Fálkinn


Fálkinn - 30.06.1939, Blaðsíða 10

Fálkinn - 30.06.1939, Blaðsíða 10
10 F Á L K 1 N N Nr. 554. Skeifan er lukkumerki! S k r í 11 u r. Söngkonan, sem vildi ekki aflýsa hljómleikuniim, þó að hán snerist urn öklann. Maður nokkur, sem var með meiðsli í auga, kom tii læknis. -— Hvernig fórstu að meiða þig í augað? spurði læknirinn. — Það var kastað í mig steini. — Hver kastaði honum? — Konan min. Þetta er í fyrsta skifti, sem jeg hefi heyrt frá þvi sagt, að kona hafi hitt, það sem hún iniðaði á. — Já, en hún ætlaði að kasta steininum i köttinn, en til bölfaðrar ólukku stóð jeg fyrir aftan hann. r— Þjer fáið 100 kr. i laun á mánuði tii að byrja með og eftir þrjá mánuði verða þau hækkuð up\) i 150. — — AUright, þá kem jeg eftir þrjá mánuði. — Niels, hvað er hún systir þín gömul? — 27 ára. — Jæja? Hún sagði mjer i gær, að hún væri 20 ára. — Á, — en það stafar vist af þvi, að hún var orðin 7 ára, þegar hún lærði að reikna. Auglýsingamaðurinn: — Þarna er illa farið með auglýsingapláss. Móðirin: Óli, hefurðu nú aftur lent i áflogum og mist tvær framtennur? ÓIi: Nei, jeg hefi ekki mist þær, jeg er með þær hjerna i buxna- vasanum. Stella (sex ára): Pabbi, verður ekki gíraffanum ilt í hálsinum, þeg- ar hann vöknar í fæturna? Faðirinn: Jú, en ekki fyrr en viku seinna. Kennarinn, sem ætlaði að leika a nemandann: — Ef jeg kaupi 3 metra af silki fyrir 5 kr. meterinn, hvað gamall er jeg þá? Nemandinn: 26 ára. Kennarinn (hissa): Hvernig fórstu að vita það? Nemandinn: Jú, það er strákur lieima hjá mjer, sem er hálfbjáni, og hann er 13 ára. Kenslukonan, við smátelpu: — Er það satt, að þú hafir sagt, að jeg væri eins og gömul hæna? — Já. — Það er gott, barnið mitt — það gleður mig að heyra, að þú kannast við sannleikann. VNCifW U/SNbUKNIR Neö ílugujel að næturlagi. (Framhaidssaga með mgndum). Skemtilegar tilraunir. Það er gaman að kanna andlega og líkamlega hæfileika manna. — Hjerna hafið þið tvær tilraunir, sem |.’ið getið framkvæmt sjálf. 7) En þegar Smith sá, hvað Jón varð alt i einu daufur i dálkinn, varð hann viðkvæmnin sjálf. „Jæja, fyrst Mick og þú eruð báðir á móti mjer, verð jeg víst að láta undan. En þú verður strax ;ið fara heim og lesa undir morgundaginn.“ „í kvöld klukkan 9," hrópaði Mick á eftir Jóni, sem þegar var hlaupinn af stað heim. 8) Það var albjart i Croyden, þvi að ljósin frá ljóskastaranum voru mjög sterk. Mick var búinn að hita upp vjelina og ljet hana ganga með fullum snúningshraða, en beið bara eftir að sjer yrði gefið merki um að leggja af stað. Alt í einu blikaði á rafmagnsluktinni og flugvjelin hof sig á loft og hvarf með miklum hávaða út i myrkrið. 9) Jón sat á ferðastól í stýrisrúm- inu, milli Mick og loftskeytamanns- ins. „Nú set jeg sjálfvirka stýrisút- búnaðinn á stað,“ sagði Mick, „og þá þarf jeg ekki að líta eftir vjelinni og get því gefið mjer tíma til að sýna þjer tækin og fræða þig um þau. Taktu nú vel eftir.“ 1/ <b HUr)) Hver er summan af tölunum a páskalambinu? Keppið nú við fje- laga ykkar. Hver er fljótastur að finna rjetta svarið. '6fi : usmi'i — Nei, mamma, en hvað þessi maður er svartur í andlitinu, sagði Óli litli i strætisvagninum. — Já, óli minn, þetta er svertingi. Hann er líka svartur á öllum líkam- anum. — Hvernig getur mamma vitað það, spurði Óli. Búðu út þrjár nálar með pappírs- flöggum. Settu tvær þeirra á borð- plötu með 30 cm. millibili. Haltu hendinni fyrir öðru auganu. Reyndu nú að setja þriðju nálina í beina línu milli hinna. Sje skekkjan ekki meiri, en tveir sentimetrar, er úi- koman ágæt. Stattu 4—5 metra frá fjelaga þin- iim. Lokaðu augunum. Biddu hann að láta ýmsa hluti, svo sem tappa, linifa, viskaleður eða eitthvað ann- að, detta ofan á bók, en þó einn hlut í einu. Segðu jafnóðum til hvaða hlutur hefur dottið. Ef þjer skeikar ekki nema tvö skifti af tiu, er heyrnarskynið í besta lagi. 4

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.