Fálkinn


Fálkinn - 23.06.1939, Page 5

Fálkinn - 23.06.1939, Page 5
F Á L K I N N i Miljón Hitlermyndir á ári. MaSurinn, sem mest hefir að gera. þegar einhver stórtíðindi gerast i Þýskalandi, er Heinrich Hoffmann ljósmyndasmiður frá Miinchen. Því að hann er ljósmyndasmiður Hitlers og hefir einkaleyfi til að selja af honum myndir í allskonar stelling- um og við allskonar tækifæri. Hefir hann tekið myndir af öllum helstu viðburðum, sem orðið hafa i Þýska- landi síðan Hitler kom til valda og selur þær blöðunum. Hann var einn af fyrstu fylgismönnum Hitlers, en árið 1934 var hann gerður að „ríkisljósmyndara“. Það er talið, að hann selji um miljón myndir af Hitler á hverju ári, og er hann orð- inn stórríkur maður á þessari at- vinnu. 40 miljónir á dag. I ræðu, sem sir John Simon utan- ríkisráðherra Breta hjelt fyrir skömmu i útvarpið, sagði hann m. a. frá því, að enska þjóðin borgaði fast að því tvær miljónir punda til liervarnanna á dag. Glaumbær. Um víða verold. FLJÚGANDI KONUNGUR. Ghazi konungur í Irak er eini þjóð- höfðinginn í heimi, sem stýrir flug- vjelinni sinni sjálfur. Hjer er hann á flugvellinum í Bagdad með nýja hrað- fleyga vjei, sem hann keypti sjer i Englandi. Grunnmynd af bæjarhúsunum i Glaumbæ. a. skemma, b. stofa, c. göntj, d. skrifstofa prests, e. skemma, f. skemma, g. smiðja, h. eldhús, i. búr, k. göng, I. búr, m. mjólkurbúr, n. fjós, o. stofa, p. baðstofa og er henni skifl í þrjú herbergi og eru svefnherbergi sitt í hvorum enda hennar. q. rjett. CAROL RÚMENAKONUNGUR sjest hjer í hátíðabúningi að lialda ræðu í höllinni í Budapest. Fyrir nokkru síðan var ókyrð mikil i landinu út af hinum miklu tilslök- unum í verslunar- og utanríkismál- um, sem Rúmenar hafa gert gagn- vart Þjóðverjum. MEMELHJERAÐ INNLIMAÐ. Bertuleit forseti Memelestjórnar- innar sjest hjer á myndinni, sem var tekin í Berlín, er hann fór þangað til þess að semja við Þjóðverja um innlimun hjeraðsins. bein og óhemju löng, eða 18 m. 90 cm. breið og 1.80 cm. há, og er farið úr þeim til beggja handa inn i hinar ýmsu vistarverur bæjarins. BæjargÖngin iiggja í áttina til Sæ- mundarhliðar og þessvegna var það, sein einn náunginn sagði, er hann var á leið inn göngin: „Hvar kemur maður annars upp í Sæmundarhlið- ina?“ Honum mun hafa fundist göngin nokkuð löng. — Stofur eru stórar i Glaumbæ og yfirleitt bera bæjarhúsin það með sjer, að til þeirra hafi verið stofnað af stór- bónda, er hefir haft mikið um- leikis. — Þar sem bæjarhúsin í Glaumbæ eru einskonar sjerbrigði en slíkt væri til litils sóma fyrir oss íslendinga, ef vjer kynnum ekki betur að meta gjöf þessa en svo, að hætta yrði við verkið i miðjum kliðum, vegna fjárskorts. Það er ekki ný bóla, að erlendir menn verði til þess að vekja ís- lendinga til umhugsunar fyrir því að varðveita það, sem er sjerstætt og merkilegt á þjóðmenningarlega visu. Mark Watson kom auga á gildi bæj- arhúsanna í Glaumhæ fyrir fram- tíðarmenningu íslendinga. Honum jiykir leitt að bæjarhúsunum verði jafnað við jörð og hann telur það illa farið, að ekki varðveitist neitt fyrir ísl. bæjarstíl, er mikils um vert að gert verði við þau og þeim lialdið við, svo sem best má verða. En til þess þarf allmikið fje, sem sennilega mun ekki laust fyrir í hirslum ríkissjóðs. Þangað mun þó eigi þurfa að leita í bili, því að óvænt aðstoð liefir boðist, sem vit- anlega hefir verið þegin með bestu þökkum. Sumarið 1937 var hjer á ferð ungur, ienskur aðalsmaður, Mark Watson. Hann kom einnig hingað til lands síðastliðið sumar og ferð- aðist all mikið, og þá er það, sem hann sjer bæinn i Glaumbæ. Wat- son mun hafa frejgnað að síra Tryggvi Kvaran á Mælifelli hefði eitthvað með bæinn að gera enda var sonur sr. Tryggva fylgd- armaður hans. — Þessvegna skrifar hann honum og býðst til að leggja fje af mörkum til þess að gera við bæinn, ef þvi verði komið við. Matthías Þórðarson fornmenja- vörður fjekk brjef þetta síðan í hendur og svaraði hann Watson og vitskýrði fyrir lionum ýmislegt, er við kom bæjarlvúsunum. Skörnmu síðar skrifaði Watson á ný og sendi þá 100 sterlingspund. Nú nýverið hefir hann aftur gefið jatn liáa upp- hæð, svo að alls hefir liann þegai lagt af mörkum til viðgerðar á bæjarhúsunum í Glaumbæ lidtt á fimta þúsund krónur. — Fyrir at- beina fornmenjavarðar liefir rikis- sjóður og síra Tryggvi á Mælifelli iátið bæinn af hendi, en þeir vóru eigendur hans. Nú i sumar verður gert við bæinn fyrir þetta fje, að svo miklu leyti sem tími vinst til. Ekki er enn vitað, hvort peningar þessir nægja til fullnaðar viðgerðar á hænum, af hinum gömlu bæjum. Til þess að koma í veg fyrir að svo megi verða, hefir hann lagt af mörkum myndar- legan skerf, sem honum mun seint fullþakkaður. — íslendingum hefir um ieið verið gefin rjettlát áminn- ing um að vernda betur sínar forn- menjar en nú er gert og ættu þeir að taka hana með þökkum, og bæta í þessum efnum ráð sitt svo um munaði. Lifið eftir dauðann. Flestum trúarbrögðum er það sameiginlegt, að fólk trúir á annað líf. En samkvæmt reynslu stofnun- ar einnar í Englandi eru ]ió margir blendnir í trúnni þar i landi. Stofn- unin sendi fjölda fólks fyrirspurn um, hvort það tryði á lifið eftir dauðann og svöruðu 49% já, en 33% nei, en 18% svöruðu, að þeir hefði ekki myndað sjer neina skoð- un á málinu. Af þeim, sem kváðu sig trúa á annað líf, voru flestir komnir yfir fimtugt; það voru 53% af fimtugu fólki og þar yfir, sem svaraði játandi, en 47% af fólki frá 30 til 49 ára og 42% af fólki 20—29 ára. BRÚÐKAUP í KAIRO. Shahpur Mohamed Riza, krónprins i Iran, sem er 19 ára gamall, kvæntist í mars Fawziu, systur Franks Egypta- konungs. Hún er 18 ára. Sutherlandsfossinn á Nýja Sjálandi er talinn liæsti foss í heimi. Er 577 metra hár. í Yosemitedal í Cali- fornia eru tveir fossar, annar tæpir 500 metrar og hinn 430 metrar. — Iíalambofoss er hæsti foss Afríku, 420 metrar, en hinn annálaði Victor- iafoss í Zambesifljóti er á hæð við Háafoss í Þjórsárdal. Niagarafossar eru aðeins 50 metra háir og fossarn- ir í Rín, við Schaffhausen, ekki nema rúmir 30 metrar. Konunglegt blóm. Þegar kartöflurnar komu fyrst til Frakklands, fjekkst enginn maður til þess að jeta þær — ýmsir liöfðu nefnilega bragðað þær hráar og þótti skítur til koma. Til þess að auglýsa kartöflurnar bar Lúðvik konungur XVI. kartöflublóm í hnappagatinu við hátíðleg tækifæri. \

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.