Fálkinn


Fálkinn - 22.05.1937, Blaðsíða 15

Fálkinn - 22.05.1937, Blaðsíða 15
F Á L K I N N 15 ÞIIJÁR SKAUTAHETJUR. Þessar þrjár ungu stúlkur tóku þátt í samkepninni um heimsmeistaratign í skautahlaupi í vetur i London. Eru það þær Cecilia Colledge (t. h.), Megan Taylor (t. v.) og tjekknesk stúlka, Hruba. Cecilia varð hlutskörp- ust en Megan næst og sú þriðja varð sænska stúlkan Vivi Ann Hultén. Hjer er stúlka úr fyrstu kven- lögreglusveitinni í Kina, að rannsaka kvensu, sem liefir gert sig seka í ein- hverju misjöfnu. Þessi lögreglusveit er í Shanghai. Vitaníega lilaut að koma að því, að ásjónan á Hitler fengi að prýða frímerki Þýskalands. Á síðasta af- mæli lians konni út frimerki af for- ingjanum og lita þau út eins og myndin sýnir. JÞ AÐ er eins og sólskin á milli hretskúra, að lesa Fálkann ._ á milli stjórnmálavaðalsins, sem dynur á okkur í stjórn- málablöðunum, ekki síst núna fyrir kosningarnar“. Klausan er tekin orðrjett úr brjefi, sem Fálkanum barst nýlega frá mætum manni norður í landi. Þeir sem Iesa hann fá þægilega til- breyting frá öllu stjórnmálastaglinu, greinar sem birta ný sjónarmið, utanlands eða innan, skemtilegar sögur og fjölda af myndum, af merk- ustu viðburðum, sem gerast, utanlands og innan. ERUÐ ÞJER KAUPANDI „FÁLKANS“? Ef ekki, þá skuluð þjer gerast kaupandi. Ef útsölumaður er ekki svo nærri yður, að þjer getið vitjað blaðsins þangað, þá skrifið af- greiðslu Fálkans, Bankastræti 3, og sendið póstávísun fyrir áskriftinni, það tímabil, sem þjer tiltakið. Áskriftarverðið er kr. 4.50 fyrir árs- fjórðunginn, kr. 9.00 fyrir missiri og kr. 18.00 fyrir heilt. ár. Nýr ársfjórðungur hefst 1. júlí. Pantið blaðið svo tímanlega, að þjer fáið það sent frá ársf jórðungsskiftunum jafnóðum og það kemur út. — Vikublaðið Fálkinn er besta tilbreytingin í hversdagslegu dægur- þrasinu. Þjer megið ekki án hans vera. Vikublaðið „FALKINN ÉÍ Bankastræti 3. REYKJAVÍK Sími 2210. FÆR FRÚ SIMPSON GIMSTEINANA Alexandra Engladrotning, amma uúverandi Englakonungs hafði arf- leitt hertogann af Windsor að öllum skartgripum sínum og gimsteinum. ()g hann hafði gefið unnustu sinni þá, svo að nú eru þeir i vörslum frú Simj)son. Við ensku hirðina er það mjög rætt um þessar mundir, hvort frúin sje rjettur eigandi gimstein- anna úr því að hún varð ekki drotn- ing og eru nú mörg útispjót höfð til þess að ná þeim aftur. Málafærslu- maður frú Simpsön, sem Goddard heitir hefir verið á flugi fram og aftur milli London og Cannes til þess að ráðgast um þetta mál. Alexandra drotning ánafnaði þá- verandi prinsi af Wales dýrgripina og var það ósk hennar að þeir gengi til kpnu lians, þegar hann giftist. Þetta er nú að verða, en lög- fræðingar telja, að hjer sje ekki far- ið að lögum, og að dýrgripirnir sjeu eign krúnunnar. Þeir segja, að arf- leiðsluskráin hafi þvi aðeins gildi, að dýrgripirnir fylgi drotningar- tigninni, því að þeir hafi verið á- nafnaðir prinsinum af Wales sem arftaka krúnunnar. Hinsvegar hafi hertoginn af Windsor verið búinn að gefa mrs. Simpson dýrgripina áður en hann ljet af konungdómi. —- Lík- Jegast er talið að sættir náist i mál- inu, á þeim grundvelli að frá Simp- son láti dýrgripina af hendi en fái ríflegar hætur fyrir þá. KRÝNINGIN í LONDON. Ensku klæðskerarnir hafa liaft nóg að gera i vetur, að sauma krýningar- skrúða á lieldra fólkið í Englandi. Fjöldi fólks af hinum æðri stjettum varð að klæðast alveg sjerstökum búningum til að geta tekið þátt i há- tíðahöldunum, og af klæðaburðinum gátu fróðir menn sjeð, livað hátt hver og einn var settur. VIKTORIA DROTNING GOÐ í TÍBET. Enskur trúboði, sem verið hefir i Lhassa, höfuðborginni í Tibet, segir frá þvi, að hann hafi sjeð tvær goðamyndir af Viktoríu Englands- drotningu i musteri þar. Önnur myndin sýnir hana í góðu skapi, en á hinni er hún bálvond. Þjóðverjar settu fyrir fjórum ár- um lög um lánsheimild handa ungu fólki, sem gifti sig. Síðan 1. ágúst J933 hafa verið veitt um 700.000 slík lán, að upphæð samtals 420 miljón mörk.. Lántakendurnir fá gefinn eftir hluta af láninu fyrir hvert barn sem fæðist í hjónaband- inu. Hjá þessum 700.000 hjónum hafa fæðst um 500.000 börn og haf.t foreldrarnir fengið samtals um 100 miljónir af láninu eftirgefið þeirra vegna. Og jafnframt hafa 700.000 stúlkur sagt lausu starfi sínu utan heimilisins, því það er skilyrði fyrir lánum þessum, að konurnar leiti ekki atvinnu í verksmiðjunum. Hafa karlmenn verið teknir í stað þeirra og liefir það bætl nokkuð úr at- vinnuleysinu. Fje til þessara lána og styrkja hefir stjórnin fengið að mestu leyti með auknum skatti á piparsveinum. Auk þess veitir stjórn in styrki þeim hjónum, sem eiga fjögur börn eða fleiri. Þessir styrkir eru þó lágir, en 350.000 fjölskyld- ur hafa notið þeirra. KLUKKAN í St. Paulskirkjunni i London liefir gengið viðstöðulaust í 20 ár án þess að nokkuð væri gert við liana nema að draga hana upp og smyrja hana einstöku sinnum. En í vetur fór hún að ganga vitlaust og sjást á rnynd- inni menn, sem eru að taka hana ofan til viðgerðar. Iíona ein i Varsjá fór nýlega m'eð nýfæddan dreng sinn til prestsins og ljet skira hann Anton. Síðan fór hún til annars prests og hann skírði drenginn Heljodor. Lögreglan komsl á snoðir um þetta af tilviljun og yfirheyrði móðurina. Hún sagðist hafa gert þetta af fyrirhyggju. Eng- inn vissi hvað fyrir drenginn kynm að korna á lífsleiðinni. Hann gæti t. d lent í klónum á lögreglunni og þá væri gott fyrir liann að hafa skír teini með tvenskonar nöfnum. *f> Alll ineð Islenskum skrpum1 *fi

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.