Fálkinn


Fálkinn - 30.06.1939, Síða 14

Fálkinn - 30.06.1939, Síða 14
14 F Á L K 1 N N Oscar Clausen: Frá liðnum dögum XV. Þegar isskipin ensku fðrust. Það er öldungis víst, að á hverju ári fyrra hluta síðustu aldar voru send fleiri og færri seglskip frá Englandi, norður í höf til þess að sækja ís. Englendingar voru þá farnir að nota ísinn við matvæla- geymslu í sumarhitum og jafnvel eitthvað við lækningar. Skip þessi fóru að vorinu beint norður i íshaf, þar sem borgarísjakarnir eru á sveimi alt sumarið og voru þau fylt þar af hreinum og lærum klaka. Það har við, að skip þessi koniu við í einhverri höfn hjer á landi í annari leiðinni, eins og t. d. þegar ísskipið lá undir Grímsey og presturinn þar var um borð og ofsaveður skail á, svo að það slitnaði frá legufærun- um og hrakti vestur fyrir land, en þaðan varð presturinn að fara fóí- gangandi norður i Eyjafjörð og var 3 vikur á ieiðinni. — Það kom lika fyrir, að þessi skip hreptu ofsaveð- ur og fórusl norður í ísnum, en menn björguðust liingað lil lands, eins og nú skal sagt frá. Það var 9. mai 1822, að stórt segt- skip lagðist á Reykjavíkurhöfn. Skipið var írskt og kom norðan úr íshafi hlaðið klaka. Skipverjar sogðu Ivö ensk skip hafa verið þar norður- frá í sömu erindum og voru þau væntanleg til Reykjavíkur, en þessi skip komu aldrei fram, þvi að þau báru bæði bein sin norður i höfum, þó að menn af báðum kæmust á skipsbátunum hingað til lands. Skip þessi voru frá Lundúnum og lijet annað „Hilda“, en skipstjóri þess hjet Richard Teard. Skipið var statt 20 danskar milur norð- austur af íslandi, þegar ]iað lenti í hafís og ofsaveðri, svo að það laskaðist svo og lamdist, að það sökk, en skipverjarnir komust í bát og stýrðu til íslands. Þeir voru 10 i bátnum og gekk ferðin ágætlega, og náðu þeir Vopnafirði 2. maí, eftir 4 sólarhringa hrakninga. Þó að þeir hefðu engar vistir og yrðu að svelta þessa 4 sólarhringa varð ekkert verulegt að neinum þeirra, þrátt fyr- ir talsverða vosbúð og kulda, þó að þeir væru mjög þjakaðir og væru lengi að ná sjer. Sama daginn og Jiessir skipbrots- menn lentu á Vopnafirði, urðu menn, sem voru á selveiðum, varir við 0 menn, sem voru að rangla i fjörunni við Glettingsnes, fyrir sunnan Borg- arfjörð eystra. Þetta voru skipbrots- inenn af hinu skipinu frá Lundún- um. Það skip hjet „The Wear“ og hafði farist í ísnum 28. mars og voru því þessir veslings menn bún- ir að vera rúman mánuð að hrekj- ast á skipsbálnum, þangað til þá skolaði þarna upp undir Glettings- nesið, jiann 29. apríl. — Selveiði- mennirnir tóku þá nú og fluttu þá inn í Borgarfjörð og þar var þeim skift niður á 3 bestu bæina i sveit- inni og lijúkrað þar eftir bestu föng- um. — Daginn eftir sendi svo hrepp- stjórinn i Borgarfirði hraðboða til sýslumannsins, sem var Páll Mel- sted og bjó á Ketilsstöðum á Völl- um, og tilkynti honum komu mann- anna, en sýslumaður brá jafnskjótt við og sendi fjórðungslæknirinn til Borgarfjarðar með nauðsynleg með- öl handa þeim, þvi að þeir voru allir, meira og minna, skemdir og skaddaðir af vosbúð og kulda. Gagnvart þessum skipbrotsmönn- um kom Páll Melsted sýslumaður injög drengilega fram og hjálpaði þeim og Ijet hlynna að þeim, sem best mátti verða, en þrautasaga þeirra hefir geymst í brjefi, sem skipstjórinn Thomas Thompson skrifaði sýstumanni. Brjef þetta hefst á ávarpi til yfirvaldsins, sem er svohljóðandi; samkvæmt þýðingu samtímamanns: „Heiðraði herra! Mannlegt eðli hryllir við frásögn um þá fræknustu neyð og þjáningu, sem mannskepnunni er rnögulegt að bera.“ — Síðan segir hann frá því, að skip sitt, sem hafi verið 217 smá- lestir að stærð, hafi heitið „The Wear“, sem liýði „fiskidammurinn", og hafi hann sjálfur átt ya hluta þess. Hann segist hafa látið úr höfn, þann 12. mars og komist norður í ísinn þann 27., en (laginn eftir hafi skipið liðast í sundur og sokkið. — Svo brátt bar þetta slys að, að skip- stjórinn, stýrimaðurinn og 4 háset- ar, sem voru að losa bátinn, fóru allir í kaf með skipinu, ]m að þeim skyti upp síðar og tækist að krafla sig upp á ísinn, en 2 hásetanna sukku með skipinu og drukknuðu. Síðan höfðust þeir við 12 daga Framh. á bls. 15. Hjónin Maryrjet Hinriksdóttir oy Gissnr Guðmnndsson, Mcrkur- yötu 8 Hafnarfirði, eiya yullbrúðkaup 't. júlí. komst í Dómkirkjuna. Meðan á skrúðgöngunni stóð var alt fult al' fólki, þar sem hún fór um. Það mun margra niál er þarna voru, að hjer hafi verið um að ræða sanna kirkjuhátíð, og studdi margt að því að gera daginn hátiðlegan, m. a. hið milda veður og hin inikla al- n. enna þátttaka prestastjettarinnar. .4 sunnudagskvöldið hafði kirkju- málaráðherra hoð í Oddfellowhöll- ir.ni fyrir prestastjettina, og nokkra aðra embættismenn, i tilefni af biskuþsvígslunni. Fór boðið ágætlega fram undir forystu ráðherrans. -— Voru margar ræður fluttar, en sung- ið á milli. Dvöldu gestirnir saman i „eindrægni andans og bandi frið- arins,“ eins og vera bar. Hið nýja skip Eimskipaf j elagsins. Rætt hefir verið um það undan- farin ár á aðalfundum Eimskipa- fjelagsins, að fjelagið Ijeti smíða stórt og hraðskreytt farþega- og fc.rmskip. Snemma í vetur var máli þessu komið svo, að leilað var til- boða í smíði nýs skips hjá 25 skipa- smíðastöðvum i 8 löndum. Fengust 8 tilboð og voru þau frá Stóra-Bret- landi, Hollandi og Danmörku. Lang hagkvæmasta tilboðið var frá skipa- smíðastöð A. S. Burmeister og Wain, og var það rösklega 4 % miljón isl. krónur. Ákveðið hefir verið að tcka þessu tilboði og er gert ráð fyrir að smiði skipsins verði lokið í mars—apríl 1941. Skip þetta á að verða 342 feta langt á þilfari, breidd 46% f. og dýpt 27 fet. Þess má geta til saman- burðar að ,GulIfoss“ og „Goðafoss" (ru 230 fet að lengd, en „Brúarfoss“ og „I)éttifoss“ 237 fet. Gert er ráð fyrir að meðalsiglingarhraði þess á hafi verði 16 milur á vöku. Verður skipið ]>á rúma 2 sólarhringa milli BLINDUR, EN ÞEKTI RÖDDINA. Herdeild ein ensk hjelt árshátið sína fyrir skömmu í London og hittust þar tveir menn, sem ekld höfðu sjest í 28 ár. Annar þeirra var kapteinn, E. A. Pauly að nafni, og misti hann sjónina í gasárás við Festubert í Frakklandi, árið 1915. Reykjavikur og Leith og 1% sólar- liring milli Leith og Kaupmanna- hafnar. Ferð milli Reykjavíkur og ísafjarðar mun t'aka 11 tíma. Á 1. farrými skipsins verður pláss fyrir 114 farþega, á 2. farrými 62 og á 3. farrými 48, eða alls 224 far- þega. Við öll rúm á 1. farrými verða útvarpshlustunartæki og ])ar verða einnig firðtalsáhöld i öllum eins manns herbergjum, en auk þess firð- talsklefar á hverju þilfari, bæði á i. og 2. farrými. Skipið verður yfir- lcitt húið öllum nýtísku þægindum, sem fyrir finnast í fyrsta flokks far- þegaskipum. I lestum skipsins verða frystirúm, þar sem koma má fyrir ca. 750 smál. af flökuðum fiski eða 26.000 skrokk- um af dilkakjöti. Stærð skipsins verður ca. 3.300 brúttó-smálestir. íslendingum er mjög mikil þöi I' á stóru, vönduðu og hraðskreiðu farþegaskipi, ef þeim er það nokkur alvara, að strauinur erlendra ferða- manna aukist hingað til lands. Smiði þessa nýja skips, verður ef- laust mikilvægur hlékkur i þeirri viðleitni, að gera fsland að ferða- man n alandi. Eigi að síður þekti hann undir eins hinn gamla kunningja sinn, á rödd- inni. Pauly segir, að það sje mjög auðvelt, ef maður temji sjer það, því að raddir manna sjeu hver ann- ari ólíkari en útlitið. Allir hafa mis- munandi raddhreim og svo verða áherslur og ýmislegt annað til þess að sjerkenna raddirnar. ■S kr áðgan ga pres I - anna til kirkju. BISKUPSVlGSLAN. Framli. af bls. 3. Þorsteinn Briem á Akranesi og Jósef Jónsson á Setbergi. Vígslunni lauk með því, að biskup- arnir þrír og vígsluvottar lögðu hendur yfir hinn nýja biskup. Gengu ])eir síðan allir til skrúðhúss. En hinn nývígði biskup steig i stól- inn. Hafði hann að texta dæmisögu Jesú um týnda soninn. Að lokínni ræðu Sigurgeirs bisk- ups og sálmasöng fór fram altaris- ganga, og framkvæmdu hana þeir síra Friðrik Friðriksson og síra Friðrik Hallgrimsson. Óliemju mannfjöldi var við- staddur vigsluna, en aðeins litill hluti þeirra, sem vildu vera við,

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.