Fálkinn


Fálkinn - 28.11.1936, Qupperneq 5

Fálkinn - 28.11.1936, Qupperneq 5
F Á L K I N N 5 er til fólk, sem dvalið liefir hjer árum samaii og aldrei kom- ið veslur að Gróttu og aldrei komið i Kringlumýrina, aldrei komið út í Viðey eða fram á Álftanes. „Jeg get altaf gert það“, segir fókið, allveg eins og stúdentinn, sem var sex ár í Kaupmannahöfn og kom aldrei í Tlmrvaldssenssafnið eða kon- unglega leikhúsið. Þó undarlegt megi virðast leggja höfuðstaðarhúar meiri áherslu á að kynna sjer hinn viðari hring, enda eru þar hlá fjöll til að sjá. Ferðir um liinn ytri hring hafa aukist feiknin öll á síðari árum og ber þar einkum að nefna Hengilinn, sem nú er fótum troðinn af fjallsæknu fólki hæði sumar og vetur. Það þykir naumast sæmi- legt ungu fólki að hafa ekki gengið á Hengil, enda hefir hann margt að hjóða, einkum þó hverina miklu og útsýnið. En það mun eigi ofmælt, að þó að maður notaði hvern ein- asta veðurbjartan dag mörg sumur í röð, þá mundi ekki af því veita ef maðitr ætti að gela sagt sig sæmilega kunnugan innan landnáms Ingólfs. Árhók- in nýja telur um fjörutíu mis- munándi leiðir, auk ýmsra út- úrkróka á staði sem vert er að skoða. Og sumar þessar leiðir eru svo langar, að ekki veitir af tveimur dögum lil að fara þær fram og aftur, þó að hif- reið sje notuð svo langt sem vegir ná. Hafið þið komið að Reykja- nesvita og sjeð eiminn leggja úr jörðinni víðsvegar, leirhver- inn Gunnu öskra eins og naut í flagi, brimið sarga við móhergs- hamrana og öldima hyltast um í klettalivelfingunum, skoðað kísil-námurnar og rústirnar af gamla vitanum hrunda, sem sjórinn er að jeta í sig og geng- ið svo upp í nýja vitann og sjeð yfir „tunglslandslagið“ í ná- grenninu, alþakið eldvörpum og gjám? Hafið þið sjeð brim- ið í Grindavík, skipin sem Ægir hefir skolað á þurt, hafið þið sjeð „festina“ i Festarfjalli, hin- ar fáránlegu myndir, sem vind- urinn hefir leikið sjer að skafa i Móhálsana. Eða undrin í Krísuvík, sjóðandi og vellandi hveri og hláslursop brenni- steinsgufunnar neðan úr iðrum jarðar, hrennisteinslögin og leir- lögin, græn, rauð, gul og hlá, gerð af meistarahön,dum“ eins og sjálfur regnboginn. Og Nýja- hver austur á melnum, sísjóð- andi sinn þykka leirgraut, svo gufustrókurinn slendur upp úr pottinum, hærri en nokkur hygging á íslandi. Og Kleifar- vatn kynjafulla, sem hækkar og lækkar af einhverjum orsökum, frem engum hefir tekist að finna. Hafið þið sjeð útsýnið af Grindaskörðum, Bláfjöllum og Vifilfelli, sjeð „alt landið opið, bæði til austurs og vesturs. Gengið á Stóra-Meitil, Geitafell og Skálafell, eða klifrað ísdröngl ana í Raufarhólslielli og farið hann inn í Botn. Skoðað liraun- ið sem hrann Kristnitökuárið, drukkið úr ölkeldunum í Hengl- inum og liorft yfir Þingvalla- vatn ofan af Skeggja? Eða far- ið um Grafningsháls og gengið á Ingólfsfjall, gqngið; með frarn Soginu frá Álftavatni og upp yfir Dráttarhlið, farið vestan vatnsins um Nes og Ilagavík um Jórukleyf. Gengið Dyraveg? Hversu ótæmandi verkefni er það ekki að kynnasl Esju til hlítar, koma í hina mörgu og stórhrikalegu dali hennar og ganga á fjöllin norðan hennar. Og hversu margir liafa komið á Kjölinn, nema þá helst rjúpna- skytturnar. Það mætti lengi telja. En í Ár- bókinni nýju er sagt frá öllum þessum stöðum, hæði landa- fræðilega og sögulega. Nöfn þeirra Ólafs Lárussonar pró- fessors og dr. Bjarna Sæmunds- sonar er trygging fyrir því, að vel sje það vandað, sem þeir hafa lagt til bókarinnar, en það eru tveir aðalkaflarnir. Annar er um suðurnesin, frá Hafnar- firði, um Reykjanes, austur í Selvog og þaðan til baka Grinda skarðaleið í Hafnarfjörð og skrifar dr. Bjarni þann kaflann, en hann er fæddur og uppalinn i Grindavík og kunnugur suð- urnesjunum að fornu og nýju. En Ólafur Lárusson skrifar um nágrenni Reykjavíkur austur að Reykjanesfjallgarði og það- an með sýslumörkum vestur yf- ir Mosfellsheiði og alla leið í Hvalfjarðarbotn. Um höfuðslað- inn sjálfan skrifar Magnús Jóns- son ])rófessor og er þar margs- konar fróðleikur samankominn, sem menn eiga ekki kost á ann- aisstaðar. Loks skrifa þeir Steinþór Steinþórsson magister og Skúli Skúlason ritstjóri um austurhluta landnáms Ingólfs, austan þeirra takmarka sem úð- ur greinir og að Ölfusá og Sogi. í hókinni eru rúmlega fimtíu myndir, sumar stórar og allar vel gerðar, af landi því, sem bókin ræðir um og merkum um stöðum. Auk þess eru tveir uppdrættir í hókinni, gerðir af „Geodætisk Institut“. Ferðafjelagið hefir unnið þarft verk með útgáfu þessarar hók- ar, sem vonandi verður til þess að auka mjög gönguferðir um nærlendi höfuðstaðarins og kynna fólki það. Eins og að undanförnu verður bók þéssi ekki seld í lausasölu. Hana fá aðeins meðlimir fjelagsins. En það er hægurinn hjá að gerast meðlimur, árgjaldið er aðeins fimm krónur,, en bókin ein mundi tæplega verða seld fyrir svo lágt verð á venjulegum bókamarkaði, því að útgáfan er vönduð að frágangi og kostnað- arsöm. Hinsvegar mun fjelagið vænta þess að eignast marga nýja meðlimi vegna þessarar bókar. Allir Reykvíkingar, sem ekki eru seslir í helgan stein og hættir að hugjsa lengra en upp að Öskjuhlið þurfa að' lesa hana. Myndirnar, sem birtast, eru allar úr bókinni. MYNDIRNAR: Að ofan: Hellisgerði i Hafnar- firði. Að neðan t. v. Leirhverinn Giuina, á Reykjanesi, og t. h. Festar- fjall við Grindavík. *fi Alll ineð islenskum skrpum1 «f«

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.