Fálkinn


Fálkinn - 19.02.1938, Blaðsíða 2

Fálkinn - 19.02.1938, Blaðsíða 2
T o FÁLKINN ---- GAMLA BlÓ ------ Rauði hershöfðinginn. Ólafur og Herborg Ólafsson kristniboðar og börn þeirra. Hefirðu gel'ið konunni þinni þessi sparnaðarráð, sem við vorum að tala um hjerna um daginn? — Já. — Og varð nokkur árangur af |)eim? — Já. Jeg er hœttur að reykja vindla. Stórfengleg og framúrskarandi vei leikin mynd frá stríðsárun- um 1918—’ 19. Aðalhlutverkin leika: HANS ALBERS, CHARLOTTE SUSA. Myndin verður sýnd bráðlega. „Rauði hershöfðinginn“, sem Gamla Bíó sýnir bráðlega, er stórfengleg mynd frá síðustu árum heimsstyrj- aldarinnar og baráttunni við holse- vikkana i Rússlandi eftir lok striðs- ins. Aðalhlutverkið í myndinni leik- ur Hans Albers, sem frægur er orð- inn á heimsmælikvarða fyrir kvik- myndaleik sinn. í slað þess að skýra frá Iiinu margþætta efni myndar- innar, skal segja nokkuð frá ferli aðaileikarans og þroákabraut hans. Hans Albers hyrjaði að fásl við leik í smábæ einum í Mecklenburg. Hann ljek þar bæði klassisk og nú- tímahlutverk, en auk þess var hann ráðinn til þess að vinna að skreyf- ingu á leiksviðinu og fleira jjess- háttar. Þetta var ekki erfitt verk, en hann hafði liugsað sjer annars- konar leikstarf en þetta. En þá var hann settur til að vera „vélamaður" á leiksviðinu. Eitt kvöld bar svo við, að leikhússtjórinn var að mæla fram langt eintal í leikriti nokkru af mikl- um krafti. Alt i einu fellur um koll með braki og hávaða súla nokkur, sem einmitt Albers hafði komið þar íyrir, og áhrifin af flutningi eintals- ins ruku út i veður og vind, en Albers var sagl upp stöðunni lafar- laust. Hann komst þá að við sumar- leikhúsið í Schandau, en svo kom ófriðurinn mikli. Aibers fór í striðið og særðist alvarlega á vesturvig- stöðvunum, lagðist á sjúkrahús og náði sjer til fulls aftur. Þá fór Al- bers til Berlínar og brá sjer í leik- húsið. Einmitt sama kvöldið vildi svo til, að einn leikanda var forfall- aður, og var þá sent eftir Albers, þar sem hann sat á áhorfendabekk, og hann beðinn að taka að sjer hlutverkið. Hann gerði svo, fórst það vel og var litlu síðar ráðinn við „Konunglegu óperuna“. Brátt varð hann einn af vinsælustu leikurum i höfuðstaðnum, en fekk þó aldrei annað en smáhlutverk. Árið 1920 fekk hann nokkru stærri hlutverk og var nú kominn í þjónustu kvik- myndanna. En það var fyrst Carl Frölich, sem veitti því athygii, hversu miklum ieikhæfileikum hann bjó yfir. Hann ljet hann fá aðal- hlutverkið í þýsku stórmyndinni „Nóttin er okkar“. Og jafnskjótt barst nafn hans um víða veröld. Síðan hefir liann leikið hvert stór- hlutverkið eftir annað og nýtur nú frægðar sem fyrsta flokks leikari á alþjóðlegan mælikvarða. ■ ----- NÝJA BÍÓ. Nótt i Paris. Þau fóru frá borginni Laohokow í Hupeh fylki í miðju Kínaveldi 27. októb. s.l. áleiðis lil íslands. — En 1 Laohokow eru aðalstöðvar norska trúboðsins, sem Ólafur er í sam- vinnu við. — Samferða voru norsk kristniboðshjón með 3 hörn. Ferðin gekk seint til strandar, og var engan veginn hættulaus. Fyrst fóru þau 9 daga með kínverskum fljótabát til Hankow. Eftir nokkra vafninga kohiust þau þaðan með ensku fiutningaskipi eftir Vagt- sikiang niður að tundurduflastíflu í fljótinu. Þá flutti mótorbátur þau í 2 daga langan krók eftir skurðum, og síðan var farið með ensku skipi Ii 1 Shanghai. Höfðu Japanar tekið [)á borg 3 ílögum áður. í 9 daga var dvalið í Shanghai, og var þar ríkulegt lækifæri lil að kynnast hörmungum ófriðarins. Ferðafólkið komst þaðan með itölsku skipi lil Hongkong og þaðan með þýsku skipi alla leið til Hamborgar. Kristniboðarnir komu til Oslo á nýársdag, og fögnuðu kristniboðs- vinir þeim með samsæti er yfir 900 manna sóttu. Segir „Aftenposten" norski, að Ólafur hafi flutt þar á- gæta ræðu. Ólafs er von til íslands eftir næstu mánaðarmót, en fjöiskylda lians er væntanleg með sumrinu. Ólafur fór í fyrsta skifti til Kína frá Ameríku haustið 1921. Aftur kom hann til íslands haustið 1928, dvaldi hjerlendis 18 mánuði og hjelt þá á annað hundrað ræður og erindi. Haustið 1929 fóru þau hjónin frá Noregi til Kina og hafa starfað þar síðan. Myndin er tekin í Singapore snemma í desember s.l. S. Á. Gislason. Amerísk stórmynd er sýnir á- hrifamikla og viðburðaríka sögu sem gerist i París, New York og um borð í risa skipi, sem ferst í l'yrstu siglingu sinni yfir Atlantshaf og eru þær sýningar svo mikilfenglegar og áhrifarík- ar að vart mun slíkl hafa sjest hjer i kvikmynd áður. Aðalhlulverkin leika af mikilli snild: CHARI.ES BOYER, JEAN ARTHUR, LEO KARILLO o. II. Börn fá ekki aðgang. Sýnd um helgina. Nýja Bió sýnir um þessar mundir mynd eina mikla, sem nefnist „Nótt i París“. Þetta er fyrsta myndin, sem þau leika i saman, Charles Boyer og Jean Arthur. Myndin er gamanleikur i aðra röndina, en hefir þó mjög dfámatisk atriði að geyma. Þar á meðal má einkum nefna þau atriði myndarinnar, sem lýsa því, er geysi- stórl farþegaskip fersl. Þessi alriði eru byggð á þeim atburðum, er gerð- ust í sambandi við hið stórkostleg- asta sjóslys, er sögur fara af, er risa skipið „Titanic“ rakst á hafísjaka og fórst, sem mörgum er enn í fersku minni. í þessari mynd verða atburð- irnir með svipuðum hætti. Geysi stórt farþegaskip siglir á hæltulegri sigl- ingaleið með fullum hraða samkvæmt skipun afbrýðissams lramkvæmda- stjóra. Skipið sjest rekast á ísjakann og ótti sá og skelfing, sem grípur farþegana er ljóslega sýndur og þeir af farþegunum, sem ekki komast í bátana syngja sálminn fræga „Hæriu minn guð til þín“, er þeir búast við dauða sínum. En sem betur fer, hef- ir áreksturinn ekki orðið í [)essu tilfelli eins alvarlegur og búist hafði verið við og skipið getur hald- ið leiðar sinnar. Einungis skýtur framkvæmdastjórinn sig, en hann er þorparinn í myndinni. Chartes Boyer leikur glæsilegan yfirþjón, sem bjargar frú fram- kvæmdastjórans, Jean Arthur, úr al- varlegri klipu. llann er kærður fyrir morð, en framkvæmdastjórinn er i rauninni hinn seki, og sannleikurinn kemst upp. Þessi alriði eru mjög dramatísk og stórfengleg, en engu að síður eru fjölda mörg Ijett og aðlaðandi atriði i myndinni. Jón Jónsson, Pálshúsum, vcrð- ur 90 ára 18. þ. m. Gísli Þorbjarnarson, fasleigna- sali, fícrgstr. 36, vcrður 70 ára 19. þ. m. fíjörn Gíslason, Gröf, Regðar- firði, verður 50 ára 18. þ. m. 1 k * 4

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.