdim) í Babyloníuríki og
þessvegna Babyloníumaður. Abra-
hain (upprunalega Abram) er al-
gengt Babyloníunafn en alls ekki
hebreskt.
En þó efast mætti um, að Abra-
ham væri Hebrei þá kennir öllum
saman um það, að orðið Gyðingur
hafi alls ekki verið til á dögum
Abrahams (2300 árum f. Kr.). Það
var ekki fyr en 18 öldum eftir dauða
Abrahams að orðið Gyðingur kem-
ur fram. Var það notað sem sam-
heiti fyrir þegna konungsins í Júdeu,
í sunnanverðu Landinu helga. Orðið
Gyðingur (Jahudi) kemur fyrst fyr-
ir í bibliunni í II. Konungabók XVI,
6, en hún mun skrifuð á C. öld f. Kr.
og er fyrst notað um einstakling i
Esterbók II, 5. Estersbók var ekki
rituð fyr en á 1. öld e. Kr. — það
er að segja um 2400 árum eftir að
Abraham var uppi.
---o----
Ábóti i klaustri einu í Hanuman i
Indlandi er þrjú ensk fet og 2 þuml-
ungar á hæð. En hárið á honum er
7 fet og 10y2 þumlungur á lengd.
----------------o----
TAPAÐI MILJÓN DOLLURUM Á
DAg í 130 DAGA SAMFLEYTT.
Sennilega hefir enginn einstakur
maður orðið fyrir jafn stórfeldu tapi
og J. Odgen Armour, sem tapaði um
150.000.000 dollurum á tveimur árufn.
Segist hann sjálfur hafa tapað miljón
dollurum á dag i 130 daga samfleytt.
„Jeg tapaði svo hratt, að jeg hjelt að
slikt væri ekki mögulegt" sagði hann.
Þegar liann var 38 ára erfði liann
einna stærsta arfinn í Bandaríkjun-
um og eitt mesta iðnaðarfyrirtæki
heimsins, einmitt þegar það stóð upp
á sitt besta. Faðir hans, sem lagði
grundvöllinn að þessum auðæfum,
var Philip Danforth Armour einn af
stærstu og duglegustu iðjuhöldunum
um miðbik Bandaríkjanna. Lagði
hann grundvöllinn að auðlegðs sinni
í lok borgarastyrjaldarinnar, en son-
ur hans misti auðinn eftir lok lieims-
styrjaldarinnar.
Armour yngri stjórnaði fyrirtækinu
í tuttugu ár, seldi allskonar nauð-
synjavörur og auður hans fór sívax-
andi. Á stríðsárunum seldi hann
bandamönnum afar mikið af vörum
og lánaði þeim fje. Árið 1919 var
umsetning hans 1.038.000.000 dollarar
og hreinn ágóði yfir 20 milj. doll.
Tveimur árum seinna var umsetn-
ingin ekki orðin nema 600.000.000
dollarar og Armour jós út fje til
þess að halda fyrirtækinu gangandi.
Við verðfallið í árslok 1922 tapaði
hann 90.000.000 dollara og önnur töp
bættust ofan á.
J. Odgen Armour dó í London 16.
ágúst 1927 og er fullyrt að áföll þau,
sem verslun hans varð fyrir, liafi
flýtt fyrir dauða hans.