Fálkinn - 12.09.1936, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
Dragnætur — Dragnótatóg
og alt er tilheyrir þessum veiðiskap
ávalt FYRIRLIGGJANDI.
Veiðarfæraversl. „GEVSIR'
Eldisdýr — Undaneldisdýr
af norsku silfurrefakyni til sölu. Ættartölu-bókfærð og verð-
launuð kvendýr og karldýr. Biðjið um. tilboð. Skinn móttekin
til sölu. Nánari upplýsingar:
Kádhusgt. 4. Sími
Norsk Pelslager A/S
(No-Pe-La A|S)
26285. Símnefni „Nopela“
— Oslo, Norge.
MARLENE DIETRICH í LONDON.
Marlene Dietrich er nýkomin til
London til þess að leika þar í enskri
mynd. Hjer sjest hún með mótleik-
ara sínum, Robert Donat.
I’RESTÚR, SVERTINGI OG HER-
MAÐIJR í BOÐI VIÐ FORSETA-
KOSNINGAIt f BANDARÍKJUNUM.
Undirbúningur undir næstu for-
setakosningar í U. S. A., sem fram
eiga að fara 3. nóvember er fynr
löngu byrjaður. Þó að það sjeu
flokkar samveldisihanna og sjerveld-
ismanna, sem berjast um völdin, vek-
ur það athygli hve margir smáflokk-
ar hafa menn i boði við kosningarn-
ar. Og þó að engin líkindi sjeu til,
að flokkar þessir fái verulegt at-
kvæðamagn geta þeir samt haft tals-
verð áhrif á úrslit stóru flokkanna,
með því að draga atkvæði frá öðr-
um þeirra, þar sent þeir eru jafnir.
Við síðustu forsetakosningar fengu
smáflokkarnir alls 1.069.000 atkvæði
af 39.816.000 alls.
Forsetaefni jafnaðarmanna er Nor-
man Thomas, aldraður maður og
hærugrár og inikill mælskumaður.
Ilann var um skeið einn vinsælasti
presturinn í New York, en snerist
til jafnaðarmenskunnar á ófriðarár-
unum, „þegar hann gat ekki fengið
samræmi í bíblíu sína og kröfurnar
um, að brýna fyrir fólki að fara í
stríðið“. Varamaður hans til forseta-
tignarinnar er bóndi, sem heitir Ge-
orge Nelson, frá Wisconsin.
Kommúnistar hafa i kjöri aðalrit-
HERTOGAHJÓNIN AF YORK
gerðu, sjer nýlega ferð ofan í kola-
námu eina i Durham. Myndin sýnir
hertogafrúna í búningnum, sem hún
var í ofan í námunni.
ara sinn, Earl Browder. Hann er
sonur landnema og byrjaði starl'-
semi sína sem sendisveinn en varð
síðar bóklialdari og þá ritstjóri.
Hannn var fangelsaður á stríðsárun-
um fyrir að tala og rita á móti styrj-
öldinni. En varamaður hans heitir
James W. Ford en er ekkert skyldur
bíla-Ford, því að hann er svertingi.
Hann er foringi kommúnista meðal
svertingja, í svertingjahverfinu Har-
lem í New York.
Bannmenn í Bandaríkjunum lijóða
fram sjerstakt forsetaefni og hyggj-
ast hefja nýja baráttu fyrir banninu
nú við forsetakosningarnar. Forseta-
efni þeirra er dr. David Leigli Col-
vin; var liann kapteinn í liði Banda-
ríkjantanna í heimsstyrjöldinni en
hefir helgað það sem eftir er æf-
innar til þess að berjast gegn áfeng-
inu. Varaforsetaefni sama flokks er
Alvin York, undirforingi, sem Focb
marskálkur sæmdi heiðursmerki í
ófriðnum fyrir frábæra hreysli.
Slefnuskrá þessa flokks snýst aðal-
lega um hættu áfengis og vill stofna
nýja þjóðskipun, er i fyrsta lagi snúi
sjer að því að frelsa „þjóðfjelag, sem
gagnsýrt sje af áfenginu, frá böli
þess“. En stóru flokkarnir hafa eins
og kunnugt er ekki áfengismálin
framar á stefnuskrá sinni.
1MAZAWATTEE1
1 TEA I
1 Teið, sem aldrei breytir bragði. g
Heildsölubirgðir:
H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT
Góðar bækur:
sem þurfa að vera í eigu hvers bókamanns:
HANNES BISKUP FINNSSON
MEISTARI HALFDÁN
ÍSLENZKIR ÞJÓÐHÆTTIR
RIT JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR
SILJA (skáldsaga frá Finnlandi)
BRÆÐURNIR í GRASHAGA
GRAND HÓTEL
RAUÐSKINNA
(af henni eru úí komin 3 hefti og fylgir
þriðja heftinu registur yfir öll heftin.
Fæst líka í góðu bandi).
RIT UM JARÐELDA Á ÍSLANDI
$
FÁST 1 BÓKAVERSLUNUM.
Umbúðapappír,
hvítan og bleikan, 20,40 og 57 cm., fáum við
í þessari viku.
Höfiim fyrirliggjandi TOILETTRAPPÍR.
A. J. BERTELSEN & CO. H.f.
HAFNARSTRÆTI 11. SÍMI 3834.