Fálkinn - 23.06.1939, Page 7
P Á L K I N N
7
MARY TAVERMAN
leikkonan, sem verið hefir í „svart-
stakka“-flokkinum enska, hefir nú
stefnt formanni flokksins, sir Oswald
Mosley, fyrir að bera út um hana ó-
hróður. Hjer sjest hún í garði Mary
Stuart.
GERALDINA DROTNING
í Albaníu, sem um páskaleytið varð,
eins og kunnugt er, að flýja til
Grikklands, er lalinn fallegasta núlif-
andi drotning i heimi.
MARION DANIELS
ameríkanska dansmœrin, hefir undan-
farið sýnt listir sínar í Cannes í Suð-
ur-Frakklandi. Hitler ljet senda eftir
henni þangað til þess að láta hana
dansa fyrir sig.
SCARLETT O’HARA
heitir aðalpersónan í sögu einni eftir
ensku skáldsöguna Margaret Mitchell.
er heitir „Feykt á burt“. Saga þessi
hefir nú verið kvikmynduð og leikur
enska leikkonan Vivian Leigh aðai-
hlutverkið. Sjest hún hjer á myndinni.
ÞJÓÐVERJAR LEGGJA LAND
UNDIR SIG.
Hjer sjest ein af brynreiðum Þjóð-
verja á leið suður í Tjekkíu. Til
vinstri sjást leyfar af girðingum, sem
reynt liafði verið að hindra för þeirra
með.
Líkamsræktarfjelag enskra kvenna
hafði nýlega fegurðarsamkeppni i
London, og dæmdist þar rjett vera,
að ungfrú Chrystabel Leighton-Porter
frá Birningham væri fallegust af öll-
um stúlkunum, Hún sjest hjerna til
hægri að taka á móti sigurlaununum.
BRÚÐKAUP í KAIRO.
Myndin er af krónprinsinum i Iran
og Fawsiu Egyptalandsprinsessu konu
hans, ásamt Farúk Egyptakonungi.
Krónprinsinn og prinsessan liöfðu
aldrei sjest fyr en þau voru gefin
saman.
Litlu vjelbátarnir með tundurskeytun
um, sem Bretar hafa látið smíða sæg
af undanfarið, eru kallaðir „moskito-
flugur" — og stafar nafnið væntan-
lega af þvi, að „bitið“ þykir slæmt
eftir tundurskeytin, sem þeir senda
frá sjer.
Allar götur í Ítalíu, sem borið hafa
heiti Gyðinga, verða nú skírðar upp.
Þannig hefir gata i Milano, sém hjet
eftir Lazar Zamenhof, verið skírð „Via
Frecce Azzura“, en það er viðhafnar-
heiti á ítölskum sjálfboðaliðum á
Spáni.
SÍAMSKONUNGUR,
sem áður ríkti yfir 14 miljónum
íbúa, en sagði af sjer þegar átti að
fara að rýra völd hans, lifir nú ró-
legu lífi í enska smábænum Bidd-
enden í Kent. Hjer sjást konungs-
hjónin í garðinum sínum.
SKJALDARMEItKI SPÁNAR.
Franco hefir löggilt nýtt skjaldai-
merki fyrir spánska ríkið og sjest
það hjer á myndinni. Örninn mikli
bak við skjöldinn, á að tákna frelsi
það, sem Spánverjar hafa fengið eftir
nær 900 daga borgarastyrjöld.
VöIfN GEGN SPRENGJUNUM.
í London setja menn upp skúra úr
stálþynnum við húsin, til þess að flýja
inn á undan sprengjuárásum. Stál-
þynnurnar eru líkastar bárujárnsplöt-
um.