Fálkinn - 03.10.1941, Qupperneq 7
F Á L K I N N
7
Til tilbreytingar frd stríðsmyndunum
birtrr Fálkinn nú með ársfjórðungaskift-
unum og við o[j við framvegis „friðsam-
Iegri“ myndir a þessari blaðsiðu: — Hjer
birtast nokkrar myndir frá Danmörku:
Til hægri: Á Kristjánshafnariorgi á
Amager stendur þessi ,,Grœnlandsmynd",
yerð af Svend Ratsack ekki alis fyrir
löngu. í miðju sjest Grænlendingur með
húðkeipinn sinn á háum stöpli, en til
hliðanna fólk við vinnu sínu á landi.
„Foreningen for national Kunst’‘ i Kaup-
mananhöfn lætur sjer hugað um að
minna fólk á listaverk, sem gerð eru af
sögulegum viðburðum í Danmörku, og
heldur árlega sýningar í þeim tilgangi.
Hjer á myndinni að neðan sjest ritari
fjelagsins, Rikard Magnussen oy nokkur
hlutj af hinu fræga málverki Chr. Möl-
steds ,,Orustan í Kögeflóa I. júli 1677“.
Sjest aðmírálsskip Niels Jael, „Christian-
us Quintus" á myndinni.
Vegna árásarhættu verða Danir og Norð-
menn að blinda öl.t Ijós er kvölda tekur
og geta allir skilið hvilík óþægindi það
hlýtur að liafa í för með sjer á dimmum
vetrarkvöldum. Þar sem trjágöng eru
meðfram götum rekur fólk sig á trjen, að
maður ekki minnist á hættuna fyrir öku-
tækin. Til þess að ráiða nokkra bót á
þessu hafa hvitir hringir verið málaðir
á trjáboli og símastaura. Þá grillir maður
fremur i, að eitthvað sje framundan. En
ekki prýðir þetta beykitrjen og hestaka-
staniurnar meðfram strætunum. Sjámynd-
ina uð ofun.
Þrátt fyrír henfámið haldasi i mörgu til-
liti sömu siðir og áður voru í Danmörku.
Hjer á myndinni sjesl æfing úrvalsher-
sveitar Dana, lífvarðarsveitarinnar, og er
konungur þar oft viðstaddur. En hjer á
myndinni er það krónprinsinn sem horf-
ir á. í baksýn sjest Rosenborgarhöllin.