Fálkinn - 26.11.1938, Page 5
F A L K I N N
5
Oscar Clausen: Frá liðnum dögum II.
Þegar „Þorskurinn“ fórst.
a 11 þegar hann misti föður sinn
og átta ára þegar hann misti
móðurina. Hann fjekk g'óða
mentun hjá hinum lærða bisk-
upi Makari, en að öðru leyti
umgekst hann ljelegt fólk og
varð snemma dulur í skapi og
þýddist illa aðra menn. Hann
varð tortrvgginn og hugði öðr-
um ávalt ilt og varð fjandsam-
legur þeim, sem hann hafði
skifti við. Ágerðist þetta og varð
sálsjúkur eiginleiki. Bojararnir,
sem stjórnuðu meðan liann var
harn börðust í sífellu um völd-
in og beittu hinni mestu grimd,
svo að skólinn var ekki góður.
Ivan varð einmana maður alla
æfi sína og átti engan vin -—
nema böðul sinn, Maluta Skura-
tov.
Óljós grunur um samsæri
varð til þess, að Ivan rjeðist á
borgina Novgorod og heitti þar
hinni mestu grimd. í desember
1569 hjelt liann liði sínu þang-
að. Hann umkringdi horgina,
svo að engum varð undankomu
auðið og brendi alt og bramlaði
i nágrenninu. Svo hófust „refs-
ingarnar.“ — „Lífvörðurinn"
rændi öll ldaustur, batt múnk-
ana og krafðist lausnargjalds
fyrir þá. Síðan var settur rjett-
ur yfir helstu borgurum bæjar-
ins, sem grunaðir voru um svik
við zarinn. Ivan og sonur hans
dæmdu sjálfir. Og á hverjum
degi voru 500—1000 bæjarbúar
leiddir fram og pyntaðir og
drepnir.
Hryðjuverkin voru einn þátt-
urinn i stjórnarstarfi Ivans, en
sjálfur leið hann miklar sam-
viskukvalir. Hanu var myrkfæl-
inn og svo hræddur, að honum
lá stundum við brjálæði. Þeir
sem haim hafði tekið af lífi
og kvalið eltu haim og hreldu
— það var krökt af draugum
kringum hann hvar sem hann
fór! Til þess að friða samvislcu
sína fór liann öfganna á milli,
sumpart lá hann tímunum sam-
an á bæn eða hann svallaði
vikunum saman með skálkum
sinum. Og í timburmönnunum
sendi hann klaustrunum stór-
gjafir fyrir sálu sinni.
Liferni lians var ekki heilsu-
samlegt og 54 ára gamall hafði
hann ofgert sjer svo, að liann
lagðist veikur. 1 veikindunum
hafði hann af fyrir sjer með
því að tefla og skoða gimsteina
sina.
Stjörnuspámönnunum hafði
talist svo til, að hann ætli að
deyja á ákveðnum degi, sem
þeir sögðu honum. Ivan tók
þessu rólega, en hætti því við,
að ef spádómurinn rættist ekki
skyldu stjörnuspámennirnir
hrendir á háli. Það er líka talið
vist, að stjörnuspámennirnir og
Boris Gudonov mágur Ivans
hafi sjeð fyrir þvi, að spádóm-
urinn kom fram. Þeir eitruðu
fyrir Jiann. Og Boris Gudonov
varð eftirmaður lians.
Jakob Havsteen forfaðir Haf-
steinsættarinnar var annar fyrsti
kaupmaður í Hofsós eftir að versl-
unareinokuninni var afljett 1780.
Hann var fjáður maður og keypti
Drangey á uppboðinu þegar jarðir
Hólastóls voru seldar 1802. Hann
hagnýtti sjer fuglatekju eyjarinnar
með miklum dugnaði og gerði út
skip til veiðanna á hverju vori og
græddi drjúgum á þeim útvegi. —
Veturinn eftir að hann hafði
keypt Drangey, ljet hann smíða
skip mikið og fagurt, sem var nefnt
„Þorskurinn" og var það bæði há-
siglt og vel búið að seglum. Skip
þetta smíðaði Þorsteinn bóndi Ara-
son á Höfða, sem var talinn besti
skipasmiður, en formaður á þvi var
Jón nokkur Jónsson frá Brekkukoti
í Óslandshlíð, en hann var vanur
öllum veiðiskap við Drangey. Jón
þessi var uppnefndur „Trúarkollur“
eða oftast i daglegu tali kallaður
„Kollur“. — Hann þótli heldur mik-
ill á lofti og djarffær í sjóferðum
og er það haft til dæmis, að þegar
Þorsteinn skipasmiður hafði orð á
því að siglingin á „Þorskinum“ væri
of há og að liana þyrfti að lækka,
sagði Jón Iíollur þetta mestu fjar-
stæðu, því að mastrið væri heldur
lágt ef vel ætti að vera. — Hásetar
Jóns voru sex, alt vaskir menn og
lijelt hann þessu nýja glæsilega skipi
til veiða við Drangey vorið 1803. —
Það var á helginni næstu fyrir
Jónsmessu að Reykstrendingar komu
fram i Drangey og var með þeim
kona, er Helga hjet, sem ætlaði sjer
að komast austur yfir Skagafjörð,
með Höfðslrendingum, úr eyjunui
til lands, til læss að heimsækja
Ivan hafði stórfeld framfara-
áform um viðreisn landsins inn
á við og aukin viðskifti út á við.
Það er vafalaust, að liann var
í mörgu á undan sinum tíma
og sjálfur var hann vel ment-
aður, þvi að hann hafði átt
góðan læriföður þar sem Makari
biskup hinn lærði var.
Og sú grimd, sem hann liafði
i frammi var svo algeng á hans
tímum. Rauðatorgið í Moskva
slóð jafnvel að haki ýmsum
öðrum stöðum hvað liana snerti.
Það má minnast á blóðbaðið í
Stokkhólmi og Bartliolomeus-
nóttina, athæfis Hinriks VIII.
Englakonungs og fleira til sam-
anburðar.
Rússar sjálfir kölluðu Ivan
aldrei hinn ægilega. Þeir köll-
uðu hann grozny — sterkan
mann. Og með þjóðdnni mynd-
uðust mörg kvæði um atorku
lians og baráttu við liöfðingj-
ana. í vesturevrópeiskum mál-
um er ekki til orð sem svarar
að fullu til grozny svo að það
var þýtt með orðinu ægilegur
eða grilmnur.
Og pjesarnir sem sögðu frá
svívirðingum lians voru ekki
lilutlausir heldur skrifaðir i
pólitískum tilgangi af óvinum
lians, sem liöfðu flúið land, t.
d. Kurbski fursta og Þjóðverj-
unum Taulie og Krause.
bróður sinn, Svein bónda á Háleggs-
stöðum. Hún varð því að dvelja með
vermönnum nokkra daga i Drangey
og biða eftir þvi að ferð fjelli, en
það var siður að fara til lands um
helgar, með vikuveiðina, þegar legið
var við í eyjunni. — Helga af
Höfðaströndinni hafði falað far með
Jóni, sem kallaður var „Grímseyjar-
formaður", sem nú var að veiðum
við Drangey, þegar hann færi til
lands á næstu helgi, en ekki fór hún
samt með honum og lágu þar ein-
kennileg atvik að, eins og sagt mun
verða frá síðar. —
Á fimtudag, sem var dagurinn
fyrir Jónsmessu, livesti á vestan,
svo að tvö skipanna sem voru í
Drangey tóku leiðið og hjeldu til
Höfðastrandar, en áður höfðu menn
flutt fuglafleka sína i varið austur
af eyjunni og verið þar við fugla-
veiðar. Formenn á þessum skipum
voru Þorsteinn bóndi á Vatni og Er-
lendur í Hólakoti. — Vermennirnir
í Drangey höfðust við í kofum eða
byrgjum, sem Jjeir hlóðu í urðinni
undir eyjunni, en Jjennan dag allan
var Jón Kollur oe fjelagar hans í
byrgi sínu og sungu þá oftast sama
lagið: „Mörg er hryðja o. s. frv.,
enda voru þar saman komnir margir
hestu söngmenn, eins og t. d. Sels-
ness-Guðmundur og Sæmundur frá
Bakka. — Einn formannanna var
Jón Guðmundsson frá Grindum og
fór Helga nú til hans og bað hann
að flytja sig til lands og lofaði liann
því, en ekki fór hún heldur með
honum. Á Jónsmessumorgun iygndi
vel, en kastaði þó jeli. Fóru þá allir
Austlendingar þ. e. Höfðstrendingar
út í niðurstöður sinar og bjuggust
til íandferðar. Jón á Grindum skyldi
Jón son sinn, sem þá var unglingur,
eftir í fjörunni lijá Helgu og áttu
þau að bera úr byrginu niður i
flæðarmál meðan hann vitjaði nið-
urstöðu sinnar. Þá kom Jón „Koll-
ur“ þar að fjörunni, á „Þorsk“, og
liljóp Helga upp í hjá honum og
þótti það undarlegt tiltæki, þar sem
hún hafði falað far hjá 2 öðrum,
en aldrei ætlað sjer með Jóni „Koll“
og þótti þarna sannast gamla orð-
tækið: „Ekki verður feigum forðað".
Skipin hjeldu svo hvert af öðru
til lands, því að leiði var ágætt upp
á Höfðaströndina og ekki livassara
en það, að róið var undir til þess
að skerpa gánginn. Jón Grímseyjar-
formaður var fyrstur og sá hann til
tveggja skipa á eftir sjer og gátu
liásetar hans sjer til, að annað þeirra
væri „Þorskurinn“, því að sigling
þess bar svo hátt upp. Þegar Jón yar
kominn svo nálægt landi, að opin
var Bæjarvík, voru skipin á miðju
sundi milli eyjar og lands, en þegar
þeir lentu við Bæjarklelta niður
undan Bæ á Höfðaströnd, tók einn
háseti Jóns, Vigfús nokkur frá Garðs-
horni, eftir því, að segl annars
skipsins livarf snögglega. Þeir hjeldu
að seglbúnaður skipsins hefði bilað
og sáu cklci seglið koma upp aftur,
en smali, sem var yfir kindum fra
Bæ sagði frá þvi, að hann hefði
sjeð þústu eða rekald reka norður
og inn fjörðinn. —
Hitt skipið lenti í Þönglaskálavör,
en á þvi var Jón nokkur Grintólfs-
son formaður, þá orðinn gamall og
hrumur. Einn háseta hans var Sig-
urður Jónsson frá Á á Höfðaströnd.
Hann var „sundurgerðarmaður, skap
bráður og gambraði mikið“. Það
þótti afar kynlegt, að Jón Grímólfs-
scn eða hásetar hans, skyldu ekki
hafa tekið eftir, eða vitáð um hvað
varð Jóni „Koll“ að liftjóni, þvi að
þarna fórst hann með öllum háset-
um sínum ásamt Helgu, á Drang-
eyjarsundi. Um þetta var svo miki'Ö
talað, að nærri lá að rannsókn væri
hafin, en sagt var að þar hafi Jakob
Havsteen tekið út yfir, vegna Sig-
urðar frá Á, sem hafði verið í þjón-
ustu ltans og honum var vel til. —
Jón gantli Grímólfsson sagðist hafa
sest undir ár til þess að hita sjer
og þvi hafi hann ekki gefið skipi
Jóns „Kolls“ auga, en þá hefði Sig-
urður verið undir stjórn á meðan
og þóttist hann ekkert hafa sjeð til
„Þorsksins“. Það furðaði alla, þar
sem skipin höfðu lagt samsíða fra
eyjunni og fylgst að upp á mitt
sundið.
Einn hásetanna á skipi Jóns Grím-
ólfssonar var Eyjólfur, sem kallaður
var „heyrnarlausi", en liann var
bæði skilgóður og sannorður maður.
Hann sagði síðar frá því, að hann
hefði sjeð tvo menn á kjölnum og
sagt Sigurði frá því, en hann haíi
þá hótað að gefa sjer á kjaftinn með
hnallinum, ef hann vildi vera að
ljúga. — Þó að Sigurður væri frakk-
ur og mikill á lofti, var það á allra
vitorði, að hann var þegar á reyndi,
sjóhrædd skræfa og var það þvi
álit manna, að hægt hefði verið að
bjarga einhverju af mönnunum á
„Þorsk“, i ekki meira veðri en þá
var, ef hugleysi Sigurðar hefði ekki
verið um að kenna. -—
Skömmu áður hafði það líka kom-
ið fyrir, að þeir Sigurður og Jón
„kollur“ liöfðu lent í deilu, i fjör-
unni í Drangey og þessvegna báru
þeir, sem voru Sigurði illviljaðir,
það út, að henn hefði jafnvel af
ásettu ráð siglt á „Þorskinn“, en
þetta mun hafa verið einber upp-
spuni eins og saga sú er komst á lofi,
að Jón „kollur“ og Sigurður hefðu
átt að veðja um hvert skipanna
sigldi betur og yrði fljótara til
lands í þetta skifti. Hitt er hins-
vegar víst að enginn gat eða vildi
gefa nokkra skýringu á því, hvernig
þetta slys hafði borið að og svo fjell
þetta mál i þögn. •—
Skipið „Þorskur“ rak svo mann-
laust, sama daginn undir Búðabrekk-
um sunnan á Þórðarhöfða, með
nærri öllum farangri og höfðu fugla-
kippurnar flækst um þófturnar.
Skipið var að mestu óskaddað nema
hvað lítið gat var á kinnungnum og
svo hafði mastrið brotnað þegar það
kendi gruns. „Þorsk“ var svo róið
inn í Hofsós um kvöldið og þar
var gjört við liann og lækkað á hon-
um mastrið og var Jón á Grindum
lengi formaður á lionum eftir þetta.
Það var haustið 1804, eða hálfu
öðru ári eftir að Jón „Kollur“ fórst
á „Þorsk“, að Jón Hallsteinsson
smiður reri ásamt öðrum formönn-
um, undan Bæjarklettum á Höfða-
strönd. Hann lá þá með hásetum sín-
um í hurðarlausri skemmu, sem var
á hlaðinu i Bæ og var þá Gisli Kon-
ráðsson sagnaritari einn háseta hans.
Þá var það heila viku, að Jón kvart-
aði um það, að svipir Jóns „Kolls“ og
liáseta hans væru á kvöldin að sveima
kringum báthró silt á klettunum, og
bað Gísli hann þá að sýna sjer þetta.
Jón reyndi tvisvar eða ])risvar að
sýna Gisla þessa drauga, en aldrei
sá Gisli neitt og sagðist Jón vera
hissa á því hve óskygn hann væi i.
7— Svo reru þeir viku seinna í
góðu veðri, fram á mið, sem kallað
er Kerlingarbrún og lögðu lóð sína
þar, en þegar farið var að draga
þótti þeim lóðin nokkuð þung, og
kom þá upp mannslík, liöfuðlaust
og handalaust og var svo mikill ó-
þefur af því, að varla var hægt að
þola hann. Gísli kallaði þó að besl
væri að skera á öngultauminn og
hleypa þessu hiður aftúr, en það
vildi Jón með engu móti og svo
varð Gísli að innbyrða líkið með
honum, en hinir, sem á voru, feng-
Frnmh. á bls. 13.