Fálkinn


Fálkinn - 12.09.1936, Blaðsíða 14

Fálkinn - 12.09.1936, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Trúarhreyfingin „Christian Science" er upprunnin í Ameríku og höfundur henn- ar er Mary Baker Eddy, sem dó nær ní- ræðu áriS 1910. Frú Baker Eddy taldi sig hafa læknast af þungum sjúkdómi og þrautuni meö því einu, aö treysta mildi guös. Gaf hún út bók um þessa reynslu sína árið 1875, og hefir hún komiö út í mörg hundruð eintökum á ensku og ver- ið þýdd á fjölda mála. En árið eftir, 1870, stofnaði hún „fjelagið fyrir kristileg vís- indi“ og telst hreyfingin þvi 60 ára á þessu ári. Árið 1879 eignaðist þessi fjelagsskapur fyrstu kirkju sína í Boston, en þar hefir jafnan verið aðalstöð fjelagsins. Er það kenning þessara safnaða, að andlegt og líkamlegt höl sje ímyhdun og eigi upp- tök sín í liuga mannsins sjálfs, og sje þetta í samræmi við algæsku guðs. Þegar mennirnir læri að skilja þetta þá hverfi þeim alt böl af sjálfu sjer. Mennirnir geti með þjálfun hugarfars síns losnað við hæði likamlegt og andlegt andstreymi. Þessi kenning liefir náð mikilli útbreiðslu vestan bafs og talsverðri í Evrópu. Gefur fjelagið út ýms rit til þess að kynna skoðanir sínar, en þó hefir það mestan stuðning af hinu ágæta stórblaði sínu, „Christian Science Monitor", sem gefið er út í Boston. Flytur það almennar frjettir og greinar, en sneiðir hjá því, að birta frjettir af glæpum allskonar og því um líku, sem taka mikið og áberandi rúm i stórblöðum Bandaríkjanna. Hinn 8. júlí í sumar var haldinn árs- fundur „Móðurkirkjunnar", sem Christian Science nefnir svo, í Boston. Þar voru m. a. friðarmálin tii umræðu og samþykt ákvörðun um, að söfnuðirnir beitti sjer fyrir alheimsfriði. Síðasti forseti hreyf- ingarinnar var dr. Frank Colby, en nú var kosin forseti frú Elisabeth Cadwell Tomlinsson. Er hún útskrifuð úr presta- skóla biskupakirkjunnar. Telur hún sig hafa fengið lækningu fyrir iðkun kenn- inga hreyfingarinnar. — Á síðasta ári bættust 2751 kirkja og 55 háskólafjelag í kirkjuna, þar á meðal söfnuður innfæddra manna á Filippseyjum. En ársþingið sóttu um 6000 fulltrúar víðsvegar að. Fjárhagur hreyfingarinnar er með mikl- um blóma. Á það stórkostlegar húseignir í Boslon en þær eru alveg skuldlausar. Og fjelagið ver þó miklu fje til líknar- starfa á hverju ári, ekki síst þegar stór- feld tjón verða, eins og t. d. af fellibyln- um í Florid'a og jarðskjálftunum í Mon- tana. Blaðið „Christian Science Monitor“ starfar í samvinnu við 2000 frjettablöð og 300 útvarpsstöðvar, sem flytja greinar og erindi uin hreyfinguna. Um 150.000 grein- ar voru birtar í blöðum þessum árið sem leið og í útvarpinu 6000 erindi trúarlegs efnis og um 60.000 greinar um starfsem- ina. Sjerstök fyrirlestranefnd starfar í fje- laginu og sagði formaður hennar, miss Margaret M. Glenn frá úndraverðum lækningum, sem orðið hefðu á mörgum fyrirlestrunum. Á árinu voru fluttir 3111 fyrirlestrar um „Christian Science", fyrir rúmar þrjár miljónir áheyenda. Flestir þeirra voru haldnir í Norður-Ameríku, eða 2669, en 225 í Bretlandi og írlandi en 104 i öðrum löndum Evrópu. Fyrir- lestrar voru og haldnir í Austur-Asiu, Indlandi, Afríku, Ástralíu og austur á Kyrrahafseyjum. Hjer hirtast nokkrar myndir af bygg- ingum fjelagsins i Boston. Frá aðalstöðvum „Christian Science“. Loftmynd af aðalstöðvum Christian Science í Boston. Mass. Úr ,,Móðtirkirkjunni“ í Iioston. Heilsuhæli Christian Science í Brookline, Mass. Hið nýja systurskip „Queen Mary“, sem Bretar ætla að fara að smíða, á að verða 2000 smálestum stærra en „Drotningin“. Kostnaðurinn er á- ætlaður 5Vj miljón sterlingspund og er talið að skipið verði fullgert á 15 mánuðum. Hinn 26. september eigast þeir Max Schmeling og Braddock við um heimsmeistaratignina í hnefaleik. Bú- ist er við um 140.000 áhorfendum að því ati, og veðmálin eru fyrir löngu byrjuð um hver sigurinn beri úr býtum. Hollenska flugfjelagið K. L. M. hef- ir nýlega gefið út skýrslu um loft- siglingar sínar til Austur-Indía fyrra missiri þessa árs og gerir saman- burð á sama tíma í fyrra. Hafa far- þegaflutingarnnir aukist um 129% og vöruflutningar og póstur um sama. Stærsla vínáma i heimi er áman fræga í Heidelberg. Hún tekur meira en 185.000 lítra. En sú næststærsta er áma á landsetri Esterhazy greifa við Bas i Ungverjalandi. Tekur hún rúma 96.000 lítra. Heidelberg-áman var smíðuð 1751 en sú ungverska 1802. —x------- I Dumont í Minnesotafylki eignað- ist kona ein, frú Schmitz að nafni strák, ekki óefnilegan. Var hann 63,7 sentimetra á hæð er hanii fæddisl, en meðalhæð nýfæddra aarna er 51 sm. og mjög stór þykja börn er þau ná 56—7 sm. nýfædd. Og svo var drengurinn 29 merkur á þyngd en meðalþyngd nýfæddra barna er um 14 merkur. Hæð drengsins svaraði til meðalhæðar 3—4 mánaða barns og þyngdin til missirisgamals barns. Þrjár hjúkrunarkonur og tveir lækh- ar voru viðstödd fæðinguna. Er þetta 16. barn móðurinnar. Fyrir tæpu hálfu öðru ári eignaðist lnin tvíbúra, sem vógu til samans nær 40 merkur! ----x---- Ung hjón, Vivian og George Wilde ‘ leituðu nýlega skilnaðar í London eftir fárra daga hjónaband. Vivian elskaði Georg af öllu hjarta, en heimtaði engu að siður af honum, að í hver skifti sem hann ætlaði að kyssa hana yrði hann að skola munn- inn á sjer vandlega áður. Hún liafði sem sje lesið mikið um bakteríur og að með hverjum kossi gætu borist milli lijóna miljónir af þessum hættu- lega óþverra. Georg gat ekki sætt sig við þessa kröfu og kvaðst ekki taka í mál, að þurfa að fara afsíðis og skola á sjer munninn, í Iivert skifti sem hann langaði i koss. Og dómar- inn fjelst á málstað hans og veitti skilnaðinn. Nú er að vita hvort Vivi- an nær í nokkurn manh, seni vill verða við hreinlætiskröfum hennar. ----x---- Kringum Austria-gosbrunninn i Wien eru fjórar eirmyndir, sem hráðlega verða teknar af stöllunum til lireinsunar og viðgerðar. Gefst þá reynsla um, hvort Havanna-vindlar geta haldist óskemdir í 90 ár. Mynd- irnar eru sem sje fullar af Havanna- vindlum að innan og liggur þessi saga til þess: — Það var myndhöggv- arinn Schwanthalar sem gerði mynd- irnar og voru þær steyptar í Mtin- chen. Myndhöggvarinn var mikill reykingamáður og reykti eintóma Havanna-vindla. Þeir voru tollfrjáls- ir í Þýskalandi en hátollaðir i Ausl- urríki, svo að myndhöggvarinri sætli lagi og keypti kynstrin öll af vindl- mn og tróð þeim innan i myndirn- ar til þess að sleppa við tollinn. En nú bar svo við að á leiðinni til Wien veiktist myndhöggvarinn af kvefi og lá lengi rúmfastur. Þegar hann kom loks lil Wien var húið að múra allar myndirnar niður á stallana, með vindlunuin í. Og þar hafa þeir verið síðan. En myndliöggvarinn tregaði missi allra ágætu vindlanna sinna til dauðadags. ----x---- Tvö hundruð konur úr kvenna- klúbh einum í San Francisco liafa keypt eyjuna Panaua, nálægt Ha- waj. Þar ætla þær sjer að koma upp kvennanýlendu og banna öllum karl- mörinum að Tstíga þar fæti á land. Jafnvel nánustu ættingjar kvennanna mega ekki heimsækja þær.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.