Fálkinn - 23.06.1939, Blaðsíða 10
10
F Á L K I N N
4
Nr. 553. Adamson í heimsókn á náttíirugripasafni.
S k r í 11 u r.
—- Ó, Leopold — vertu ekki að
káfa þetta á mjer.
Dáti nr. 97 hafði drukkið sig svín-
fullan og var kallaður fyrir höfuðs-
manninn daginn eftir, til þess að
svara til sakar. Kokkurinn hafði
kært hann fyrir að hafa stolið sex
heilflöskum af öli.
Þegar nr. 97 hafði meðgengið
þjófnaðinn og fengið þriggja daga
fangelsi spurði höfuðsmaðurinn:
— Var það gott, þetta öl, nr. 97.
Þjer voruð dauðadrukkinn þegar
vörðurinn fann yður.
— Já, hvort það var gott. Það
var svo dæmalaust lyftandi. Þegar
jeg liafði drukkið fyrstu flöskuna
var jeg bara óbreyttur dáti, en þeg-
ar jeg var búinn með tvær til fanst
mjer jeg vera ofursti. Og þegar jeg
var með þá sjöttu var jeg orðinn
yfirherstjóri, og það var jeg, þegar
jeg sofnaði.
Guðjón er á gangi með vinkonu
sinni. Gamall maður gengur hjá og
horfir lengi á þau, og Guðjón segir
hróðugur:
— Sáuð þjer hvernig öfundin
skein út úr honum?
— Nei, jeg held það hafi verið
reiðin.
— Hvernig dettur yður það í hug?
— Það var hann faðir minn....
— Hvað þarf maður mörg niúl
i eina miljón?
— Hafið þjer ekki gott meðal við
hósta?
— Jú, við höfum mörg meðul, —
hvað á það að vera?
— Kanske jeg eigi að hósta einu
sinni, svo að þjer heyrið hvað helst
á við.
— Heyrðu, Óli. Hversvegna held-
urðu að hann Kain hafi flúið, eftir
að hann drap hann Abel bróður
sinn?
— Skyldi hann ekki hafa verið
hræddur við Jögregluna.
Jón frændi kom í heimsókn og
ÓIi litli, 7 ára, sýnir honum blýants-
mynd, sem liann hefir gert.
— Jeg teiknaði þig og stóra grís-
inn hlið við hlið. Sá, sem er með
hattinn, ]>að ert þú, frændi.
— Hvað á barnið að heita?
—- Þorvaldur, Adolf, Hinrik, Pjet-
ur, Andrjes, Jóhannes, Bárður.
— Æ, komið þjer með meira
vatn, hvíslaði presturinn að með-
hjálparanum.
Alll með islenskum skrpum1 «f>
VNGSVW
U/eNbtffiNIR
Neö ílugujel
aö nazturlagi.
(Framhaldssaga með myndum).
4) „Jón, til hamingju með 16 ára
afmælið“. Mick Jones flugmaður
klapþaði svo fast með tröllauknu
krumlunum sínum á axlir Jóns, að
drengurinn kiknaði i hnjánum.
„Jæja, það var víst í dag, sem jeg
ætlaði að koma þjer á óvart. Komdu
nú með mjer til hans pabba þíns.
5) Góði Smith, hafið þjer nokkuð
á móti því, að jeg bjóði syni yðar
með póstflugvjelinni til Parisar og
aftur til baka í nótt?“ Augu Jóns
ljómuðu af aðdáu:.
6) „Þjer vitið Mick, (svo var flug-
maðurinn allaf nefndur) að jeg er
óhræddur að senda Jón upp í loftið
með yður. En það er annað, sem jeg
er hræddur um, og það er að hann
verði svo hrifinn af að fljúga, að
jeg fái hann ekki til þess að halda
sig við jörðina á eftir.
Hvað verður úr? Lesið um
það i nœsta blaði.
— Það hlýtur að vera raunalegt
fyrir söngkonur að heyra þegar þær
hafa mist röddina.
— Verra er það, þegar hún heyrir
það ekki.
RAFMAGNS-„STOP“-LUKT
Á REIÐHJÓLINU.
A sýnir beygjuna á brems'uhand-
fanginu og að það verður að vera í
sambandi við hjólgrindina. B sýnir
þunnan fjaðurkendan málmhring,
sem er fcstur utan um stýrisstöng-
ina, en undir honum er gúmmí-
ræma sem einangrari. Frá hringn-
um gengur lítið handfang, sem ligg-
ur eins og bremsuhandfangið og
snertir það aðeins, þegar bremsað
er. Frá naglanum, sem feslir hring-
inn, liggur einangrnð leiðsla aftur
að gleri luktarinnar. „Fatning“ per-
unnar á að vera i sambandi við
hylki luktarinnar, þannig að það
verði rafmagnssamband við hjól-
stellið. Gler luktarinnar á að mála að
innanverðu með þunnri, rauðri
málningu. Þegar málningin er orðin
þur á að teikna greinilega stafina
STOP (öfugt)! Þegar bremsað er
roeðan hjólið er á ferð lýsir rauða
afturluktin og sýnir „STOP“.
FLUGVÆNGUR.
Nagíi er rekinn i annan endann á
sivölu priki og þess gælt, að af
honum standi út úr 3—4 cin. Ein-
um metra af seglgarni er vafið upp
á tómt tvinnakefli og fyrri endan-
um fest með smápinna. Tveir smá-
naglar eru reknir í annan enda
keflisins, sín hvorumegin við gatið
og hausarnir teknir af þeim og þess
gætt, að naglarnir standi 1% cm.
úl úr keflinu. Flugvjelavængur er
siðan búinn til úr þunnu blikki. •—
Loks eru búin til tvö göt á vænginn
með hamar og nagla, og eiga þau að
vera nógu stór fyrir naglana i kefl-
isendanum.
Keflið er sett upp á nagla priks-
ins. Þegar þú heldur á prikinu í
annari liendinni og kippir mjög
skarpt í seglgarnið með hinni hend-
inni, flýgur vængurinn upp í loftið
og endar með renniflugi.