Fálkinn


Fálkinn - 03.04.1942, Blaðsíða 12

Fálkinn - 03.04.1942, Blaðsíða 12
12 F Á L K I N N Louis Bromfield: AULASTAÐIR Adda bar mat á borð og skaut fram smá setningum, en þannig voru jafnan viðræður bennar við húsmóðurina. Nú sagði liún: „Bókinni gengur víst vel að stækka'?" „Ójá, lienni miðar áfram, hægt og hægt.“ „Hvert eruð þjer komnar?“ „Hjer um bil þangað sem afi hans J. E. lenti i bylnum, þegar hann hafði sex um áttrætt.“ „Þá hlýtur hún að vera langt komin.“ „Já, hún ætti að fara að styttast úr þessu.“ Adda ljest vera að gá að einhverju inni i stóra, gotneska matskápnum, en er hún bafði lokið því sagði hún: „Ivanske verður þessi bók til þess að gera okkur ríkar?“ „Ekki skaltu gera þjer miklar vonir um það, svaraði frúin hlæjandi. „Jeg býst við hún verði eftirmynd Aulastaða — stór og tóm.“ „Hvað ætlið þjer að kalla hana?“ „Jeg er nú alls ekki farin neitt að bugsa um það.“ „Mjer finst einhvernveginn, að „Adlastað- ir“ gæti verið gott nafn á hana.“ Frúin liætti að tyggja. ,Hún hafði enga matarlyst en var að látast borða, til þess að þóknast Öddu. Hún hafði ekki einu sinni hlustað á rausið í gömlu konunni, en samt heyrði hún síðustu orðin gegn um þá þykni áhyggjanna, sem kring um hana var. Adda stóð ennþá hálf inni í skápnum, svo ekki sást af lienni nema breiður bakhlutinn og röddin virtist koma innan úr djúpum skáps- ins, rjett eins og rödd vjefrjettar með til- heyrandi bergmáli. Árum saman hafði frúin verið að velta því fyrir sjer, hvað hún ætti að láta bókina heita, en nú hafði Aadda hitt naglann á höf- uðið í fyrsta höggi. Aulastaðir! Þarna kom rjetta nafnið! Hljómmikið og tilkomumikið nafn, og auk þess eitthvað svo efnisríkt. Innifól í sjer alla sögu ætlarinnar og sam- tiðar hennar, og náði einnig yfir alt hið margbreytilega og sögulega líf á sljettun- um, áður en gaddavírsgirðingarnar komu til sögunnar, þegar Flesjuborg var strjálbygð og opin borg, sem setin var sterkum, hraust- legum mönnum og konum, með lifnaðar- liætti eins og gerðist á landamærasvæðun- um, og samskonar tilhneigingar, þegar engin kvenfjelög voru til og engir fyrirlestrar haldnir, engir griskir veitingasalar voru komnir og engir írskir ofbeldisseggir eins og Dorli gamli. Þessi mynd fortíðarinnár vakti óþægilega tilfinningu, sem líktisl mest heimþrá, hjá frúnni. I einu vetfangi sá hún Flesjuborg, eins og hún bafði verið fyrir næstum fimtíu árum, þegar hún sjálf var fjörug ung stúlka og reið til borgarinnar með al'a sínum, á litlum skjóttum besti, sem kallaður var Djöfsi, niður eftir aðal- götunni, fram hjá drykkjukránum og búð- unum, til þess að binda Djöfsa við hesta- slána fyrir framan Gullhúsið, sem var veit- inga- og danskrá, rekin af föður Gasamaríu. Og á meðan á þessu stóð, var bún altaf að vonast eftir að sjá Lýðs bregða fyrir, úti fyrir skrifstofu Gunnfánans. Já, þá var borgin skemtileg, þótt ekki væri hún líkt þvi eins fín og auðug og nú. í þess stað var hún hreinleg og frumstæð, þar sem hver borgari var frjáls maður og flestir þeirar heiðarlegir. Nei, það var ekki þessi núverandi borg, úr sjer vaxin og glannaleg, undir stjórn Dorta gamla, sem sat þar eins og risakonguló í miðju neti sínu og saug mútur út úr liverri drykkju- krá og pútnahúsi, og stal peningunum, sem áttu að fara í vegabætur og göturæsi. Nei, þessir gömlu timar voru ekki orðnir annað en draumur nú. IJafi eitthvað í þá daga ver- ið ruddalegt, spilt og rangt, þá var það liorfið úr myndinni, sem eftir var i liuga frú Lýðs, nú er hún var orðin 67 ára að aldri. Hún hafði lengi ásett sjer að hefja einskonar krossferð til þess að gera breyt- ingu til batnaðar á borginni og steypa Dorta gamla af stóli. Hana langaði til að stofna landvarnarflokk, eins og afi hennar hafði gert forðum daga, þegar innrásin var sem mest i borgina og liún fyltist af allskonar óþjóðalýð, fjárhættuspilurum, pútum og glæpamönnum af öllu tagi. Nú var borgin orðin næstum eins slæm og þá, og ef til vill verri, af því að glæpirnir og ó- heilindin voru ekki rekin opinberlega eins og þá, heldur leynilega, með undirferli, mút- um og hverskyns spillingu. Og frúin and- varpaði svo þungan, að Adda gamla sagði: „Hvað gengur að yður, frú Lýðs? Þjer haf- ið vist ekki fengið neitt ilt í yður?“ „Nei, Adda mín, það er ekkert.“ Hún sagði ekki Öddu, að andvarpið staf- aði af því, að hún ætti ekki neinn son, stór- an mann, með sterka hnefa, eins og karl- mennirnir í ættum bennar og mannsins liennar sálaða, son, sem hefði getað tekið við Gunnfánanum og liafið krossferð gegn mönnum eins og Dorta gamla, og lamið þá eins og fiska. En liún hafði bara Sjönu Baldvins, sem skrifaði um fína fólkið í blað- ið, og svo Villa gamla frjettaritarann, sem var orðinn gamall, ræfilslegur og úr sjer genginn og átti ekki önnur áhugamál en það cilt að geeta drukkið sig fullan á hverj- um laugardegi, jafnskjótt sem Gunnfáninn var kominn í prentvjelina. En Adda, sem hafði haldið áfram að horfa á húsmóður sína greip nú enn fram i hugs- anir hennar. „Ungfrú Sjana hefir vist sofn- að aftur. Hún ætti að vera komin niður fyr- ir tiu mínútum. Aldrei hef jeg vitað aðra eins svefnpurku, ineð leyfi að segja!“ „Hún er ung, Adda mín. Unga fólkið þarf miklu meiri svefn en við, sem eldri erum. Kanske þú farir og gáir að hvort hún hefir sofnað aftur?“ Adda var komin út að dyrum, þegar hún sneri við aftur. „Hvernig er þetta með hana og strákinn hans Dorta?“ „Ó, ekki neitt, býst jeg við. Hefir þú heyrt nokkuð um það?“ „Það er ekki vandi a ðlieyra um það, hjá hverjum sem er í allri borginni. Þess- vegna er hún svona syfjuð, að hún er altaf á þesu flandri á kvöldin, með þessum hvíta slána.“ „Svona máttu ekki tala, Adda mín.“ „Ja, það er nú svona samt, frú mín, að þeir eru nú aldrei annað en kotungs-Irar og ekki er mjer um það gefið, að góð stúlka eins og Sjana, giftist inn í slíka ætt. Hvað ætli liann afi hennar sálugi segði, ef hann væri ofan moldar? Trúlegast þætti mjer að hann tæki hana og flengdi hana.“ Frú Lýðs andvarpaði. „Tímarnir eru nú orðnir breyttir, Adda mín, og vísl varðar okkur ekki um, hvað hún Sjana gerir eða aðhefst. Og Dortarnir eru ríkir og Kobbi er ekki eins bölvaður og karlinn. Auk þess er hann bráðlaglegur. „Það er heldur ekki það, sem jeg á við. Vist er strákurinn snotur,“ svaraði Adda með einhverju, sem líktist reiði. En það er bara hitt, að þeir eru slæmir menn, feðg- arnir.“ IJún saug upp í nfefið. „Peningar! Hvers virði eru þeir? Að minsta kosti kom- umst við prýðilega af án þeirra. Ekki höf- um við átt túskilding, árum saman!“ Frúna langaði til að reyna að koma því inn i þokulcendan heila öddu, að þær ættu það, sem peningum jafngilti, þar sem voru auglýsingadálkar Gunnfánans, og að jafn- vel þeir yrðu ef til vill ekki eilífir. Blaðið gat hrokkið upp af hvenær sem væri og þá fyndi Adda veslingurinn ef til vill, hvað það væri að standa uppi allslaus. Adda opnaði nú dyrnar og í sama bili kom Sjana Baldvins inn — sú sem skrifaði um fína fólkið í Gunnfánann. Hún var smá vexti og dyrnar, sem voru geysivíðar, gerðu hana ennþá minni. Hún var lagleg stúlka, með gullið hár og blá augu, þrjóskulegan munn og uppbret nef, sem hrukkur komu á, þegar bún hló. Hún var tuttugu og þriggja ára að aldri, en sýndist vera fimm árum yngri, og það varð til þess, að Adda fór ávalt með hana eins og krakka, hálf- þroskaðan að vili. Nú var asi á henni og samviskan hálf bágborin, af því að hún hafði stöðvað vekjaraklukkuna, þegar hún vaknaði fyrst, og sofnað aftur, og hrædd við Öddu, af því að hún var ekki komin, þegar brauðsúpan kom heit út úr bakara- ofninum. „Mjer er óskiljanlegt, hvað að mjer geng- ur,“ sagði liún. „Líklega er það vorið, sem legst svona i mig. En jeg skal ekki koma of seint oftar.“ Adda var nægilega stolt til þess að svara þessu ekki með orðum, lieldur með ein- hverju frísi, sem sagði miklu meira en orð- in, og hún ;gaf frá sjer um leið og hún fór út í eldhúsið til þess að sækja matinn handa sökudólgnum. Ungfrú Sjana gat jetið ein- hver reiðinnar ósköp, ekki stærri en liún var. Þegar Adda var komin út um dyrnar, sagði Sjana: ,Mjer er ekki vel Ijóst, hvaða

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.