Fálkinn - 10.09.1938, Side 7
F Á L K I N N
7
GETULO VARGAS
forseti i Brasiliu hefir átt ónæSis-
samt undanfarið, því að fasistar hafa
verið uppvöðslusamir í landinu. Hjer
á myndinni sjest hann vera að halda
ræðu í útvarp.
Á baðstaðnum Long Beach hefir
fólkið allskonar samkepni sjer til
dægrastyttingar. Þannig var nýlega
samkepni meðal kvenna um það,
hver þeirra liefði gullnast hár. Þess-
ari stúlku var dæmdur sigurinn. Hún
er 17 ára og heitir Lilian Nelson.
HETTUKLÚTURINN
er æfagamalt höfuðfat, sem islenskar
konur hafa ekki afrækt til þessa, en
víða er gengið úr tísku. En nú
liefir hann gengið í endurnýjung
lífdaganna. Meðal annars er hann
mikið notaður af stúlkum sem hjóla
og þykir þægilegri en nokkur hattur
eða húfukolla.
JEAN BATTEN
hin fræga flugkona frá Nýja Sjá-
landi, sem sett hefir ýms flugmet
sjest hjer í viðhafnarbúningi að vera
að fara í áheyrn til Bretakonungs
í Buckingham Palace.
RÚSSNESKUR HAMLET.
Rússneski leikarinn Rafael Adel-
heim er talinn einn besti Hamlet-
leikarinn sem nú er uppi. Myndin er
tekin af honum í þessu hlutverki
á leikhúsi í Moskva.
RÚNINGAMENN
— eða rjettara sagt sauðklippinga,
víðsvegar að úr Englandi og Skot-
landi höfðu nýlega með sjer kapp-
mót í Hyde Park í London og reyndu
sig þar á kindunum i garðinum. Hjer
á myndinni sjest gerðarlegt reyfi af
einni kindinni.
BRYNREIÐADÁTAR.
Áhafnirnar á hinum ensku bryn-
reiðum fá afar nákvæma kenslu og
æfingu í meðferð þessara vígvjela
nútímans, og þess er krafist af
hverjum manni á brynréiðinni, að
liann geti stjórnað brynreiðinni,
skotið og sent loftskeyti, ef með
þarf. Hjer sjest dáti vera að gefa
bendingarmerki frá brynreið sem er
að sækja fram.
PETAIN MARSKÁLKUR,
sigurvegarinn frá Verdun, sjest hjer
á myndinni vera að lialda ræðu á
minningarhátíð í Caen, þar sem nær-
staddir voru 30.000 manns, er höfðu
tekið þátt í heimsstyrjöldinni.
SKJALDBÖKUVEÐHLAUP
er það nýjasta í skemtilífi Ameriku-
manna. Myndin hjer að ofan er frá
slíku veðhlaupi, sem liáð var í Phila-
delphia.
THOMAS MANN,
hinn frægi þýski rithöfundur, sem
nú er í útlegð, var nýlega heiðraður
í New York, í samsæti sem honum
var haldið af nefnd þeirri, sem
greiðir götu þýskra flóttamanna.
Hjer á myndinni sjest blaðritarinn
Dorotliy Thompson afhenda Mann
„hina gullnu bók minninganna.“
BJÖRNINN TEDDY
hefir lært hnefaleik af eiganda sin-
um og ferðuðust þeir um og björn-
inn kepti í hnefaleik við ýmsa kappa.
En svo vildi það til að Teddy slas-
aðist við járnbrautarslys og getur
ekki sýnt sig framar. Eigandinn
krefst 175.000 dollara skaðabóta fyr-
ir björninn.
hafa japanskir hermenn skreytt þetta
Budda-líkneski með hermannahúfu
og einkennisbandi, sem er með á-
letruninni: hervæðing þjóðernisand-
ans.