Fálkinn - 03.12.1938, Side 1
16 síður 4D aura
Úr
álögum.
Það er svo um hverja myna
skáldsins mikla í Hnitbjörgum,
sem „yrkir í leir“, eins og Bjarni
Jónsson frá Vogi komst að orði
forðum, að þar er jafnan mik-
ið efni. .Einstöku mönnum finst
það of mikið, finst það vera eins
og þungt kvæði eftir annað
skáld, sem líka heitir Einar og
er Benediktsson. Það er margt
skylt með þeim nöfnunum og
hæði eru góð. Að öllum öðrum
ólöstuðum, mun íslensk þjóð þó
viðurkenna, hjer um bil einróma
að í þeim tveimur birtist orðið
og myndin á þann fegursta liátt,
sem til þessa liefir gerst á ís-
landi. Fálkinn birtir að þessu
sinni eina af hinum nýrri mynd-
um Einars Jónssönar. „Úr álög-
um“ heitir hún. Þar sjest vernd-
urvætturinn með skjöldinn, sem
baktjald þessarar ungu og nýju
manneskju, sem rís upp úr
gjörningahamnum er liggur fyr-
ir neðan. Og hinn sterki skapari
alls góðs, sem á bak við er,
styður broddi sverðsins á háls
ófreskjuhamsins, um leið og
hann heldur skildinum til hlífð-
ar hinni endurfæddu veru, með
hinni hendinni.. Sverðið er í
krossmynd — táikn guðdómsins.
Þjóðsagan um konungsson-
inn í álögum hefir oft verið
sögð. En hefir nokkur sagt hana
betur og fegur en myndhöggv-
arinn í þessari mynd?