Fálkinn - 17.09.1938, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
GAMLA BlO
Eiouni við að dansa?
Ný dansmynd með dansparinu
GINGER ROGERS og
Fred Astaire.
Það er lífsgleðin sem heldur inn-
reið sína í borgina, þann dag,
sem þessi mynd byrjar. Engin
af þeim myndum, sem áður hefir
verið sýnd með þessu danspari
getur jafnast á við þessa
mynd sem kemur.
Gamla Bíó sýnir bróðum fjöruga
<lans- og söngvamynd, sem heitir
Eiffum við að dansa? Höfuðlilutverk-
in eru leikin af tveimur heimsfræg-
um leikurum, sem næstum hver kvik-
myndavinur hjer á landi þekkir,
þeim Fred Astaire og Ginger Rogers.
Fyrsti liluti myndarinnar gerist í
París, annar um borð í skemtiferða-
skipinu „Queen Anne“, sem er á
leið yfir Atlantsbafið, frá Evrópu
til Ameríku, en síðasti kaflinn gerist
í borg skýrjúfanna, New York.
--------Rússneski balletdansarinn
Petrov (Fred Astaire), sem í raun
og veru er nú rjettur og sljettur
Peter P. Peters frá Massachusetts,
er að leggja af stað frá París til
Ameríku með flokk balletdansara,
sem sýna á list sína á Metropolitan
('iperunni í New York.
Um borð i „Queen Anne“ er Linda
Keene ( Ginger Rogers), falleg og
töfrandi „revy“stjarna, sem Petrov
verður mjög ástfanginn af. Þau kynn-
ast og alt lítur vel út með framliald-
ið. En alt í einu verður slúður og
blaðagreinar, sem spunnið er upp af
stúlku einni, er unnað hefir Petrov,
en ekki fengið ást sína endurgoldnu,
til þess að stía Petrov og Lindu í
sundur.
Linda, sem heldur að Petrov eigi
sökina á þessu slúðri, verður ofsa-
reið, og flýr burtu af skipinu, í póst-
flugvjel, svo að hún þurfi ekki að
vera nálægt Petrov.
Eftir nokkurn aðskilnað liaga ör-
lögin því nú þannig til að þau finn-
ast í heimsborginni — og sá fund-
ur hefur auðvitað eitthvað sögulegt
í för með sjer. —
Kvikmyndin Eiffiim við að dansa
er að vísu ekki efnismikil, en hún
er skemtileg, iðandi af söng og dansi.
Svíar ráðgera, i sambandi við það,
að þeir eru að ljúka við að raf-
magna norður-járnbrautina frá Stokk
hólmi alla leið til Boden, að fá sjer
sterkari dráttarvagna en áður, er
geti ekið með 120 kílómetra hraða
á klukkustund. Núverandi hraðlest
ir þeirra komast 100—105 kílómetra
og i Danmörku heldur minna. En
i Noregi er hámarkshraði járnbrauta
ekki nema 65 kílómetrar, enda eru
sporin bugðóttari og mishæðir meiri
þar.
Sjerci Ásgeir Ásgeirsson próf. að
Hvammi í Dölum, verður 60 ára
22. /jessa mánaðar.
Halldór Jónsson, fyrrum bóndi
að Hrauntúni verður 60 ára 23.
þessa mánaðar.
BRÓÐIR BENES.
Maðurinn lijer á myndinni er hús-
gagnasmiður frá Milwauke í Banda-
ríkjunum og heitir John Benes. Er
hann nýlega farinn í skemtiferð til
Evrópu, m. a. til að sjá bróður sinn,
sem hann hefir ekki sjeð í nær fim-
tíu ár. Sá bróðir er Edoard Benes,
forseti Tjekkoslovaka.
ÍTALÍUKONUNGUR
gerði sjer nýlega ferð til þess að
skoða æskustöðvar Mussolini. Hjer
sjest konungurinn i dyrunum á
bernskuheimili Mussolinis i Predapio.
Sjúkrahúslæknir einn í London
kvað liafa fundið meðal gegn sykur-
sýki, sem dugir betur en insulin.
Vinnur hann þetta efni úr lax og
silungi.
í ánni Petsjora í Síberíu hefir
veiðst gerðarlegur lax, merktur á
bakuggann með merki dýrafræðings
eins í Oslo. Leiðin sem liann liefir
farið er talin um 4500 kilómetrar.
----- NÝJA BlÓ. —
Styrjöld yfirvofandi.
(Fire over England).
Gunnar Einarsson fyrv.
varð 85 ára II. þ.
kaupm.
m.
Söguleg stórmynd frá „United
Artists" gerð undir stjórn Erich
Pommer. Myndin gerist 1587 þeg-
ar England og Spánn börðust
um yfirráðin í Evrópu.
Aðalhlutverkin leika:
FLORA ROBSON
(Drotning Elisabet).
RAYMOND MASSIíY
Filippus Spánarkonungur).
LESLIE BANKS
(Jarlinn af Leicester).
o. m. fl.
Nýja Bíó sýnir núna alveg á næst-
unni stórfenglega sögulega kvikmynd
frá „United Artists" undir nafninu
Styrjöld yfirvofandi.
Myndin gerist á siðari hluta 16.
aldar, þegar baráttan um völd stend-
ur sem liæst milli Spánverja og Eng-
lendinga, er lýkur með sigri hinna
síðarnefndu, þegar floti Filippusar
II. Spánarkonungs (flotinn ósigrandi)
býður ósigur fyrir Englendingum.
Með þeirri orustu, er háð var 1588,
er spanska heimsveldið heillum horf-
ið, cn valdasól Englendinga rennur
upp, er skinið liefir skært síðan, i
liálfa fjórðu öld.
Höfuðpersónur kvikmyndarinnar,
söguleg stórmenni, eru leikin af á-
gætum teikurum, eins og ætla má,
þar sem Englendingar hafa lagl metn-
að sinn í að gera hana sem best úr
garði. Elisabet Englandsdrotning er
leikin af Flora Robson, Filippus
Spánarkonungur af Raymond Massey,
en jarlinn af Leicester af Leslie
Banks.
— Árið 1587. Spánn er voldugasta
ríki jarðarinnar. Þar ríkir Filippus
II. með hárðri hendi, sem allir
stjórnmálamenn álfunnar óttast. All-
ir standa og sitja eins og hann vill
nema ríkisstjórnandi Englands, Elísa-
bet drotning, mágkona hans.
Enskir sjógarpar gerðu spánversk-
um kaupförum mikinn óskunda, er
þau voru að flytja gull og gersemar
frá nýlendunum í Ameriku, og rændu
þau oft. En fyrir ránsfeng þennan
kemur Elísabet sjer upp ftota.
Tit sögunnar kemur ungur, glæsi-
legur maður, Micliael Ingolby. Hann
er mjög ástfanginn af einni af liirð-
meyjuin Elisabetar. Hún heitir Cynth-
ia og er dóttur dóttir Burleighs lá-
varðar, sem ásamt jarlinum af Lei-
cester er helsli ráðgjafi drotningar.
Michael þessi ratar í mörg æfin-
týri. Hann er tekinn tit fanga af Spán-
Framh. á hls. 15.
<J
erðbréfabankin
£/uistuvstY\ 5 símt 5652. Opið kU1-12oq5-
9
Kaupir: Hlutabrjef Eimskipaf jelagsins og Útvegsbankans.
Selur: Veðdeildarbrjef og kreppulánabrjef.