Fálkinn - 30.06.1939, Side 7
F Á L K I N N
ELYSEE-HÖLLIN
í París er bústaður forsetans í Frakk-
landi. Þar hefir Leburn forseti átl
heima i næstum sjö ár, og nú var
hann endurkosinn 5. april, svo að
hann situr þar næstu sjö árin, el'
honum endist líf og heilsa.
SIGURSÚLAN FLUTT.
Myndin er af sigursúlunni miklu i
Berlín, sem nú hefir verið flutt frá
Iíönigsplatz og sett upp í Tiergarten
i Berlín.
Meðan á heimssýningunni í New
York stendur, er búist við því að
fjöldi gesta heimsæki Frelsisstyttuna
frægu, við innsiglinguna til borgar-
innar. Þess vegna hefir verið senl
þangað starfsfólk frá Rauðakrossi og
margir ferðamannaleiðbeinendur.
„HRAÐINN“
heitir þetta nýtísku listaverk, og sýnir
nakta konu á vængjuðum hesti.
Listaverk þetta er á samgöngutækja-
deild New Yorksýningarinnar.
FRÁ SHANGHAI.
Japanar hafa flytjanlegar póststofur
á hjólum i Shanghai og viðar i bæj-
um, sem þeir liafa hertekið. Hjer sjást
hermenn fá afgreiðslu á póststofunni.
HLINKA-HERINN
í Slovakíu, sem stofnaður var af hin-
um kaþólska presti og Tjekkahatara
Hlinka, átti sinn þátt í því, að
Slóvakía sagði skilið við Tjekkíu, en
við það glötuðu bæði löndin sjálfstæði.
Þessi uppgötvun, sem menn sjá hjer
a myndinni, er ein af nýjungunum á
sýningunni í Leipzig. Hún er aðallega
fyrir dráttarvjelar til að nota á vot-
lendi eða í lausri mold, en getur líka
komið að haldi í stað keðja, í hálku.
VERDIER KARDÍNÁLI.
Erkibiskupinn í París, Verdier
kardináli, er hjer að bera fram mal
fyrir gamalmenni í St. Denis. Er fá-
tæklingunum gefið að borða á St.
Jósefsmessu.
Á SKÍÐUM í SANDI.
Þessir tveir Arabar hafa aldrei sjeð
snjó. En þeir eru á skíðpum samt —
í eyðimerkursandinum skamt frá
Kairo.
SHIRLEY TEMPLE.
Hún leikur litla prinsessu i nýjustu
myndinni sinni, en kvað sýna nýja
hlið á leikgáfu sinni í þessu hlutverki.
/w /w /**/ /s
Hjer er Slóvakisk stúlka í þjóðbún-
ingi sínum. Hann er jafnan notaður
við öll hátíðleg tækifæri og er mjög
iburðarmikill, eins og af myndinni
má sjá.
HESTUR HNEFAKAPPI.
■Suður í Sidney í Ástraliu hefir
maður nokkur kent hestinum sinum
hnefaleik. Sýna þeir sig opinberlega
og þykir góð skemtun.