Fálkinn - 12.06.1937, Síða 9
F Á L K I N N
9
Ríkisstjórn-
arafmælið.
Frásagnir dönsku blaðanna af rik-
isstjórnaraf'mæli Kristjáns konungs
þ. 15. f. m. bera með sjer, að meira
hefir verið gert í Danmörku en hjer
_ til þess að gera daginn minnisverð-
an. Kaupmannahöfn var öll í hátíða
skrúða og dagurinn hátíðisdagur
allrar þjóðarinnar. Og þess má geta
sjerstaklega, ■ að aldrei hafa eins
margir islenskir fánar sjest í Kaup-
mannahöfn og þann dag og sýnir
það glöggar en nokkuð annað, að
Danir gleymdu ekki sambandsrík-
inu, þó að Ijóst sje, að konungur-
inn vegna uppruna síns og búsetu
verður jafnan samgrónari dönsku
þjóðinni en íslendingum. Konung-
ur byrjaði daginn að vanda með
því, að ríða út einn um götur K-
hafnar, en síðan hófust hátíðahöld-
in. KI. 8 árdegis heilsuðu öll her-
skip á höfninni með skolkveðju, kl.
9 söng kór frá söngfjelögum Kaup-
mannahafnar á torgi Amelíuborgar,
en kl. rúmlega tíu ók skrúðfylking-
in frá Amalíuborg áleiðis til dóm-
kirkjunnar og hlýddi þar á stutta
messugerð. Síðan fór konungsfjöl-
skyldan í fylkingu um allan helstu
götur borgarinnar. — En kl. 1Vfc var
móttaka í ríkisþinginu og stóð hún
eina klukkustund. Að því búnu tók
konungur á móti sendiherrum er-
lendra ríkja á Amalíuborg og öðr-
um gestum og sendinefndum. Klukk
an undir 6 fluttu forsætisráðherra
Islands og Danmerkur og konungur
ávarp í útvarpið og ld. 8 hófst veisla
á Kristjánsborg en um sama leyti
þjóðhátíð á Ráðhústorginu og víðar.
Loks fóru stúdentar blysför til kon-
ungs í veisluna um kvöldið. Þ’rátt
fyrir fremur óhagstætt veður voru
hundruð þúsunda af fólki á ferli
allan daginn á þeim slóðum, sem
búast mátti við konungshjónunum.
Meðal gesta við hátíðahöldin er
fremst að nefna þá konunga Noregs
og Svíþjóðar. — Hjer á myndunum
sjest hátíðwsýningin i kgl. leikhús-
inu og heimsókn söngvaranna á
hallartorgi Amalíuborgar. Önnur
litla myndin sýnir þá bræður
Kristján konung og Hákon Noregs-
konung, en hin konung vera að
stíga út úr bifreið.
alt heimsveldið var statl innan
vegffja Westminsterkirkjunnar. Mjer
er jmð yndi, að geta talað við ykkur
öll, hvar sem j)ið eruð stödd, heilsa
gömlum vinum á fjarlægum stöðum
off nýjum vinum þar sem jeg hefi
ekki haft færi á að (koma. Á þennan
hátt áskar drotningin og jeg ykkur
öllum heilal og gæfu. En við gleym-
um ekki á þessari fagnaðarstund
þeim, sem lifa i skugga sorgar og
neyðar. Einnig þeim sendi jeg
kevðju mína og samúðarvott. Þann
vott ástar og hollustu er erfitt að
þakka með orðum. Lcyfið mjer að
segja, að cf jeg get sýnt þakklæti
mitt á ókomnum árum, vildi jeg
helst kjósa að sýna það i verkinu.
Fyrir mörgum er krýningin tákn
einingarinnar. Af náð guðs og með
frjálsu samþykki þjóðarinnar he.fi
jeg gengist undir hyrði kórónunnar.
Það er mikil ábyrgð, en það gaf mjer
styrk að sjá fulltrúa yðar kringum
mig í Westminster Abbey. Drotning-
in og jeg munum ætíð minnasl
þessa dags i hjörtum okkar. Jeg
þakka ykkur af öllu hjarta. Guð
blessi ykkur öll“.