Fálkinn - 20.06.1936, Side 14
14
F Á L K I N N
4000 stúlkur „hverfa'4 ár hvert f Lendon.
Hvít þrælasala í stórum stíl.
Ritstjóri að stórblaði einu í London
fjekk Lim daginn brjef frá Bernard
Merrivale, sein sagði frá því, að ung
stúlka innan fjölskyldu hans hefði
nýlega staðið fyrir utan leikhús þar
í borginni. Kom þar að ungur vel-
búinn maður og bauð henni með sjer
í leikhúsið. Hann sagðist liafa átt
von á vinkonu sinni, hún gæti ekki
komið, og nú hefði hann 2 aðgöngu-
miða. Stúlkan fór með honum inn
— og alt gekk vel.
En maðurinn skrifar ritstjóranum,
að hann hafi heyrt, að þetta sje mjög
alment í London, ungir menn tali við
ókunnar stúlkur fyrir utan leikhús-
in, bjóði þeim með sjer inn — og
síðan sjáist stúlkurnar aldrei meir.
Þær liverfi alveg.
Eftir að þetta brjef var birt í blað-
inu, hefir ýmislegt komið fram, sem
sýnir hve varkárar ungar stúlkur
mega til að vera i stórborg eins og
London. Því er lialdið fram að 4000
ungar stúlkur verði hvítum þræla
sölum að bráð í heimsborginni.
— Einu sinni bar það við, að móðir
með tveim dætrum sínum ungum
stóð fyrir framan leikhús og voru
mæðgurnar að skoða myndirnar í
sýningarglugganum. Kom þá til
þeirra miðaldra, velklædd kona,
sagðist hafa 2 aðgöngumiða og stakk
upp á því að þær allar færu saman
i leikhúsið. Hún fór svo með aðra
dótturina í fínasta sæti, en hinar
keyptu sæti ofar í leikhúsinu. Ákveð-
ið hafði verið að þær skyldu hittast
niðri í anddyrinu að sýningu lok-
inni. En siðan hefir enginn lieyrt
eða sjeð til stúlkunnar. Það eina sem
menn vita er að ókunna konan og
dóttirin óku burtu úr leikhúsinu í
miðjum þætti. En hvert? Lögreglan
gerði alt sem hún gat til þess að
hafa uppi á stúlkunni, en árangurs-
laust.
Annað sinn sátu 3 stúlkur á veil-
ingahúsi og töluðu hátt um það í
livaða leikhús þær ættu að fara um
kvöldið. Þær voru komnar til London
frá Liverpool til þess að skemta sjer.
Kom þá til þeirra roskin kona, sagð-
isl hafa 5 aðgöngumiða að leikhúsi,
en hún hefði þeirra ekki not, því
„frænkur mínar geta ekki komið með
mjer í kvöld“. Var svo ákveðið, að
þær skyldu allar hittast fyrir utan
leikhúsið seinna um kvöldið. Þegar
þangað kom, kom í Ijós, að 2 að-
göngumiðarnir voru i fyrstu röð, en
hinir ofar í leikhúsinu. Ókunna kon-
an settist í betri sætin með falleg-
ustu stúlkuna. Að leiknum loknum
voru þær horfnar — og enginn hefir
síðan sjeð stúlkuna.
Það er alvanalegt að þessir livítu
þrælasalar i slíkum tilfellum og hjer
liafa verið nefnd, gefi stúlkunum
súkkulaði, eða eitthvað annað sæl-
gæti, með einhverju deyfandi meðali
i. Þær verða veikar, sofna, og enginn
tekur til þess þó einhver velbúin
kona biðji fólk um aðstoð til þess
að koma veikri dóttur sinni út i bil.
En síðan sjást þær aldrei framar.
Það’ er áreiðanlega miklu meira
um hvíta þrælasölu í stórborgum
Norðurálfu en nokkurn grunar.
; i ...
EDEN HINN YNGRI. MIKLAS FORSETI
Nicholas Eden, sonur enska utan- Austurríkis á ekki sjö dagana sæla
ríkisráðherrans er sagður líkur föð- því að viðsjár eru miklar í landinu
ur sínum. Hjer sjest hann með móð- milli flokka Schussniggs kanslara og
ui sinni á leið til kirkju, en virðist Stalirembergs fursta. Hjer sjest for-
vera hálf óþægur við liana. sctinn á hersýningu í Wien.
Fjörutiu og tveir læknar, þar á
meðal ýmsir frægir sjerfræðingar
hafa árangurslaust reynt að lækna
Ameríkumanjiinn Robert Milton, sem
nú hefir hixtað stanslaust í fimm ár.
„Jeg hefi gert alt hugsanlegt til að
fá bata“, segir Milton, „og jeg liefi
reynt ýms „óbrigðul húsráð“ en þau
hafa ekkert stoðað. Konan mín hef-
ir reynt það gamla bragð að gera
mig hræddan og tekist það svo vel,
að jeg hefi oft verið nærri því dauð-
ur úr hræðslu, en hixtann liefi jeg
enn. Nýlega var mjer ráðlagt að
drekka tólf stór glös af ölkelduvatni.
Jeg gerði það, en lá i rúminu viku á
eftir — og hixtaði".
----x----
í Belgrad hefir komisL upp um
mann, að hann liefir haldið tengda-
móður sinni beinlínis í varðhaldi.
Hann hafði lokað hana inni i nokk-
urskonar járnbúri eins og villidýr.
Maðurinn var hræddur um að tengda-
móðurin mnndi skrifa erfðaskrá og
gefa einhverjum öðrum auðinn, sem
hún átti. En nú situr tengdasonurinn
sjálfur í búri, því hann var þegar
handtekinn.
FALLHLIFASTOKK
úr flugvjelum þykja með glæfraleg-
uslu íþróttum, sem fólk leggur fyrir
sig. Margar stúlkur iðka þó þetta.
Hjer sjest ung ensk stúlka, ungfrú
Madin vera að lenda með fallhlif
á öllum aldri og frá fjölmörgum
þjóðum háðu nýlega kappmót í
Margate á Englandi. Hjer sjest yngsti
þátttakandinn klóra sjer i höfðinu, í
vandræðum með næsta leikinn.
sina
FREDDY BARTHOLMEW
er einn af þektustu drengjum er í
kvikmyndum leika og muna hann
ýmsir sem David Copþerfield i sam-
nefndri mynd. Hjer sjest hann á-
samt frænku sinni sem hefir alið
hann upp.
ELISABET PRINSESSA
eldri dóttir hertogans af York og
erfingi ensku krúnunnar sjest hjer
á myndinni, sem er tekin; á afmælis-
(iegi hennar þegar hún varð tiu ára.
Þísgar fjármálaráðherrann enski til-
lcynti nýlega i þinginu að hækkaður
yrði tollur á þjóðdrykk Englendinga
var einn tehúseigandinn ekki seinn á
sjer að tilkynna hækkunina. Haiin
var búínn að því áður en ráðherr-
ann liafði lokið máli sínu.
VATNAORMURINN I LOCH NESS
sem mikið var talað um hjer á ár-
unuiij, er nú farinn að láta á sjer
bæra, ef trúa má sögusögn þriggja
stúdenta frá Glasgow, sem þykjast
liafa sjeð hann í vor. Myndin er frá
Loch Ness.