Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1936, Side 3

Fálkinn - 20.06.1936, Side 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Villi. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjöthsgade 14. BlaðiS kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Aughjsingaverð: 20 aura millimeter. Herbertsprent prentaði. Skraddaraþankar. ■ Á Norðurlöndum er það víða sið- ur að tendra bál á stystu nótt árs- ins, eins og íslendingar gerðu til skamms tíma á Þrettándanum. Þrett- ándabrennurnar nutu sín vel i mið- vetrarmyrkrunum, þær voru eins og vitar, sem báru boð milli strjálla hýla. íslendingar eru svo norðarlega á hnettinum, að þeir þurfa ekki að kynda bál á Jónsmessunótt. Nóttin er svo björt, að bálin njóta sín ekki. íslenskur æskulýður þarf ekki bál til þess að safnast kringum og gleðjast á lengsta birtudegi ársins, þegar mið- nætursóliii hverfur ekki í sæ fyrir norðurlandi, hjá þeim sem færa sig ofurlítið upp í hlíöarnar, og gerir ekki nema að „depla augunum" á sunnanverðu landinu. Enginn hluti ársins er eins vel fallinn til þess að dyelja í skauti náttúrunnar eins og björtustu næt- urnar. Þegar góðviðri og lieiðrikja er samfara þeim sjer! sá náttúruna í almætti sínu, sem vakir en ekki sef- ur. Aldrei er tign náttúrunnar meiri en þ'egar kvöldroðinn og morgun- roðinn ren'na saman í eitt, með ótelj- andi litbrigðum og sifeldum breyt- ingum. Þeim sem eru svo hepnir að dvelja upp til lieiða og fjalla slíkar nætur, veitist mesti unaður sem nátt- úran hefir að bjóða, og sá sem ekki verður fyrir ríkum áhrifum af því sem hann upplifir slíka nótt er ekki vakandi maður heldur sofandi. Þar sameinast alt sem fagurt er. Það er líkara töfrum en raunveru, sem fyrir augun ber. Þar truflar ekk- ert hljóð hugann, en ilmurinn frá gróðri jarðarinnar leikur um vitin, hollari en nokkurl reykelsi, og eins blíður andvari. Og geislaspil hinnar lágu sólar er fegurra en nokkur önn- ur birta, sem mánnsandinn hefir upp- hugsað. Á slikri stundu finnur mánnveran betur en nokkurntima ella tengsl sin við náttúruna. Finnur að ekkert af öllum afrekum mannsandans er neina lijóm og skuggi hjá náttúrunni sjálfri. Þeir sem ungir eru eiga að nota sjer þessa samfundi við náttúruna. Ekkert er betra og ekkerl er hollara. Ekkert lyftir hug mannsins liærra. — Það ætti að verða föst regla allra, semvetlingi geta valdið að nota Jóns- messuna og björtustu nætur ársins til þess að komast þangað „sem víð- sýnið skín“. Ein slík birtunótt vegur upp þúsund nætur í danssal. greinarkorni. Auk fjölda guðfræði- legra rita hefir hann gefið þjóðinni liin merku kirkju- og kristnisögurit, bæði almenna kirkjusögu og ís- lenska. Hann ann sögufróðleik mjög og eigi síst ættarsögu og einstakl- inga og ber hið stórá rit hans um. Meistara Hálfdán þess vithi. „Islend- ingar í Danmörku“ er eitl rita lians — um íslendinga sem sest hafa að i Danmörku á síðari öldum og ættir þeirra þar. Þá þekkja margir, live nákunnugur biskupinn er sögu Reykjavíkur, sem hann þekkir betur en nokkur núlifandi maður. Dr. Jón er maður mjög listelskur og hefir frá áeskuárunum lagt stund á málaralist, sem hann þó hefir lagt á hilluna nú, sökum anna. Safn han-s af myndum úr Reykjavík er einstætt og margt af því eru frummyndir eftir sjálfan liann. Þá hefir hann einnig gert teikningar af öllum kirkjum landsins á vísitasíuferðum sínum. ------Það eru víst fáir menn, sem á sjötugsafmæli sinu geta litið yfir meira og betra dagsverk en dr. Jón. En starfið hefir ekki gert hann elli- móðan. Það hefir haldið honum ungum. Á morgun berast honum hvaðan- æva þakkir og góðar óskir og þlýjar. Á morgun fyllir sjöunda áratug- inn dr. Jón Helgason hiskup. Þeir, sem sjá hann, á götunni, ljettari og kvikari á fæti en margan unga manninn, og þeir sem tala við hann, glaðan og ungan i anda, eiga bágt með að trúa því, að hann eigi svo mörg ár að baki sjer, en það verð- ur ekki rengt, að hann er fæddur á Görðum á Álflanesi hinn 21. júni árið 1806, og svo geta menn sjálfir dregið frá. Ekki á liann hina sjötugu æsku sína þvi að þakka, að hann liafi hlíft sjer unx æfina. En liitt sannasl á honum, sem ýmsir vilja halda fram, að það sje einmitt viljaþrekið og starfið, sem haldi mönnum síungum, bæði andlega og líkamlega. Meirl alorku og iðjumann getur tæplega en dr. Jón biskup, enda sýna þar verk- in merkin — öll þau rit, sem hann hefir komist yfir að semja — fram- an af æfinni í hjáverkum frá tíma- freku kenslustarfi og síðustu ára- tugina ásamt biskupsembættinu. Alt frá því fyrsta, að dr. Jón lnskup tók að starfa hjer i Reykja- vík að afloknu háskólanámi i Kaup- man'nahöfn og prestsstörfum um slund í Danmörku, hefir það sann- ast að hann var enginn meðalmaður. Það var fremur dauft yfir kirkju- lifinu í landinu um það leyti sem hann kom hingað og gerðist dósent við prestaskólann, en hann sjálfur hrennandi af áhuga. Hann tók brátt að gefa út blað um kristindóni og kirkjumál, „Verði ljós“ og hjelt því úti i mörg ár, ásamt ýmsum áhuga- sönnun guðfræðingum, þ. á. m. Sig- urði P. Sivertsen prófessor. Jafn- framt þessu hjelt háiin uppi guðs- þjónustum í dómkirkjunni í fjölda ára, 'án nokkurs endurgjalds og þótti það nýmæli í þá daga. Það var nýr og hressandi blær yfir boðskap hins unga prestaskólakennara, hann vakti fólkið og það þyrptist að guðsþjón- ustum hans. , Þegar Hallgrímur Sveinsson bisk- up fjell frá og Þórhallur lieitinn Bjarnason varð eftirmaður hans tók Gullbrúðkaiip eiga næstkomndi föstudag, 26 >þ. m, Sigríður Sigurðardótiir og Lgður Árnason frú Hjallanesi, nú til heimil- is á Fálkagötu 2. dr. Jón við forstöðu Prestaskólans og gegndi lienni til ársins 1911 að Háskólinn var stofnaður; varð dr. Jón þá prófessor i guðfræðideild og fyrsti deildarforseti hennar. En við fráfall Þórlialls biskups varð dr. Jón eftirmaður hans og liefir nú gegnl biskúpseinbættinni í tvo ára- tugi. Öllúm landslýð er svo vel kunnugt með hve mikilli árvekni og dugnaði liánn hefir veitt kirkju íslands forstöðu, að það þarf eigi að rekja. Hann hefir t. d. vísiterað allar kirkjur íslands og mun eng- inn íslenskur biskup hafa gert það á undan honum, og hann hefir vígt fleiri kirkjur en nokkur biskup annar. Og á allan hátl hefir hann verið sívakandi í öllu því, sem horft getur ísl.enskri kristni til eflingar og trúarlífi þjóðarinnar til styrks. Það yrði oflangt mál að minnast ritstarfa dr. Jóns biskups í þessu Tliorvald Krabbe vitamálastjóri verður 60 ára á morgun. Dr. Jón Helgason bisknp sjðíugur.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.