Fálkinn


Fálkinn - 26.09.1936, Blaðsíða 4

Fálkinn - 26.09.1936, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N GROF „POURQUOI PAS?“ íslensk veSrátta hefir löngum ver- ið dutlungafull. Ef það á nokkurs- staðar lieima máltækið um, „að dag skal að kveldi lofa þá á það heima lijer á landi. „Á skammri stund skipast veður i lofti“. Þetta á ekki síst við um útsynn- iuginn. Hann er allra átta hættuleg- astur, gerir sjaldan boð á undan sjer en kemur eins og þjófur á nóttu. Það er hann, sem hefir valdið flest- um og hörmulegustu slysunum hjer við Faxaflóa og Reykjanes fyr og síðár. Það var hann, sem rjeði ör- lögum „Pourquoi Pas?“ miðvikudags- nóttina 16. þ. m. Skipið lagði úr höfn í Reykjavík í mesta blíðskapar- veðri um kl. 1 á þriðjudag. Mynd sú, sem birtist hjer og áreiðanlega er siðasta myndin, sem til er af skipinu, var tekin hjer úti í flóa, skamt fyrir vestan Gróttutanga kl. 3 siðdegis þann dag. Eins og hún ber með sjer, var þá engin alda á hafinu og reykstaðan sýnir, að vind- ur hefir enginn verið, eða ekki meiri en svo, að reykurinn safnast í hnyk- il upp af skipinu. Sandarnir í Skaftafellssýslu eru alræmdasti strandstaðurinn á ís- landi. Og mjög venjuleg ástæða til strandsins er sú, að skipsmennirnir sjá ekki landið. Þar liggur marflat- ur sandurinn fram að sjó en bak við sandana gnæfa hin himinháu undii • fjöll Vatnajökuls. Þessa sanda hafa útlendingar skírt „kirkjugarð skip- anna“. Þar standa árum og áratug- um saman skip uppi í fjörunni, flest að vísu grafin i sandinn, en að jafn- aði óbrotin. Þar komast að jafnaði skipsmenn í land, — flest manntjón sem þar verða, orsakast af því, að skipverjar eru of bráðlátir í að yfir- gefa skipið, fara út í bátana og far- ast i brimgarðinum. En þeir, sem ekki fara úr skipinu geta alla jafna gengið þurruin fótum í land. Hörm- ungar þeirra taka að jafnaði við, eftir að þeir hafa fengið fótfestuna á söndunum. Þar taka við óbygðir og ófær vötn og hefir hvort tveggja orðið mörgum strandmannninum að’ bana. En í sjálfum Faxaflóa, svo að segja við höfuðstaðinn sjálfan, gapir ann- að gin Ægis, miklu ferlegra en aliir sandar Suðurlandsundirlendisins. Það er ströndin undan Mýrunum og sunnanverðu Sæfellsnesi. Þau eru orðin mörg, ströndin þar, og sum svo, að af þeim hefir enginn haft frjettir að segja. Við síðasta atburð- inn frá þessum slóðum, var það einn maður af fjörutiu, sem gat sagt frá afdrifum fjelaga sinna. Stundum hef- ir það verið enginn. Það er ströndin — og útsynningurinn, sem hafa sjeð fyrir því. Hversvegna eru Mýrarnar svo mik ill hættustaður, sem raun ber vitni? Þeir sem ekki hafa stundað sjó- mensku frá einhverri útvegsstöðinni við Faxaflóa spyrja svo. En sjó- mennirnir í Reykjavík, á Akranesi og líka úr suður-verstöðvunum þurfa ekki að spyrja, því að þeir vita. — Suðvestur frá insta hluta Snæfells- ness eða réttara sagt út af Mýrun- um ganga klettahryggir langt i sjó fram. Úr flugvjel sjest vel móta fyr- ir þeim, niðri á sjávarbotninum en af sjó sjást aðeins skerin, stór og smá og verður ekki greint á lands- uppdrætti, að þau liggja í ákveðna stefnu. Þessar stefnur eru i beinu framhaldi af hryggjum þeim, sem sjást á Mýrunum. — Allur þessi skerjasjór hefir eigi verið mældur. Á sjókortunum af Borgarfirði er það aðeins renna inneftir miðjum firð- inum, sem mæld hefir verið: hin venjulega siglingaleið í Borgarnes. En vestan Borgarfjarðarmynnis nær mælingin ekki lengra en upp að Grænliólma og Þormóðsskeri, sem eru eins og útverðir i skerjaklasan- um út af Álptanesi og Straumfirði, en hann nær áfram norður með Mýr- unum og alla leið fyrir Löngufjörur vestur með Snæfellsnesi, alt vestur fyrir Skóganes. Þar strjálast skerin nokkuð. Þegar skip eru á ferð hjer utar- lega i flóanum, norður af Garð- skaga, og skyndilega rýkur á suð- vestan, er hættan af nefndum skeri- um mikil þó að í fljótu bragði virð- ist þau allfjarri. Sjómenn einir þekkja það, hve örðugt er um stjórn á skipum í fárviðri, þó eigi sje viö að eiga nema storminn. En hjer bæt- ist það við, að jafnaði, að afar sterk- ur straumur myndast einmitt upp að hættuslóðunum. Ber því skipin óð- ar en nokkurn grunar inn á hættu- svæðið. Kunnugir menn hafa að jafn aði þann sið, að reyna að komast sem lengst til hafs, eða leita hljes norðan undir Reykjanesi. Þeir telja það stórhættulegt, að hleypa undan veðrinu og freista að ná höfn í Reykjavik, einmitt vegna þess, hve mikil líkindi sjeu til þess, að skip- in beri upp að Mýrunum. Um „Pour- qoui Pas?“ er það nokkurnveginn víst, að skipstjórinn hefir setlað sjer að komast undan veðrinu til Reykja- víkur. Allir vita um endalok þeirrar farar. Skal eigi farið út í þau atriði hjer. Hinsvegar mun mörgum þykja fróðleikur að því, að rifjað sje upp í tilefni af þvi sorglega slysi, sem varð 16. þ. m. ýmislegt um fyrri skipströnd, sem orðið hafa á líkuin slóðum og í líkum veðrum. Heim- ildir um þetta hefir blaðið aðallega úr ritum þeim, sem vitnað er til lijer á eftir. En áður en skýrt verður frá hinum gömlu slysum viljum vjer birta örstult viðtal við einn af hin- um reyndu skipstjórum, sem urn langan aldur hefir liaft kynni af sjónum í Faxaflóa og aldist upp vestra, að kalla í miðju mesta hættu- svæði flóans. Er það Þorsteinn Þor- steinsson í Þórshamri, formaður Slysavarnafjelags islands. — Jeg fór svo ungur af Mýrunum, að jeg þekti svo sem ekkert til þar þá, segir Þorsteinn. — En tólf ára gamall fjekk i'-" að fara í kaupstað- arferð, á fjögra manna fari til Borg- arness vestan úr Skutulsey, og þrett- án ára fór jeg suður á Akranes til róðra. Það var fyrir sumarmálin. Og mig undraði stórum, hve þessir gömlu og góðu forinenn af Mýrun- um, eins og Sigurður Pálsson, Jón Brandsson og faðir minn, og margir fleiri gátu komist leiðar sinnar milli allra þeirra ótal skerja, sem voru þarna undan landi — alt eftir mið- um, sem þeir urðu að leggja á minn- ið. Það er eigi lítið minnisverk, að muna t. d. alla leiðina vestan frá Ökrum, um óslitinn skerjagarð suður undir miðjan Borgarfjörð. Þorsteinn tekur fram uppdrátl af sjónum suður ,af Mýrunum og segir : — Ef þjer lítið á kortið hjerna þá sjáið þjer ekki tugi heldur hundruð af skerjum og eyjum á þessari leið. Jeg þekki engan stað eða svæði kringum alt ísland, sem er ægilegri en þessi hluti Faxaflóans í algleym- ings úrsynningi. Þar fylgist, má jeg segja, undir þeim kringumstæðum alt ilt að: hið ægilega liafrót, þar sem öldurnar koma óslitnar að úr mörg þúsund mílna fjarlægð — alla lfeið suðvestan frá Amerílui — án

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.