Fálkinn - 03.12.1938, Síða 2
2
F Á L K 1 N N
-------- GAMLA BÍO --------------
Þrjár kænar stúlkur.
GulJfalJeg og Jirífandi mynd. —
Aðalhlutverkið leikur Iiin heims-
fræga kvikmyndastjarna:
DEANNA DURBIN.
Mynd þessi var sýnd sem opn-
unarprogram þegar hið fræga
Palladiumleikhús var opnað i
Kaupmannahöfn í fyrra.
Gamla Bíó sýnir næstu daga mynd
ina „Þrjúr kænar stúlknr“ (Tre
smarte Piger), og er liin unga efni-
lega Jeikkona, Deanne Durbin, í
liöfuðhlutverkinu. Með leik sinum i
þessari mynd hefir Durbin getið
sjer liið mesta frægðarorð, svo að
liún er nú talin í hópi hinna fremstu
kvikmyndastjarna.
Þegar hið mikla Palladium kvik-
myndaleikhús opnaði salakynni sín
i fyrra í Kaupmannahöfn, en það
iuun nú vera glæsilegast allra slikra
húsa á Norðurlöndum, þá var Tre
smarte Piger fyrsta myndin, er þar
var sýnd. Gekk hún vikum saman
við gífurlega aðsókn, er vart á sinn
líka.
— Frú Dorothy Craig hefir búið
i Suður.Frakklandi í tíu ár ásamt
þrem ungum dætrum sínum, Kay,
Joan og Penny (Deanne Durbin).
Hún hefir skilið við mann sinn,
Judson Craig bankastjóra í New
"Vork, sem er maður vellauðugur.
í blaði einu sjá þær mæðgur
að búist er við giftingu hans og
fallegrar leikkonu, Donna Lyons, —
og systurnar sjá að móður þeirra
er alt annað en vel við þetta og að
ennþá elskar hún mann sinn. Og
nú leggja þær upp til Ameríku allar
þrjár til að eyðileggja áform föður
síns.
Systrunum verður það fljótt full-
komlega ljóst, að Donna Lyons ann
ekki föður þeirra, heldur auði lians,
og þetta styrkir þær i baráttunni
gegn fyrirhugaða hjónabandinu. Og
nú byrjar hún af alefli, glíman milli
systranna þriggja og Donnu Lyons,
ei lætur einskis ófreistað til að
koma þeim úr landi, og stappar
nærri að henni takist það. — En
það eru þó systurnar, sem bera sig-
ur úr býtum að lokum. Og heimilis-
hamingjan verður fjölskyldunni hlið-
holl á ný. — Systurnar þrjár eiga
hver sitt ástaræfintýri i New York,
sem gaman er að fvlgjast með.
„Þrjár kænar stúlkur“ er góð
mynd, sem óliætt er að mæla með.
Kún er skemtileg, en um leið „mor-
ölsk“, því að hún sannar hið forn-
kveðna, að ótrygð og svik fá jafn-
an illan enda.
Áskell Snorrason söngkennari
og söngstjóri Karlakórs Akur-
eyrar, verður 50 ára 5. þ. m.
Suðnr heiðar.
Gunnar M. Magnúss kennari hefir
að maklegleikum getið sjer vinsæld-
ir sem höfundur unglingabóka. Ligg-
ur þegar margt eftir hann og af eldri
bókum hans eru „Brennandi skip“
og „Börnin frá Víðigerði" einna
kunnastar. Nú í liaust hefir sagan
„Suður lieiðar“ verið gefin út á ný,
og þarf engan að kynja það, sem
lesið hefir þessa söguþætti um strák-
ana á Lyngeyri, sem bundust sam-
tökum um, að verða nýtir menn og
láta gott af sjer leiða.
Það sem einkennir þessa sögu-
þætti — þeir mynda samfelda heild
— er einkum næm eftirtektargáfa a
Gísli Magnússon múrarameist-
ari, Brávallagötu 8, verður 75
ára 2. þ. m.
Árni Óla, blaðam. varð 50 ára
2. þ. m.
Til þess að auka öryggið hvað við
kemur bílaumferðinni á þjóðvegun-
um hafa verið gerðar tilraunir með
að mála bílana með fosforlit og þær
hafa gefist vel. Sjálflýsandi bílar
sjást í kílómeters fjarlægð, sem vit-
anlega hefur mikla þýðingu hvað
snertir umferðina.
þvi, sem fyrir augun ber, og djúpur
skilningur á barnalundinni. Og æfin-
týri strákanna á Lyngeyri eru í
sjálfu sjer svo skemtileg, að lesand-
inn hrífst með — sagan fer með
hann með sjer.
Það væri einkennilegur unglingur,
sem ekki þætti gaman að lesa bók-
ina. Og fullorðnir ættu að lesa hana
líka, því að þá mundu þeir skilja
börnin betur.
Frú Ragnheiður Bjarnadóttir,
Bókhlöðustíg 2, verður 65 ára
7. þ. m.
-------- NÝJA BlÓ. --------------
Sigur túnsnilliugsins.
Tilkomumikil tal- og tónlistar-
kvikmýnd er sýnir hugnæma
sögu um ungan listamann. —
Aðalhlutverkin leika:
JACQUELINE FRANCELL o. fl.
FERNAND GRAVEY,
í myndinni syngja Comedian
Harmonists og ítalski tenor-
söngvarinn Tomas Alcaide frá
Scalaoperunni í Milano. Undir-
leikinn annast Symfoniuhljóm-
sveit, undir stjórn þýska tón-
skáldsins Werner Richard Hey-
mann, er samið hefir tónlist
myndarinnar.
Þessi mynd er úm ungan söng-
listamann, sem drlymir fagra drauma
um framtíðina, en á við mikla örð-
ugleika að striða. Það er eins og
óhepnin elti hann. Honum er stöð-
ugt vísað á dyr af sönglagaútgef-
andanum, sem grunar frillu sína
(operettuleikkonu) um að hún beri
alt of hlýjar kendir til tónskáldsins.
Eini geislinn hans í öllu stríðinu
og vonbrigðunum er ung stúlka, er
hefir atvinnu sem söngkona. Hún
reynir altaf af telja i hann kjark.
En að lokum bugast liann og missir
lífsmóðinn. Hann verður viljalaus
flækingur, er reikar milli nætur-
skemtistaða Parísarborgar. En söng-
konan sem er óþreytandi fyrir fórn-
fýsi þá, er ást hennar til tónskálds-
ins skapar, hætlir ekki fyr en lienni
tekst að koma óperettu eftir hann á
framfæri. Hún heitir „Sigur lónsnill-
i, gsins“. Veldur óperettan hinni
mestu hrifningu, svo að tónskáldið
hlýtur að lokum þá frægð, sem hann
hefir lengi dreymt og leitað eftir.
Þó að dapurleg örlög sjeu dregin
upp j þessari mynd með köflum,
þá hvílir þó glaðvær tónn yfir allri
kvikmyndinni og sem söngmynd er
hún alveg frábær oig borin uppi af
ágætustu kröftum, sem völ er á á
þvi sviði. „Sigur tónsnillingsins“ er
áreiðanlega kvikmynd, sem mun
hljóta hjer miklar vinsældir eins og
annarsstaðar þar sem liún hefir ver-
ið sýnd.
„Berlingske Tidende“ segir mn
myndina: „Sigur tónsnillingsins“ er
skemtileg og yndisleg mynd, mjög
hljómþýð og glaðvær — þrátt fyrir
einstaka dökka punkta.“
Byrjað verður að sýna myndina
einhvern næstu daga.
«f» Allt með islenskum sktpnm' «fi
Ólafur Guðmundsson, Kárastíg
7, verður 70 ára k. þ. m.