Fálkinn - 26.06.1937, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
9
Þetta er Ameríkumaðurinn C.lem Sohn, sem hefir uakið mikla
athygli fyrir flugham sinn. Ekki gat hann þó Igft s jer frá jörðu
í honum, heldur varð liann að hlaupa út úr flugvjel og ekki
gat hann heldnr lent i honum á jörðu. -Clem Sohn fórst i vor
á flugsýningu í Englandi.
í Wemhley í London er siór sundlaug úr gagnsæu gleri og
vatnið í henni mjög tært. Áhorfendur sjá því hverja hreyfingu
sundmannanna, hvort heldur þeir eru i kafi eða í vatnsborðinu.
Iljer sjást karlmaður og kvenmaður vera að eta banana, á
„á hafsbotni".
Myndin er frá borgarstyrjöldinni á Spáni. Bifreiðin er hlaðin
stjórnarhermönnum, sem eru að leggja af stað til vígstöðvanna
til þess að drepa og verða drepnir. Eremst á myndinni sjest ung
stúlka, sem hefir látið innrita sig i herinn, en hefir ekki önnur
einkenni en liúfuna og svo skammbyssuna í hendinni.
Við æfingar i barsaglieri-deild ítalska hersins er ýmislegs krafist,
sem reynir á þor og snarræði liermannanna. Þannig sýnir mynd-
in, hvar hermenn eru að steypa sjer kollhnýs af mótorhjóli, sem
kemur að á fullri ferð. Það er ekki að furða, þó Mussolini sje
hreykinn af hermönnum síuum.