Fálkinn - 08.09.1939, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
T Nú er jeg hissa!
Jeg sem hjelt, a8 vasaklúturinn
hans Páls væri hvítur, þar til jeg
bar hann saman við borðdúkinn
X-RAD 46/1-50-50
LEVER BROTHERSj PORT SUNLIGHT, LIMITED, ENGLAND.
i.."4D'0.v
Ekkert er hvítara en RADION
hvítt jiegar átt er við þvott-
inn, og það er engin furða þó
RADION geri þvottinn hvítari
en venjuleg sápa og sápuduft
gera, það er vegna þess að
R A D I O N gerir þvottinn
hreinni. Hin sjerstaka súr-
efnis blöndun og sápan í
RADION eyða öllum óhrein-
indum.
Glæpakvendin herða sóknina.
Það eru karlmennirnir, sem fremja
fiesta stórglæpi. í Bretlandi eru átta
sinnum fleiri glæpamenn en glæpa-
kvendi, og þessvegna er lítil hætta
talin stafa af kvenfólkinu. En glæpa-
sjerfræðingar þykjast hafa orðið
þess varir, að nú sje breyting að
verða á þessu. Ekki þó þannig, að
glæpakvendum fjölgi. í fyrra voru
9635 konur dæmdar fyrir glæpi í
Englandi og "Wales, og er það lík
tala og undanfarin ár. En það er
annað sem er að gerast. Þó að af-
brotakvendum fjölgi ekki, eru glæp-
irnir, sem þær fremja sífelt að verða
alvarlegri og fleiri. Þær herða sókn-
ina og eru orðnar djarfari en áður.
Nú er það orðið altítt, að kvenfólk
sljórni glæpafjelögum og fremji inn-
brot, en 'áður var það einkum riðið
við búðarþjófnaði og þvíumlikt. —
Þannig tók lögreglan enska konu
fasta fyrir nokkru, sem játaði á sig
103 innbrotsþjófnaði. Það var heims-
met kvenna í greininni, og þetta
bafði hún afrekað á einu ári. Inn-
brot þriðja til fjórða bvern dag. Alls
hafði liún haft 2500 sterlingspund
upp úr þessu. Önnur hafði leigt sjer
íbúði i flestum hverfum Lundúna-
borgar og geymdi þar það þýfi, sem
var svo sjerkennilegt og auðþekt,
að hættulegt þótti að selja það undir
eins. Hafði lnin sýnt meiri hæfi-
leika til skipulags, en flestir inn-
brotsþjófar, og hagað öllu svo vel,
að hún hafði talsvert upp úr iðju
sinni, þrátt fyrir milcinn húsaleigu-
kostnað.
Hverskonar kvenfólk er það, sem
fremur glæpi? Sjerfræðingarnir hafa
gert ítarlegar rannsóknir á þessu.
Oftast eru það konur, sem hafa lítið
af kvenlegri fegurð og yndisþokka,
og eru ónánægðar með lífið, liafa
liðið skipsbrot í ástum og þvium-
líkt. Ósjálfrátt kemur hefndarliugur
og liatur upp í þessu kvenfólki, ó-
ánægja með þjóðfjelagið, heiminn og
tilveruna. Þær byrja með því að
stela, og ráðast svo smám saman í
verri glæpi.
Önnur tegund glæpakvendanna lif-
ir á gistihúsum, heldur sig í nátt-
klúbbum og öðruni' glaumstöðum.
Þessar konur eru að jafnaði lagleg-
ar. Neyta þær fegurðarinnar til þess
að fleka karlmenn og ræna þá. Þær
eru allar tilfinningalausar og méstu
fantar, eins og verstu bófar í flokki
karlmannanna. Ef þeim tekst ekki
að smokra sjer út úr hættunni, víla
þær ekki fyrir sjer að fremja morð.
Flestar stúlkur af þessu tagi eru
ljóshærðar. Þær hafa ekki samvinnu
eða fjelagsskap við aðrar glæpakon-
ur, en starfa upp á eigin spýtur,
líklega helst af varúð, því að þær
vita sem er, að kvenfólk á bágt með
að þegja yfir leyndarmálum. Iiins-
vegar gera þær stundum fjelag við
karlmann og skifta herfanginu með
lionum.
Iíom heim eftir að hann var grafinn.
Cornetto verkamaður frá Arc-les-
Gray, fimtiu og tveggja ára, hafði
farið i aðra sveit og verið þar í
vinnu í eina vilui. Þegar hann kom
heim aftur var húsið hans tómt,
húsgögn og amboð og auk þess 2000
frankar í peningum horfið. Eftir að
hann fór hafði lík fundist i ánni.
Það dæmdist að vera Cornetto og
var jarðað. Tvö þúsund frankarnir
fóru í útfararkostnað. Cornetto hef-
ir mótmælt þessu!
Happdrætti Háskóla
r
Islands.
Dregið verður í 7. fl. 11. september.
Athupið:
að enn eru eftir á þessu ári
3350 vinningar
að upphæð 726,400 krónur.
Það er enn ekki of seint að kaupa miða.
Sjaldan hlýtnr hikandi happ.
Gagnfræðaskólinn
í Reykjavík
byrjar eins og áður 1. október. Umsóknir um skólavist
næsta vetur verða að koma til mín fyrir 15. september.
Eldri nemendur verða einnig að tilkynna fyrir þann
tíma, hvort þeir halda áfram námi, því að allmargir bíða
eftir sæti, ef það kynni að lcsna. — Heima kl. 7—9 síö-
degis.
INGIMAR JÓNSSON
Vitastíg 8 A. — Sími 3763.
(J
(srðbréfabsxnkin
(^^cistcivstir. á simi 5652.Opió
9
SELUR
KREPPULÁNASJÓÐSBRJEF BÆNDA.
Bæjar- og sveitarfjelaga. Kreppubrjef. Veðdeildarbrjel'.
Skuldabrjef Reykjavíkurbæjar.
VILL KAUPA:
Hlutabrjef Eimskipafjel. Islands h.f. — Hlutabrjef Út-
vegsbanka íslands. — Ennfremur vel trygð skuldabrjef.
— Annast allskonar verðbrjefaviðskifti.
Best er að auglýsa í Fálkanum