Fálkinn - 17.09.1938, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
wm
» * m - WKl
//,«> * * v vnK
í"Jmm
| >%X <t. o\ '.^jKgA
I 13
f®:íí4%»5.?«i2a
PH..Í •<í
g•
;í*fe-
3 U VíC *%*.
::ÍÍ:í:::?:íí:
**AYr* ?•
:
!:;::i;ii.ÆÆ™íí
M|
lljil
mmm
WWm
Z*+ >■*
%*W&W
»■*# *£<i
NÝR HATTUR
FRÁ FRÚ SCHIAPARELLI.
Hiiin kunni tískuhöfundur frú
Schiapartdli cr fræg fyrir aS láta
sjer detta margt skrítið í liug, og
færa hugmyndir sínar í þann bún-
ing sem þeim hæfir, svo aS þær
sómi sjer vel þó djarfar sjeu. LítiS
til dæmis á þennan hatt. ÞaS er blek-
bytta með fjöSurstaf í, sem frúin
hefir tekið til fyrirmyndar hatt-
inum. Og hann er alls ekki Ijótur.
FALLEGUR HÁTÍÐAKJÓLL.
Þessi kjóll er með prinsessugerð, úr
hvítu silkikrepi með bláu munstri
og blátt forstykkið. Bolerotreyja fytg-
jr kjólnum.
HVÍTUR LJEREFTSJAKKI,
ÚTSAUMAÐUR.
Myndin sýnir óvenjulega fatlega
gerð á litlum ljereftsjakka, sem læst-
ur er með rennilás, svo að hnapp-
arnir spilli ekki útlitinu. Kraginn
er smáköflóttur.
NÝTÍSKU BAÐKÁPA.
Nú á baðkápan helst að vera
„tailormade“ og lielst úr mislitu og
sterklituðu efni, sem er áberandi í
baðfjörunni. Hjerna sjest fyrirmynd,
saumuð úr stórdeplóttu Shanung,
sem meSal annars tekur frotté-bað-
kápunum gömlu fram að því leyti,
að það fer svo lítið fyrir henni í
baðtöskunni. Og allan þann tíma árs-
ins, sein ekki er notaður til baðvist-
ar, má nota þessa kápu fyrir morgun-
kjól.
SPORTSKÓR FRÁ PARÍS.
Frakkar virðast hafa hug á því
að fara fram úr Bretum, hvað snertir
tilbúning hentugra sumarskóa. Hjer
er ein nýjasta gerðin — úr svíns-
skinni.
RÓSIR í NÝRRI MYND.
Flestir nýju hattarnir i ár virð-
ast gerðir með það fyrir augum
fyrst og fremst, að vekja eftirteki:.
Hjerna er einn: flatur eins og pönnu-
kaka og alsettur rósum að ofan.
RÓSRAUÐ SHANTUNGSFÖT.
Þó að tískan hreytist í sífellu
kemur litli jakkakjóllinn með tvi-
hnepta jakkanum allaf fram á sjón-
arsviðið aftur og verður eflaust með
þvi vinsælasta í ár eins og áður.
Kemur þetta af jiví, að það er hægt
að liaga þessum kjól svo vel hæði
eftir árstíðum, efnahag og vaxtar-
íági.
í SUMARFRÍINU.
Þegar maður þarf að „halda sjer
til“ mestan hluta ársins þykir eins-
konar hvíld í jiví, að slá slöku við
þetta í sumarfríinu og klæða sig
þá eins og manni þykir fyrirhafnar-
minst og lielst vera í fötum, sem
þola illa meðferð. Hjerna er þess-
konar fatnaður: bláar brækur, rauð
peysa og rauð- og bláköflótt kápa.
ÖLDUNGURINN VARÐ AÐ DON
JUAN FYRIR UPPSKURÐINN.
Fyrir tveimur árum fór dr. Jannes
D. Padgett, mesti meinleysismaður,
frá New York til Vínarborgar, þar
sem liann Ijet frægan austurrískan
skurðlækni skera sig upp við kirtla-
veiki.
Fyrir þenna uppskurð varð liann
svo kvensamur, að kona hans hefir
fundið sig knúða til að sækja um
skilnað við hann, og liggur málið
fyrir dómstóli í New Yrk. Hinn kyr-
láti og liljedrægi doktor er orðinn
að óskammfeilnasta Don Juan, segir
hún í ákærunni á hendur honum.
Strax eftir uppskurðinn varð hann
svæsnasti kvennamaður segir vesa-
lings konan sárgröm. Hann er mjög
ástleitinn við yngri vinkonur mínar.
svo að ekki sje nú talað um hvernig
hann hegðar sjer við vinnukonuna.
Einu sinni hrópaði hann hástöfum:
„En hvað stúlkan liefir fallegt hör-
undl“ Og svo á jeg að sætta mig við
þetta. Jeg verð að athlægi, þegar
fólk sjer, hvernig maðurinn minn
liegðar sjer. —
Dr. Padgett neitar því að vera
nokkur Don Juan, en segir, að kon-
an þjáist af afbrýðissemi.
Og nú glímir dómarinn við þá
hugsun, hvort dr. Padgett liafi í
raun og veru breyst svona mikið við
uppskurðinn, og hvort hjúskapar-
striðið mundi hjaðna niður, ef frú
Padgett ljeti líka skera sig upp.
I
0