Fálkinn - 28.05.1938, Blaðsíða 2
FÁLKINN
4
------ GAMLA BÍÓ ----------
ðrlaprik stnnd
Hrífandi og listavel leikin arn-
erísk talmynd.
Aðalhlutverkin leika:
LORETTA YOUNG og
FRANCHOT TONE.
Sýnd bráðlega'
Gamla Bió sýnir bráðlega mynd,
sem heitir „Örlagarík stund“, mjög
spennandi lögreglumynd með Fran-
chot Tone og Loretta A'oung í aðal-
hlutverkunum. Myndin hefst með
þvi, að Sir Alan Dearden er að því
kominn að hljóta útnefningu sem
málfærslumaður þess opinbera, en
það er vegtylla, sem hann hefir
lengi kept eftir að ná. Nokkurum
dögum áður en útnefningin á að
fara fram, tekur hann sjer leyfi á-
samt fjölskyldu sinni, og þau halda
stóran dansleik á heimili sínu i
London. Meðan á dansleiknum
stendur heppnast alókunnum manni
að laumast inn, — hann er sam-
kvæmisklæddur og blandar sjer i
hóp gestanna, án þess að nokkur
taki eftir því. En þetta er hinn við-
sjárverðasti náungi. Lewis að nafni
og hefir áður tekið út hegningu
fyrir svik og pretti. Hann gerist svo
óskammfeilinn að kynna sig fyrir
húsfreyjunni og hjóða henni í
dans. En á meðan þau eru að dansa
segir hann henni blátt áfram að
hann vilji fá 2000 pund fyrir nokk-
ur ástarbrjef, sem Sir Alan hafi á
sinum tíma skrifað konu nokkurri,
að nafni Diana Roggers, sem nú er
gift Lewis þessum. Húsfreyjan geng-
ur að þessum ókostum, vegna þess
að hún er hrædd um, að mannorð
manns hennar og embættisframi sje
í veði að öðrum kosti. Daginn eftir
hittir hún Lewis í Dover. Hún er
með tvær þúsund punda ávísanir, sem
hún skiftir i 5 og 10 króna seðla
i bankanum í Dover. Seðla þessa
lætur hún í leðurtösku, fer upp á
háa brekkubrún, samkvæmt umtali
við Lewis og kastar töskunni niður.
Síðan gengur hún sömu leið til
baka og finnur hin umræddu ástar-
brjef undir trje einu, sem til var
tekið. Á leiðinni sjer hún konu,
sem gengur upp á brúnina og rjett
í þeim svifum tekur hún eftir manni
einum, sem varar konuna við að
ganga þarna og biður hana að fara
varlega. En annars gefur hún þessu
ekki frekar gaum að þvi sinni.
Litlu síðar er maður nokkur að
nafni Metford kærður fyrir morð
með þeim hætti að hafa hrundi?
konu sinni fram af brúninni hjá
Dover. Sir Alan flytur málið fyrir
rjettinum, sem ákærandi og kona
hans kemst að þvi, — af mynd-
um í blöðunum, — að Metford er
sami maðurinn, sem hún hafði sjeð
og heyrt aðvara konuna i Dover.
Af þessu leiða margs konar flækjur
og vandræði, — alt mjög spenn-
andi atvikakeðja, — sem leysist þó
á hinn besta hátt að lokum. Mynd-
in er bráðskemtileg.
----x—-—
— Sæll og blessaður, Tommi. Þú
hefir breyst svo mildð siðan við sá-
umst seinast, að jeg ætlaði varla að
þekkja þig. ,
— Yður skjátlast, maður. Jeg
þekki yður ekki og jeg heiti ekki
Tommi.
— Ja, hver skollinn. Þú hefir þá
breytt um nafn líka.
Frú Ingibjörg Þorkelsdúttir,
Rauðará, verður 70 úira 29. þ.m.
Þórður Geirsson, lögregluþjónn,
á 30 ára starfsafmæli 1. júní
næstkomandi.
MINNISMERKI HORST WESSEL.
Þýski myndhöggvarinn Ernst Paui
Hiriceldey sjest hjer á myndinni fyr-
ir framan lágmynd, sem hann hefir
gerl af hinni þýsku nazistaþjóðhetju
Horst Wessel. Eru nú liðin átta ár
síðan hann dó.
----x-——
Læknirinn skoðar sjúklinginn en
getur ekki ráðið úr, hvað að hon-
um gangi og spyr:
— Hvar funduð þjer fyrst til þján-
inganna?
— Hjer um bil miðja vegu milli
Kolviðarhóls og Lækjarbotna.
Ólafnr MagnAsson
prófastur í Arnarbæli
átti 50 ára prestskaparafmæli Jiann
22. þ. m., og er hann nú eini jubil-
prestur landsins, en svo eru nefnd-
ir þeir presiar, sem ])jónað liafa
embætti í 50 ár. í tilefni af þvi
komu allir prestar i Árnessýslu
prófastsdæmi til kirkju hjá honum
að Kotströnd síðastliðinn sunnudag,
og auk Jiess komu frá Reykjavík
biskup landsins, dr. Jón Helgason,
síra Bjarni Jónsson vígslubiskup,
síra Árni Sigurðsson og síra Ás-
mundur Guðmundsson prófessor.
Eftir inessu flutti herra Jón biskup
ræðu og Jiakkaði síra Ólafi fyrir
aldarhelming vel unnið starf í þágu
kirkjunnar. Við guðsþjónustuna var
staddur mikill fjöldi fólks, en á
eftir sátu prestarnir ásamt biskup-
unum véislu hjá prófasti.
Síra Ólafur er hinn ágætasti klerk-
ur, yinsæll og vel látinn af öllum.
Nýtur hann og hvers manns virð-
ingar, Jieirra er lil hans Jiekkja,
bæði sem maður og kirkjunnar
þjónn. Hann er nú 73 ára að aldri,
og hefði lögum samkvæmt átt að
láta af prestskap fyrir þrem árum.
en fyrir eindregna ósk sóknarbarna
hans hjelt liann áfram að þjóna
embættinu, enda er hann hinn ern-
asti og að öllu sem ungur væri og
enn á besta aldri.
----o----
Aðkonnimaðurinn: — Ætlist þjer
til að jeg trúi, að þjer hafið verið
tiu ár hjer í bænum og þekkið ekki
slystu leiðina á járnbrautarstöðina?
— Já, sjáið þjer til. Jeg er bil-
stjóri og hefi ökumæli.
*fi Allt með islenskum skrpuni1 «f»
------- NÝJA BlÖ. -------------
Einkalif leikarans
Amerískur gleðileikur frá War-
ner Bros. fjelaginu. — Aðalhlut-
verkin leika:
LESLIE HOWARD,
BETTE DAVIS,
OLIVIA DE HAVILLAND o. fl.
Nafn Leslie Howard er ávalt
næg trygging liess að um sjer-
staklega góðar myndir sje a?
ræða og þannig , er það með
þessa mynd, hún er bráðskemti-
leg og hjer kynnast aðdáendur
þessa mikla leikara hæfileikum
hans frá nýrri lilið, Jiví venju-
lega hafa hlutverk hans verið
alvarlegs efnis en hjer leikur
hann gamansamt hlutverk af
mikilli snild.
Nýja Bíó sýnir bráðlega ameríska
skemtimynd, sem nefnist „Einkalíf
leikarans“. Sýjiir myndin, livernig
leikari einn Basil að nafni, á í
basli með kvennamál sin. Hann
elskar leikkonuna Joyce, sem leikur
með honum, og hún hann, en eins
og oft vill verða slæst stundum upp
á vinskapinn hjá þeim, ekki síst
eftir að Marsia kemur til sögunnar:
Hún er dauðhrifin af Basil, hefir
leikaraást á honuin, og gerir alt
sem lnin getur til Jiess að kippa
honum út af vegi dygðarinnar og fá
hann til að elska sig eina. Marcia
sjer hann leika dauðaatriðið i
„Romeo og Julia“ á móti Joyce.
Eftir leikinn þýtur hún upp í hún-
ingsherbergi hans og játar lionum
ást sína. Matcia cr ,* á ferð með
föður sínum, frænku sinni og unn-
usta sinum Henry að nafni. Eftir
lietta fer hann til hótels síns og í
næsta herbergi við hann býr Joyce,
meira en lítið reið yfir því, að
hann hafði brugðið fæti fyrir hana,
þegar hún gekk út af leiksviðinu.
Þau sættast nú fullum sáttum aftur
og af því að það er gamlárskvöld á-
kveða þau að farra lit saman og
skemta sjer. En rjett áður en af
þvi yrði, kemur Henry unnusti
Marciu á fund Basils og segir hon-
um, að unnusta sin elski hann og
biður hann blessaðan að koma í boð
hennar og reyna að firta hana á ein-
hvern hátt, svo að hún láti af villu
sinni. Basil iofar Jiví þrátt fyrir
mótmæli Joype og án Jiess að hann
hafi hugmynd um, að þetta er sama
stúlkan, sem komið diafði til hans
upp í búningsherbergið og játað hon-
um ást sína. í boðinu hjá föður
Marciu gerir hann alt sem hann
getur til þess að móðga liana og
fjölskylduna. En ekkert stoðar. Hún
segir bara, að hann sje „indæll“.
Hann er að lenda í inestu ógöngum
og næsta dag verður málið sýiiu
flóknara. Að lokum leysist lió alt
á hinn ákjósanlegasta hátt.