Fálkinn - 20.02.1942, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Myndirnár hjer að ofan eru frá hinum fræga sjóliðaskóla i Dartmouth, teknar um borð á
gömlu æfingaskipi, er heitir ,,Britannia“. 1 mynd sýnir 13—Vh ára drengi lesa blöðin i
lestrarsalnúm. Þeir eiga að verða sjóliðsforingjar. 2. mynd sýnir drengina vera að æfa
sig á að skeyta saman kaðalenda og hnýta hnúta. 3. mynd er af drengjunum þar semi þeir
eru við trjesmiðanám. Loks sýnir 4. mynd borðsatinn, þar sem drengirnir sitja yfir
matnum.
Pólski lierinn í Englandi hafði í vetur sýningu á því,
hvernig hann æfir fallhlífahermenn sina. Var Silcorski
hershöfðingi, forsætisráðherra og æðsti herstjóri þeirra
þar viðstaddur. Á myndinni sjest hvernig byrjendum er
kent að venjast fallhlifunum. Þeir eru látnir kasta sjer
út úr háum turnum með fallhlífarnar opnar. Rússar urðu
fyrstir til að nota þessa aðferð við æfingar, fyrir tíu árum.
Ensku skipasmiðjrnir hafa nóg að gera, þvi að unnið er
dag og nótt á smíðastöðvunum til þess að byggja í skarð-
ið fyrir þau ógrynni, sem sökt hefir verið af skipum,
og gera við biluð skip. Iljer er verið að negla plötur
við kjölinn og síðan taka hnoðvjelarnar við.
Enska kvenliðinu var i fyrstu ætlað að vinna eingöngu
að störfum til aðstoðar hernum og algengri vinnu, en
ekki að neinum hernaðarstörfum. En siriámsaman hafa
þær tekið við ýmsurn þeim störfum er teljasl til beinnu
hernaðarstarfa, svo sem því, að standa vörð við laft-
varnarbyssurnar. Hjer á myndinni er verið að kenna
stúlkum að nota miðunartæki loftvarnarbyssanna.
Myndin er sunnan úr eyðimörkum Libyu, ekki langt frá Tobrouk, af tveimur vjelbyssu-
skyttum, sem liggja i leyni, viðbúnir til aðskjóta á framverði óvinanna.
Hættulegustu vopnin, sem flugvjelarnar geta beitt, eru tundurskeytin. Það er auðveldara
að miða þeim en venjulegum og sprengimagn þeirra er meira en stærstu sprengja. Þessi
skeyti eru einkiim notuð gegn skipum. Það eru einkunv fíeaufort-sprengjuvjelar, sem
nota tundurskeytin, en þœr eru liraðfleygustu sprengjuflugvjelar í heimi.