Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
YNCWW
L£/&HbURNIR
Gömul list endurlífguð.
Þið liafið ef íil vill einhverntíma
heyrt húktalara? Þeir hafa lag á þvi,
að tala þannig, að röddin virðist
koma einhversstaðar úr fjarska en
alls ekki frá húktalaranum sjálfum.
Og mörgum liafa þessir menn gert
hverft við með þessari list sinni.
Fólk heldur máske, að það sjeu
draugar sem tala.
Búktalið er æfagömul trúðlist. —
Ýmsir vísindamenn halda því fram
að æðstuprestarnir í Egypfalandi
hafi verið snjallir búktalarar og hafi
leikið þessa list sína þegar fólk kom
í skurðgoðámusterin. Því að þá heyrð
ust goðin tala. Nú vita menn að
dauðir hlutir úr stokk og steini geta
ekki talað, svo að líklega voru það
æðstu prestarnir, sem höfðu brellur
í frammi og töluðu fyrir munn guð-
anna. __.
Nafnið „búktalari" er í rauninni
villandi, því að vitanlega talar eng-
inn með búknum. Búktalið er í því
fólgið, að geta talað hátt og skýrt
án þess að hreyfa varirnar. Mynd-
irnar hjer að ofan sýna frægasta
núlifandi búktalara i heimi, norska
Ameríkumanninn Edgar Bergen og
hina frægu leikbrúðu hans, sem geng
ur úndir nafninu Charlie McCarthy.
Þessir fjelagar sýna sig á fjölleika-
húsum Ameríku og fá of fjár fyrir,
og auk ])ess tala þeir i hverri vilcu
á einni útvarpsstöðinni i Bandaríkj-
unum. Einnig hefir verið gerð kvik-
mynd þar sem Edgar Bergen og leik-
brúða lians hafa stór hlutverk með
höndum. Kvikmyndin heitir ,,'Góld-
wyn Follies“ og verður eflaust sýnd
á öðruhvoru kvikmyndahúsinu í
Keykjavik i vetur.
Efst á 'myndinni sjáið þið þrjár
teikningar af brúðunni Charlie Mc-
Carthy. Takið eftir, hve andlitssvip-
ur brúðunnar er breytilegur. Neðst
til vinstri sjáið þið vjelaútbúnaðinn
í brúðunni. Hausinn er laus og má
snúa honum sitt á hvað með kefli,
sem gengur ofan í maga brúðunni.
Og með þvi að taka í þræði má
láta brúðuna opna munninn og rang-
hvolfa augunum. Á myndinni í miðju
að neðan sjest þverskurður af brúðu-
hausnum. Þið sjáið að kjálkarnir á
brúðunni eru á hjörum (A). en
fjöðurin (B) heldur munninum sam-
an. Ef stutt er á C hreyfast kjálkarn-
ir. Hálsinn er að framan úr togleðri,
sem hreyfist um leið og kjálkarnir,
þegar brúðan talar. Til hægri sjest
Bergen með brúðu sína í þeim stell-
ingum, sem að jafnaði sjást á leik-
sviðinu. Bergen situr með brúðuna
í fanginu, svo að hann á hægt með
að stjórna öllum hreyfingum hennar
með hægri hendinni, án þess að á-
horfendur taki eftir því.
Fangar lamafólksins,
framhaldssaga með myndum.
11 kapítuli: Flóttinn.
31. „Taktu nú vel eftir,“ hvíslaði
John áfram. „Ef við eigum að geta
sloppið lijeðan þá verðum við að
gera það með skyndiáhlaupi. Beinl
fyrir aftan liásætið 'hjerna er hurð,
með slagbrandi fyrir utan; þessi
hurð er í hálfa gátt núna — jeg sá
það áðan, þegar jeg kom inn í sal-
inn og dragsúgurinn bærði vegg-
tjöldin. Eftir þvi sem jeg best get
sjeð gengur þessi lnirð út í langan
gang, sem liggur út í forgarðinn rjett
við jarðgöngin gegnum klettinn. Við
verðum að beita ofbeldi við varð-
mennina — hjá því verður ekki kom-
ist og svo verðum við að treysta því,
að við getum hlaupið fljótar en þess-
ir menn í síðu skikkjunum sínum.
Jeg reyni að smokra mjer úr þessu
rykkilíni sem jeg er í, undir eins og
jeg kem fram i ganginn.
John stóð upp til þess að faðma
föður sinn. Faðir hans stóð líka upp.
Tvent í tjaldlegu.
Það er vitanlega nauðsynlegt að
hafa hreint loft þegar maður liggur
í tjaldi. Mynd 1 sýnir hvernig hægt
er að gera „glugga“ á tjaldið með
hægu móti. Maður hýr sjer til spýtu
með sýlingum í báðum endum og
setur liana þversum efst i tjald-
dyrnar og reimar svo saman fyrir
neðan.
Mynd 2 sýnir dálitið, sem hver
útilegumaður verður að múna. Það
er einskonar þröskuldur úr horð-
renningi eða kviatum, sem varnar
því, að fólk beri með sjer óhrein-
indi inn í tjaldið þegar blautt er um.
Hún: — Er þetta mikilsvert hlut-
verk„ sem þú hefir i leiknum?
Hann: —: Nei, það er iiðru nær.
Jeg er eiginmaðurinn.
PRINS LOUIS FERDINAND
elsti sonur þýska krónpr'insins fyr-
verandi, kvæntist nýlega Kyru dótt-
ur Cyrills stórfursta af Rússlandi
og hjelt Vilhjálmur gamli i Doorn
veisluna. Sjást brúðlijónin lijer á
myndinni, ferðbúin í brúðkaups-
ferðina.
MARCO POLO.
Framh. af bls. 5.
var erindið það, að komasl
lcringum hnöttinn, til ríkja stór-
khansins, finna leiðina sem
Magellaes fann. Þannig varð
það Mareo Polo, sem varð hraut
ryðjandi hinnar glæsilegu ald-
ar i sögu hvitra manna, serii
kölluð er Landkönnunaröldin.
2. Og augnabliki síðar stóðu þeir
í faðmlögum. Dr. Madigan hvíslaði
að John: „Þessi ráðagerð er vísl
betri en þjer dettur í hug sjálfum,
drengur minn! Þegar jeg var leiddur
inn hingað um dyrnar sá jeg að for-
garðurinn að dómsalnum var troð-
fullur . af mönnum, vopnuðum og
óvopnuðum, og þessvegna er senni-
legt að músterisgarðurinn sje nærri
mannlaus. Og jeg vona, að varðmenn-
irnir þrír úr jarðgöngunum hafi látið
ginnast inn í hinn forgarðinn af for-
vitni. Hann klappaði John á öxlina
og lagðist á knje aftur, en John
hvíslaði: „Nú ætla jeg að halda dá-
litla ræðu fyrir ])jer, svo að fólkið
haldi, að jeg sje að segja skilið við
þig og áfellist þig þunglega. Vertu
viðbúinn að koma hlaupandi á eftir
mjer þegar jeg segi: „Nú“!
Dr. Madigan kinkaði kolli — og
John tók lil máls með hárrí röddu!
33. Það fór ánægjulegur kliður um
allan mannsöfnuðinn, því að nú voru
allir sannfærðir um, að Johri væri
fallinn frá því að verja föðúr sinn.
En alt í einu kallaði John orðið, sem
aftalað liafði verið og eins og kólfi
væri skotið þutu þeir feðgarnir bak
við hásætið, út um litlu, sterku hurð-
ina og skutu slagbrandinum fyrir að
utan. í flughasti fleygði John af
sjer viðhafnarbúningnum og stóð nú
í stuttbuxum og skyrtu. Madigan
varð að hlaupa með hundnar hend-
urnar fyrsta kastið. Fólkið í dóm-
salnum sat um stund eins o'g steini
lostið, en siðan kvað við óp og öskur
og alt var i uppnámi.
Komast nú vinir okkar óá-
reittir gegnúm musterisgarð-
inn eða verða nýir örðug-
leikar á vegi þeirra? Það
frjettist i næsta hlaði.
Tóta fræhka.
» o-'ia. © ••'n.. ©-»«h. ••"«► •-'«*•••■«*. ©■••**•••■••*••**»►
DREKKIÐ E 5 I L 5 - 0 L
^•-fc.-o-,nu.-o