Fálkinn - 20.08.1938, Síða 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA RÍÓ --------------
Suzy.
Afar spennandi og áhrifamikil
kvikniynd frá heimsstyrjöldinni
miklu.
Aðalhlutverkin leika:
JEAN HARLOW
CARY GRANT
FRANCHOT TONE.
Sýnd bráðlega.
Gamla Bíó sýnir bráðlega mjög
álirifamikla kvikmynd frá heims-
styrjöldinni iniklu undir nafninu
Suzy. Leika í henni frægir leikarar
eins og Jean Harlow, Franshot Tone
og Cary Grant, og þarf enginn að
efast um að þau skila öll sínum hlut-
verkum með prýði. Myndin er frá
Metro-Goldwyn kvikmyndafjelaginu
og snýst að verulegu leyti um njósn;
ir og hernaðarflug, sem sýnt er
þarna af mikilli snild. —
Efni myiidarinnar í stuttu máli er
sem hjer segir: — Árið 1914. Amer-
ísk söngmær Suzy að nafni (Jean
Harlow) er stödd í Lundúnum, at-
vinnulaus og auralaus. Þar kynnist
hún Terry Moore (Franchot Tone),
sem hún ætlar vera af háum stigum,
en hann er þá aðeins lágt settur
vjelfræðingur á vjelaverksmiðj.i
einni.
Terry verður ákaflega ástfanginn
af Suzy. Hann borgar húsaleiguna,
sem hún fær ekki greitt af eigin
ramleik, og býður lienni að búa
hjá sjer. Terry er maður liugvits-
samur og vinnur að uppfinningum.
Eitt kvöld tekur hann Suzy með til
verksmiðjunnar. Meðan hann er að
vinria þar kemur eigandi verksmiðj-
unnar, frú Schmidt, sem segir hon-
um upp stöðu vegna þess að hann
eyði að óþörfu ljósi og rafstraumi
verksmiðjunnar.
Hann fær skömmu síðar uppreisu
og er gerður að meðforstjóra við
verksmiðjuna. Strax á • eftir giftist
hann Suzy.
Rjett ieftir giftinguna er skotið
á Terry í augsýn Suzy. Hún verð-
ur ofsahrædd og kona sem kem-
ur að ásakar hana um að hafa drep-
ið hann. Hún flýr í dauðans ofboði,
og segir ekki af lienni fyr en hún
kemur til Parísar, þar sem hún teit-
ar athvarfs hjá Maisie vinkonu sinni.
Nú skellur heimsstyrjöldin á. —
Maisie ræður Suzy til að syngja á
kaffihúsi einu. Þar kynnist hún hin-
um fifldjarfa fluggarpi André Char-
ville (Cary Grant). Þau giftast og
fara í heimsókn til föður hans, gam-
als baróns, sem er farinn að sætta
sig við öll glappaskot soriar síns,
þar á meðal þetta. — Nú kemur
það upp úr dúrnum, að Terry er
lifandi. Hvernig fer nú fyrir vesa-
lings Suzy, þegar hann kemur til
Parísar? Áframhaldið er í mesta máta
„spennandi" og þvi best að kvik-
myndahúsgestirnir njóti þess án
nokkurs undirbúnings um hvernig
þvi muni Ijúka.
Sveinbjörn Egilson, ritstjóri,
verður 75 árci 21. þ. m.
Þórhallur Daníelsson, kaupm.,
Hornafirði, verður 65 ára 21.
þ. m.
Hjörtur Ilansson, stórkaupm.,
Bergstr. 6h. verður 55 ára 2h.
þ. m.
Sex stúdentar við háskólann í
Georgia í Bandaríkjnnum buðu sig
nýlega fram til að láta gera á sjer
tilraunir um, hvernig svefnleysið
verkaði á likama og sál. Þessum
stúdentum öllum tókst að halda sjer
vakandi í yfir 100 klukkutíma. Til-
raunin sýndi, að svefninn er nauð-
synlegur til þess að menn taki fljótt
eftir, sjái og heyri rjett og sjeu í
góðu skapi. Hinsvegar fór matarlyst-
inni ekkert aftur við svefnleysið.
Skáldið Upton Sinclair, sem er
frændi frú Simpson eða hertogafrú-
arinnar af Windsor hefir i blaðinu
„Liberty" gert það að tillögu sinni,
að hertoginn verði ráðinn að ein-
liverri útvarpsstöðinni, því að full-
yrða megi, að allur heimurinn vilji
hlusta á hann. Hann vili láta lier-
Ólafur Gíslason, stórkaupm.,
Sólvallag. 6, verður 50 ára 19.
þ. m.
Jánas Páll Árnason, Vatnsstíg 9,
verður 60 ára 23. þ. m.
Jónas Magnússon, verkstjóri hjá
Kveldúlfi, Lindargötu 23, verð-
ur 50 ára ,23. þ. m.
fogann setjast að í New York og taia
í útvarp þaðan og verði svo liertog-
anum endurvarpað frá öllum stöðv-
um, sem vilja. Og hertoginn á að
tala „Um daginn og veginn“ síðdegis
á hverjum sunnudegi. Líst mönnum
vel á þessa hugmynd, en það er eft-
ir að vita hvað hertoginn segir um
hana sjálfur.
1792 er ekki aðeins ártal heldur
er það ættarnafn fjölskyldu einnar
í Coullumiers í Frakklandi. Þar lijetu
fjórir bræður Janúar, Febrúar, Mars
og Apríl 1792. Mars dó í september
1904.
Lukas Tschaffen í Arlberg í Þýska-
landi dó 1679 og átti þá afkomendur,
nefnilega 5 börn, 87 barnabörn og 553
barnabarnabörn.
-------- NÝJA BÍÓ. -------------
Sara lærir mannaslði.
Bráðskemtileg, fyndin, sænsk
kvikmynd með dillandi músik.
Aðalhlutverkið leikur af miklu
fjöri hin vinsæla
TUTTA ROLF.
Aðrir leikarar eru:
HÁKAN WESTERGREN
KOTTI CHAVE o. fl.
Aukamynd:
Sænsk náttúrufegurð og þjóðlíf.
Hrífandi fögur fræðimynd frá
Svíþjóð.
Sænskar kvikmyndir falla íslend-
ingum sjerlega vel í geð, og þegar
Tutta Rolf leikur annað aðalhlut-
verkið i mynd þeirri sem hjer er á
ferðinni og Hákan Westergren hitt
þá þarf ekki að efast um, að hún
muni tala til biógestanna. Eins og
auglýsingin ber meo sjer er þetta
bráðskemtileg gamanmynd, iðandi af
Ijettri músik.
— Sara litla, „hin guðdómlega“,
eins og hún er kölluð eftir hinni
heimsfrægu leikkonu Söru Bern-
hiardt, er stofustúlka lijá Hallerfjöl-
skyldunni, þar sem hún er notuð til
ýmsra ólíkustu vika eftir því sem
dutlungavindar fjölskyldunnar blása.
Stundum verður hún jafnvel að vera
, model“ fyrir yngsta soninn Georg,
sem ætlar að verða listmálari. En
það eru nú engan veginn verstu
stundirnar, því að hún er í raun og
veru ástfanginn af honum. En honum
er liugað annað og æðra kvonfang,
ungfrú Fanney Berg, veliauðug stúlka
sem Georg er alls ekki hrifinn af.
— Bergfjölskyldan er i miðdagsboði
hjá Haller. Ungfrú Fanney, sem
hefur lært söng „treður upp“ að mið-
deginum loknum. Allir taka söngn-
um vel nema Sara. Hún er mjög
„músíkölsk“ svo að það fer ekki
fram hjá henni, að söngur Fanneyj-
ar er falskur. Hún fær ekki stilt sig
og skellihlær i álieyrn beggja fjöl-
skyldnanna. Söngkonan verður ofsa-
reið. Og hlátur Söru kostar hana
næstum vistina. Skömmu eftir þenna
viðburð er frá því sagt í sænska út-
varpinu, að vellauðugur Svíi, búsett-
ur í Ástralíu sje dáin og upplýsist að
Sara er eini erfinginn að reitunum.
Allir viðstaddir verða glaðir fyrir
hennar hönd, en sjálf tekur hún
þessu án fagnaðar. Hún liefur altaf
verið fátæk og óskar eiilskis annars
en að vera stofustúlka hjá Haller og
mega sjá soninn Georg sem oftast. —
Það leynir sjer ekki. að Georg hefur
lengi borið hlýjar kendir til Söru,
en miljónaarfurinn hrindir honum
frá henni, því að Georg vill ekki
giftast til fjár. Og þegar nú Sara
elskar Georg, en fyrirlítur peningana,
])á er ekkert annað fyrir liana að
gera, en losa sig við þá — og það
tekst henni furðanlega fljótt. —
Sem aukamynd verður sýnd: Sví-
þjóð — land og þjóð. Mjög fróðleg
og skemtileg mynd, sem alt sænsk-
sinnað fólk verður að sjá, bæði til
þess að kynnast náttúrufegurð lands-
ins og fá nökkra luigmynd um hina
miklu menningu öndvegisþjóðar
Norðurlanda.
Lúðvík, síðar I., konungur af Bay-
ern fæddist í Strassburg árið 1786
en þar var faðir hans franskur liers-
liöfðingi. Til heiðurs hinum nýfædda
hershöfðingjasyni ljetu allir hermenn
í deild hershöfðingjans klippa af sjer
skeggið og bjuggu til úr því sæng
handa hvítvoðungnum að liggja á,
(