Fálkinn


Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 5

Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 um heimfararleyfi yrði hann að neita þeim, þvi að þeir væri honum svo kærir. — Og i hvert sinn sem þeir ympruðu á þessu á ný, þá eyddi Kublai khan því. Loks gerðist óvæntur atburður, sem olli því, að orðið gat úr ferðinni. Ljenskonungurinn í Persíu, Argon khan, hafði mist uppá- halds konu sína og hafði liún í eftirlátnu brjefi grátbænt hann um, að taka sjer ekki drotn- ingu, er ekki væri af hennar ætt. En hún var ættuð austan frá Peking. Argon khan sendi því þrjá menn austur til þess að velja sjer drotningu og var nú valin ung kona og frið handa Persakonungi. Um sama leyti var Marco Polo kominn úr langri sjófex-ð til Auslur-Ind- lands, i erindum Kublai khan. Sendimennirnir frjettu þetta og hver kunnáttumaður Marco Polo væri í siglingum. Þeir höfðu nú verið þrjú ár i ferð- inni og vildu nú fara að kom- ast heim og fóru nú á fund Marco og spurðu hann hvort hann vildi flytja þá sjóleiðis til Persíu. Þeir kváðu þá leiðina fljótlegri og ódýrari, og miklu þægilegri fyrir ungu brúðina. Stórklianinn átti bágt með að neita þeim um þetta og ljet und- an. Hann fjekk nú Feneyingun- um umboð til samninga við páf- ann og konunga Frakklands og Spánar fyrir sína hönd. Svo fengu þeir gulltöflu með árit- aðri skipun um að Feneying- arnir dg samferðafólk þeirra skyldu njóta allra lilunninda og hjálpar, hvar sem þeir væri um riki lians. Nú var ferðbúinn floti fjórtán skipa með yfir 1250 manna á- höfn og vistum til tveggja ára, og sigldi hann frá Kína 1292. Margt gerðist mótdrægt á leið- inni, sótt, ofviðri og skipatjón og í Austur-Indlandi varð flot- inn að bíða í marga mánuði eftir hagstæðu leiði. Eftir átján ínánaða ferðalag var loks kom- ið i liöfn í Persaflóá. Þá voru tveir persnesku sendimannanna dauðir og 600 manns af áhöfn- inni, en Feneyingarnir þrír komust heilu og höldnu á á- kvörðunarstaðinn með brúð- ina. En Argon khan var þá dauður. Brúðurinni, sem var aðeins 17 ára, hefir víst verið lítill harmur að því; hún fjekk Kasan son hans i staðinn, sem nú var orðinn konungur Persa. Feneyingarnir hvildu sig níu mánuði í Tebris, höfuðborg Persa eftir volkið og hjeldu nú heim landleiðis, um Armeníu og Litlu-Asíu með öll auðæfi sín og komust heim heilu og höldnu. Einn góðan veðurdag haustið 1295 var barið að dyr- um i höll Polos í Feneyjum. Þegar dyravörðurinn opnaði liurðina sá liann fjóra menn all lijákátlega, tærða og veður- barða, i ljótum og tötralegum austurlandabúningum. Hund- arnir geltu að þeim og glefs- uðu í þá; þeir töluðu ítölskuna bjagaða og með annarlegum hreim. Þetta voru Marco Polo, Nicolo faðir hans og Maffeo föður- bróðir hans, sem nú voru komn- ir heim eftir 24 ára útivist. Þeir nefndu nöfn sín — en dyra- vörðurinn virtist ekki við þau kannast. Þeir urðu að heita of- beldi til þess að komast inn í sitt eigið hús. Þar liittu þeir ó- kunnugt heimilisfólk og fjar- læga ættingja, sem eins og allir aðrir Feneyjabúar lijeldu, að Polo-frændurnir væru dauðir fyrir löngu. Fólkið hjelt að þetta væri svikahrappar og tók þeim hið versta. Þeir leigðu þá annað hús, skreyttu það fagurlega og gerðu ættingjum sínum víðsvegar úr hæniun gestaboð mikið. Þar komu þeir fram í fótsiðum káp- um úr purpurarauðu silki, fínna og þykkara en fólk hafði nokkurntíma sjeð áður. Þegar gestirnir höfðu sest til borðs og fengið handlaug, hurfu þeir frændur en komu brátt aftur, klæddir dýrlegum Asíukyrtlum úr skarlatsrauðu damaski. Með- an matast var skáru þeir fyrstu silkiklæðin í ijjötlur og skiftu þeim milli þjónanna, Enn hurfu þeir Polo-frændur og komu nú inn i karmosínrauðum flauels- klæðum, en nú var damask- klæðunum úthlutað meðal gest- anna. Og síðan fóru flauels- klæðin sömu leið, en þeir frænd- ur klæddust Feneyjabúningi. Þegar borð voru upp tekin sóttu þeir gömlu ræflana, sem þeir höfðu komið í til Feneyja. Sprettu þeir þeim sundur og hrundu þá ógrynni af allskonar gimsteinum og perlum á borðið. Þeir höfðu saumað þessa fjár- sjóði i fataræflana til þess að leyna þeim á leiðinni. Gestirnir voru agndofa af undrun. Nú efaðist enginn um það lengur, að þessir menn væri þeir sem þeir sögðust vera. Og þegar sagan af gestaboðinu barst um borgina urðu þeir aust urfararnir aðal umtalsefni manna og fengu mikiar virðing- ar. Maffeo varð háttsetlur em- hættismaður í lýðveldinu. Nico- lo og Marco tóku við verslun sinni aftur og sífeld ös manna var hjá þeim, því allir þurftu að spyrja um undur og riki Asiu. Sjerstaklega varð Marco vin- sæll í borginni. Hann þreyttist aldrei á að segja frá auði Kín- verja og hinum ótrúlegu tekj- lim keisarans og varð altaf að nota orðið miljón til þess að gefa hugmynd um þetta, svo að hann fjekk viðurnefnið „millione“. Og húsið sem þeir feðgar settust að í, var kallað „Corte del Millione“. Það er nú ekki til lengur, en menn vita hvar það stóð og gamlar mynd- ir eru til af þvi. Þarna ríktu nú Polo-herrarn- ir, vinsælir, virtir og voldugir, en þá bar nokkuð við, sem Marco mátti þykja ógæfa en varð eftirtímanum til ómetan- legs gagns. Á miðöldum og endurfæðing- aröldinni var sífeld togstreita um völdin milii kaupmensku- lýðveldanna i Veneziu og Gen- ova, því báðir vildu ráða í Mið- jarðarhafi. Áttu þau í sífeldum styrjöldum. Sumarið 1298 liöfðu Feneyingar rænt þremur Gen- ova-skipum við Grikkland. Gen- ovamenn sendu óvígan flota í Adríahaf til þess að taka hefnd- ir og urðu Feneyingar að senda flota sinn óviðbúinn á móti. Var eitt skipanna undir stjórn Marco Polo. Lenti flotunum saman við Jortsjula-ey hjá Dal- matíuströnd og sigruðu Genova- menn og söktu flestum Feneyja- skipunum, þar á meðal skipi Marco Polo. Hann var fiuttur til Genova ásamt 7000 öðrum föngum og settur í fangelsi. Nicolo gamli reyndi að leysa hann út, en því var hafnað. En það leið ekki á löngu þang- að til Marco varð kunnur í Genova. Helstu horgarar heim- sóttu hann í fangelsinu og komu þvi til vegar, að liann fjekk góða aðbúð. Menn veittu sög- um hans frá Asíu athygli og honum var leyft að fá minnis- hlöð sín til sín í fangelsið, frá Feneyjum. Svo vildi til, að i klefa með Marco Polo var mað- ur frá Pisa, Messer Rusticano. Hann var duglegur skrifari og nú setti hann á pergament frá- sagnir Marcos frá Austurlönd- um. Eftir tæpt ár samdist frið- ur milli Feneyja og Genova og liöfðu borgirnar skifti á föng- um. Þá var stóra bókin fullgerð og gat Marco haft hana með sjer til Feneyja. Rit Marco Polo fjekk nafnið „Bókin um ríki Austurlanda og undur þeirra.“ Er liún i þrem- ur deildum. Innan skamms voru orðnar til margar afskriftir af henni og hafa 84 handritin varðveist til þessa dags, mörg með athugasemdum og leiðrjett- ingum, sem Marco Polo hefir gert sjálfur. Fjölmargar útgáfur liafa líka verið prentaðar af bók- inni. ,í bók þessari er að vísu margt furðulegt“, segir Sven Hedin, sem 600 árum siðar ferð- ast í fótspor Marco Polo, „og maður saknar margs, sem þar ætti að vera. En bók hans er eigi að síður sjóður landfræðis- þekkingar, og flestar upplýs- ingar hans og athuganir liafa verið staðfestar. Líf hans var eins og æfintýri, og hann skipar lieiðurssess meðal landkönnuða allra alda.“ Menn höfðu áður aðeins ó- ljósar hugmyndir um flest þess- ara landa, sem Marco Polo lýsti, og mest af því voru há- biljur einar og furðusagnir. Hann vann það þrekvirki fyrst- ur manna, að lýsa Austur-Asíu fyrir Evrópumönnum eins og hún í raun og veru er. Hann eyddi mörgum tröllasögum en liann gaf aðrar i staðinn, sem líka þóttu tröllauknar þó þær væri raunverulegar. Og hann varð til þess að ýta undir út- fararþrá annara og varð upp- hafsmaður hinna glæsilegu land könnunarferða, sem Portúgal- ar og Spánverjar fóru síðar. Hinrik sæfari, Portugalalcon- ungur, sem varð upphafsmaður könnunarferðanna suður með Afrikuströndum, hafði lesið rit Marco Polos. Og það hafði líka gert Bartolomeus Diaz og Vas- co da Gama, sem fann sjóleið- ina til Indlands. Þegar Colum- bus stýrði skipum sínum vestur, Framh. A hls. 11

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.