Fálkinn


Fálkinn - 22.05.1937, Page 4

Fálkinn - 22.05.1937, Page 4
4 F Á L K I N N KREPPA í gamla daga söfnuðu menn pen- ingum í kistuhandraða og sokkboli, bæði gullii og silfri. Seðlar voru ekki til og peningastofnanir voru ekki til að vaxta jjeningana i. Eignin í kistuhandraðanum var ó- arðbær, en hún var á vísum stað og liafði örugt gildi hvernig sem araði. En þeir sem vildu ná í arð- bærar eignir fremur en peninga, keyptu jarðir og fengu smjer og kindur í leigu af þeim. Og það urðu ríkustu mennirnir. Enn eru til menn, sem fara að dæmi maurapúkanna, sem söfnuðu í handraðann. Það eru furstarnir í Indlandi. Þeir eru einu mennirnir, sem leggja sig eftir óarðbærum eign- um i stórum stíl. Þeir safna gulli og giinsteinum. Eign þeirra er viss, en hún er óarðbær. Nizam af Hijderabad. Miljónamæringarnir i Evrópu og Ameríku hafa hinsvegar lagt sig eftir arðberandi eignum og grætt á þeim. Þeir hafa stofnað fyrirtæki, ýmist einir, eða lagt fram fje i hlutafjelög. Eignir þeirra eru verð- brjef, sem eru ávísun á ýmiskonar atvinnufyrirtæki eða náttúrugæði. En þegar viðskiftarásin truflast eru þessar eignir í hættu. Skráning á kauphöllinni getur gert þann öreiga í dag, sem var miljónamæringur í gær. Þegar heimskreppur koma, eins og verið hefir undanfarin sjö ár, eiga miljónamæringarnir ekki sjö dagana sæla. Indversku furstunum getur að vísu staðið á sama um kreppurnar, en miljónamæringarnir 1 Evrópu og Ameríku hrynja eins og flugur. Framleiðsla ]ieirra fellur í verði eða verður ónýt, en skattarnir þyngjast og vaxa í kreppunum, svo að kúfurinn er fljótur að fara af auðæfunum. Þegar síðasta lieimskreppa hófst i Ameríku 1929 voru taldir þar 43 þúsund manns, sem voru mil- jónamæringar í dollurum. Eftir fjög- ur ár voru þeir ekki nema 19 þús- und og síðan hefir þeim fækkað meira. í Englandi voru fyrir krepp- una 543 sein áttu miljón sterlings- pund eða meira. Fjórum árum sið- ai voru þeir ekki nema 149. í Frakkiandi var fækkunin minst, enda var þar tiltölulega fæst af miljónamæringum, þó mikið sje þar af efnamönnum. En nefna má að einn frægasti miljónamæringur Frakklands, Citroen bilakongur, varð gjaldþrota í kreppunni. brjefin, sem í byrjun voru ekki nema 41.500 dollarar voru kominn upp i 75 miljón dollara, þegar Edsel Ford keypti þau. Ford lætur ekki af hendi einn eyri nema hann komx fyrirtækjum hans að notum á einn eða annan hátt, en telur sig samt velgerðarmann mannkynsins — með selja því bíla fyrir lítið verð! Þessir þrír menn eru furstar oli- unnar, stálsins og bilanna. Fjórði furstinn er Piermont Morgan, bankafurstinn. Auðurinn er afl þeirra hluta sem gera skal. Hjá Morgan var aaðvald i orðsins fylstu merkingu og hann notaði pening- ana til þess að ná yfirráðum yfir allskonar fyrirtækjum, svo sem járn- brautum, námum og eimskipafjelög- um. í Wall Street 23 er hin tigna peningahöll Morgans og hann fór vel með tímann. Það var sjaldgæft að hann talaði lengur en þrjár mín- útur við þá sem fengu viðtal lijá honum og hann notaði inest eins- atkvæðisorð, einkum nei. Til þess að ná yfirráðunx yfir stálhringnum varð hann að kaupa Carnegie út; gamli maðurinn var þá að setjast í helgan stein og vildi hætta að græða en gefa fje i staðinn. Þeir urðu samferða yfír Atlantshafið og á leiðinni voru kaupin gerð. „Jeg hefði átt að lieimta 100 miljónum meira“, sagði Carnegie, þegar samn- ingarnir voru undirskrifaðir, og Morgan svaraði: ,»Þjer hefðuð feng- ið þær, ef þjer hefðuð gert það“. Sagt er að Carnegie hafi haft slæma matarlyst á eftir. Þannig stóðu sakirnar fyrir rúmum tuttugu árum. Þessir fjórir voru stóru stjörnurnar á peninga- himninum, en kringum þær reikuðu ýmsar daufari. En hvað er um þessa fjóra nú? Rockefeller lifir enn, sonur Morgans er kominn í hans stað, Ford lifir enn og Carne- gie er dauður. Ennþá eru þessir þrír miljónamæringar að visu „vel efnaðir“, en þó hefir gengið á ýmsu hjá þeim undanfarin ár. Rockefeller er talinn þeirra rík- astur. Fyrir kreppuna, 1929, var hann talinn eiga um miljard doll- ara, þegar frá voru taldir þeir 557 miljón dollara, sem liann hafði gef- ið£ Þegar kreppan var verst í Ame- ríku, 1932—33 voru eignir hans metnar á 200—250 miljónir, en nú hafa þær liækkað aftur og eru tald- ar yfir 500 miljónir. Árið 1928 var talið, að Ford væri ríkasti rnaður Ameriku og ætti 1200 Það er engin nýjung, að mikil auðæfi fari i súginn í veröldinni. Krösus var frægasti auðkýfingur fornaldarinnar og svo ríkur, að hann ljet sig ekki muna um, að gefa 800 miljón krónur til vjefrjett- arinnar í Dehli. Hann varð eigna- laus maður. Ramses III. Egypta- konungur átti 40 miljard krónur og Salómon konungur hafði 80 miljón króna árstekjur. Hvað varð af þvi fje? Eða auðæfum þeim, sem ýmsar kaupmannaættir rökuðu saman á miðöldum? Reynslan hefir orðið sú, að engum lxefir tekist að biia svo um auðæfi, að þau varðveitist öld frá öld, en oftast fer auðsafn for- görðum í tíð þess sem safnar því. Auður sem kemst í hendur barna safnandans helst venjulega saman í tíð þeirra, en fer venjulega for- görðum í tíð þriðju kynslóðarinnar eða fjórðu. Nú á timum er það miklu al- gengara en áður, að rnenn sem tekst að safna miklum auði, sól- undi honum sjálfir og verði gjald- þrota. Gjaldþrota auðmaður er al- gengt fyrirbrigði nú á dögum. Frá síðustu árum má nefna Ivar Kreuger og rafmagnskonginn Samuel Insull, sein nú er í fangelsi. Fyrir sex ár- um var austur i Japan ríkasta kona heimsins, frú Susuki, sem átti nokk- ur liundruð miljón dollara, en nú er hún öreigi. Það er hin öra rás viðskiftalífsins, sem ræður mestu urn þetta. Hvers virði eru eignir járnbrautarkongsins, þegar fótk hættir að nota brautina en tekur bílinn eða flugvjelina í staðinn og livers virði er að eiga hveitiekr- urnar, þegar hveitið ekki selst eða jafnvel lóðir og húseignir i New York og London, þegar húsaleigan fellur og skattarnir hækka. Það er ekki langt síðan það varð algengt að vera miljónamæringur í Ameríku. Rjett fyrir aldamótin voru það ekki nema fjórir menn, sem kallaðir voru auðýfingar þar vestra og skal fyrst telja Rockefeller, sem nú er orðinn 97 ára og græddi mil- jónir sínar á olíu og tók sjer í bernsku einkunnarorðin: „Jeg skal og má til að verða ríkur“. Faðir hans skottulæknir og prettaði son sinn, lil þess að kenna honum að vera var um sig og tortrygginn, og það fjell í góða jörð. John D. Rockefeller. græddi fyrsta dollarinn sinn, þegar hann var átta ára. Hann myndaði fyrsta olíuhringinn, þegar hann var þrítugur. Tíu árum síðar rjeð hann fyrir 85% af olíufram- leiðslu Bandaríkjanna. Um eitt skeið var hann mest hataði maðurinn í Aineríku, en hefir nú keypt sjer álit og virðing með hinum stórkost- legu gjöfum sínum til vísinda og lista. Næstur honum kom Carnegie, stálkongurinn, sem ljet sig litlu skifta, hvernig farið var að búa til stál, en liafði þeim mun meiri áhuga Piermont Morgan. á, hvernig það var selt. „Hjer hvil- ir maður, sem kunni að nota sjer aðstoð þeirra, er voru duglegri en hann sjálfur" var grafskriftin, sem Andrew Carnegie sagðist vilja láta setja sjer. En Amerika hefir ekki ennþá átt duglegri kaupmann en hann. Þegar fram í sótti varð lion- um ljóst, að „sá sem deyr ríkur deyr ærulítill“ — og svo fór hann að ausa út peningum, eins og Rocke- feller lxefir gert. Hann gaf einkum fje til þess að koma upp bóka- söfnum, en alkunnastur er sjóður hans til verðlauna fyrir hetjudáðir, þó að stofnfje þess sjóðs sje ekki nema smáræði hjá því, sem rann ti! bókasafnanna. Carnegie átti eng- an son til þess að taka við fyrir- tækjum sínum og má vera að hann hafi verið gjafmildari fyrir það. Næst má telja Henry Ford, bila- konginn. Hann hjelt í fyrstu, að hann gæti stofnað stórgróðafjelag, þó að hann ætti ekki nema fjórð- ung þess sjálfur, en komst brátt að raun uin, að hann varð að eignast meirihluta hlutabrjefanna og siðan keypli sonur hans afganginn — fyrir fje frá gamla manninum. En hluta- AUÐKÝFINGANNA i John D. Rockefeller. llcnnj Ford og Edsel sonur hans.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.