Fálkinn - 10.09.1938, Side 2
2
F Á L K I N N
GAMLA RÍÓ
Mille, laria og jeg.
Fjörug og fyndin gamanmynd.
Aðalhlutverkin þrjú leikur hin
fjölhæfa danska leikkona:
MARGUERITE VIBY.
Þetta er besta og skemtilegasta
danska kvikmynd, sem gerð
hefir verið i mörg ár.
Gamla Bíó sýnir núna alveg á
næstunni danska gamanmynd undir
nafninu Mille, Maria ug jeg. Mynd
þessi er talin besta danska kvik-
myndin, sem fram hefir komið um
mörg ár, og á hin fræga danska leik-
kona Marguerite Viby aðalheiSurinn
af Ijví aS svo er, en hún leikur þrjú
stórhlutverk, hvert öSru betur. Hún
er stud. med. „Klaus“, söngkonan
Milla og þjónustustúlkan Maria. Leik-
ur hennar í myndinni sýnir frábæra
fjölhæfni hennar sem leikkonu.
Berlingske Tidende segir um þessa
mynd: „Loksins fengum viS veru-
lega góSa gamanmynd. „Milla, Maria
og jeg“ er besta danska gamanmynd-
in, sem við liöfum sjeð. Marguerite
Vihy var töfrandi og áhorfendurnir
afburSa hrifnir af henni.... ÞaS var
merkiskvöld í sögu danskra kvik-
mynda.“ í líka átt ganga flestir blaða-
dómar.
— ASalhetja þessarar skemtilegu
myndar er ungur kvenstúdent, ung-
frú Eilen Klausen, er gengur undir
nafninu „Iíláus.“ Hún er dóltir þorps-
læknis á Jótlandi, en verSur aS brjót-
ast áfram á eigin spýtur viS námiS.
Og verSur hún því aS vinna ýms
aukastörf til þess aS geta haldið
því áfram. —
Þrátt fyrir annirnar hefir hún nú
tíma til þess aS verSa „skotin“. Og
sá, sem hún miSar Amorsörvum sín-
um aS er sjálfur kennari hennar,
prófessor í læknisfræSi, Niels Klit-
gaard. í hálfgerSri leiSslu hlustar
hún á hann, þegar hann heldur fyrir-
lestur um hjartaS, svo aS fjelaga
hennar grunar margt og stríSa henni
óspart á eftir. En vesalings Kláus
hittir ekki hjarta prófessorsins, og
ber harm sinn í hljóSi.
Til þess aS hafa ofan af fyrir sjer
ræS’st hún sem söngkona i „Hot —
Hot“, sem er fjörugur samkvæmis-
staSur. Hún vekur mikla hrifningu
meðal gestanna, en keniur sjer út úr
húsi við eigandann fyrir að löðrunga
vin hans, sem hafði verið dónalegur
viS hana.
Nú á hún mjög erfiSa daga, svo aS
nærri liggur aS hún gefi námiS upp.
En þegar hún horfir á mynd föSur
síns grípur hana nýr kjarkur.
SíSasta kvöldiS sem Milla er á
Hot •— Hot —en svo heitir „Kláus“
á þeim staS, rekst prófessor Klit-
gaard þangað ásamt vini sínum, og
hann verSur óSara hrifinn af Millu,
sem hann hafSi enga athygli ljeS í
kenslustundunum. En hann fær ekki
gert sjer grein fyrir því, aS þessi
stúlka sje nemandi hans.
En erfiðleikar hennar eru ekki úti
Ludvig Káaber bankastj. verður
sextugur 12. sept.
Sigurður Guðmundsson, skóla-
meistari á Akureyri, varð 60 ára
3. þessa mánaðar.
Dr. Donald Thomson sem er mann-
fræSingur, kom aftur til Melbourne
í Ástralíu skömmu fyrir jól, og var
þá búinn aS dvelja 15 mánuði meðal
lítt siSaðra þjóðflokka i norSurhluta
landsins. Dvaldi hann meSal annars
hjá nokkrum kynþáttum, sem aldrei
höfðu áður viljað hafa nein mök
við hvíta menn. Voru þeir mjög
tortryggnir í fyrstu, en sannfærðust
brátt um, að hann ætlaði ekki að
gera þeim neitt mein, og voru eftir
þaS hinir ágætustu. Komst dr. Thom-
son að þeirri niðurstöðu, aS þó
þessir frumbyggjar væru ólíkir hvít-
um mönnum hið ylra, þvi þeir eru
mósvartir á hörund og með flöt nef,
væru þeir að greind og skaplyndi
likir okkur, en einstaklingarnir auð-
vitað mjög mismunandi eins og hjá
okkur hvítu mönnunum.
Til mála hefir komið, að togarar
frá Boston í Bandaríkjunum fái ýms
hlunnindi á Nýfundna-landi, ef þeir
hafi skipshafnir frá því landi, að
undanteknum vjelamönnum og yfir-
mönnum. Fyrirkomulaginu svipar að
ýmsu til þess er ítalir huðu Fær-
eyingum nýlega.
enn, því að nú ræðst hún sem þjón-
ustustúlka til Löwe forstjóra, og
gengur hún nú undir nafninu María.
Þar er prófessor Klitgaard tíður
gestur, þar eð Löwe-hjónin leggja
kapp á að fá hann fyrir tengdason,
og líkurnar eru sterkar fyrir því að
það muni hepnast, og María verður
nú að ganga gegnum allar kvalirnar
er fylgja þeirri tilhugsun. — En hún
er vel að prófessornum komin — og
þetta væri engin gamanmynd, ef
sögulietjan yrði að gráta í myndar-
lok. —
Árni Pálsson prófessor verður
sextugur 13. sept.
Ekkjan Dagbjört Brandsdóttir,
Baldursgötu 22 A, verður 75 ára
13. þ. m.
Listdanssýning.
Um síðustu helgi komu hingað til
bæjarins með Drotningunni frá Kaup-
mannahöfn magister Aage Flatau og
ungfrú Sahra Fjeldgaard, sem bæði
eru mjög þekt í Danmörku fyrir
dansleikni sína. Ætla þau að dvelja
um mánaðartima bjer á landi, lengst
af í Reykjavík, og sýna listir sínar.
„Fálkinn" þekkir að vísu lítið til
þeirra, en ummæli stórblaðanna í
Kaupmannahöfn um dans þeirra eru
hin prýðilegustu, svo að ælla má aS
það sje ómaksins vert að sjá þau
dansa og það því fremur þegar litið
er til þess hve okkur hjer heima
gefst örsjaldan kostur á að sjá list-
dans.
Um dans ungfrúarinnar kemst Ber-
lingske Tidende þannig að orði:
------- NÝJA BlÓ. --------------
Heifta.
Ljómandi l'alleg amerísk kvik-
mynd frá FOX fjelaginu gerð
eftir hinni heimsfrægu sögu ineð
sama nafni eftir:
JOHANNNE SPYRI.
ASalhÍútverkið, Heiðu, leikur
undrabarnið
SHIRLEY TEMPLE
Sagan um Heiðu hefur hlotið
hjer iniklar vinsældir í þýðingu
frú Laufeyjar Vilhjálmsdóttur og
aldrei hefir leiksnild Shirley
Temple verið aðdáanlegri en í
þessu hlutverki.
Án efa er Shirley litla Temple
einn af allra mest dáðu leikurunum
í heimi. Og ef til vill hafa hæfileik-
ar hennar aldrei betur notið sín en i
Heiffu, sem Nýja Bíó sýnir nú um
helgina. Kvikmyndin HeiSa er bygð
á samnefndri sögu eftir kvenrithöf-
undinn Johanne Spyri. Hefir frú
Laufey Vilhjálmsdóttir þýtt hana á
íslensku, og sagan fengið fjölda les-
enda hjer heima, og hlotið miklar
vinsældir. Mun alla er lesið hafa
söguna fýsa að sjá þessa kvikmynd,
þegar aSalhlutverkið er í höndum
Shirley Temple, sem gerir HeiSu
alveg ógleymanlega með leik sínum.
„Einkenni Sahra Fjeldgaard er hinn
frábæri ljettleiki og hinar „músik-
ölsku“ hreyfingar. Maður hrífst af
hinum yndislegu hreyfingum. . . .
Yfir dansi hennar hvílir skáldleg
snilli og yndisþokki, en það eru eig-
inleikar, sem hver dansmær fær ekki
hrósað sjer af....“ — Aage Flatau
er mentaður maSur, sem hefir kenn-
arapróf í ensku, uppeldisfræði og
leikfimi. Hann þykir afburða góður
steppdansari. Á sýningunum, er þau
halda, gefast góð tækifæri til þess,
ekki einungis að sjá góðan listdans,
heldur og mikla fjölbreytni á þessu
sviði. Munu þau dansa hina ólík-
ustu dansa, bæði klassiska ballett-
dansa og nýtísku jazz-stepp-dansa.
Blað eitt í Höfn spurði ungfrú
Fjeldgaard þeirrar spurningar: Um
hvað hugsar dansarinn? ,,Ekkert,“
sagði hún, „tilveran er honum dans,
hann veit ekkert annað, tjáning hans
er ekki fólgin í orðum heldur í
lireyfingum. Líf hans er að gera
þessar hreyfingar sinar hlýðnar við
fegurðina."
„Manndráparafjelagið“ lieitir fje-
lagsskapúr einn í Englandi og er
skipaður mönnum, sem þykir gaman
að heyja einvígi. í Ameríku hafa
flugmenn stofnað fjelag, sem lieitir
„Flugfjelag afanna". Inntökuskilyrði
eru þau að maður hafi stýrt flugvjel
í svo eða svo marga klukkutíma og
að maður eigi að minsta kosti eitt
barnabarn. Elsti meðlimurinn er 81
árs og tók flugpróf nýlega,