Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1942, Síða 12

Fálkinn - 10.04.1942, Síða 12
12 F Á L K 1 N N Louis Bromfield: 3 AULASTAÐIR. af blýöntum og skrifpappír, leit síðan snöggvast í spegilinn og gekk til dyra. Þeg- ar frúin gekk niður eftir óhirta stígnum, sem lá gegnum garðinn, var hún eitthvað svo einkennilega draugaleg til að sjá, og eins var húsið, því að það var rjett eins og tíminn hefði numið staðar þar. Frúin var eins og kvenvera, sem var klædd í fornlcg og slitin fatnað, sem tilheyrði liðna tíman- um, rjett eins og Aulastaðir sjálfir. Ef ekki hefði verið fjörið i augnaráði hennar, hefði ólcunnugir haldið, að hún væri afturganga. En það var líka ótrúlega fjörlegt, lijá konu, sem var 67 ára að aldri, það var augnaráð konu, sem tók eftir öllu, sem fyrir hana har, enda þótt hún hefði aldrei út fy'rir fæð- ingarhorg sína lcomið, nema rjett til allra nálægustu borga, og vissi alt, sem var að vita, um mannlegt líf. Gamla konan var nú að leggja upp i frjettasöfnunarferðina sína, eins og á liverj- um morgni. Fyrir mörgum árum hafði hún skiplagt starf sitt þannig, að fyrri hluta dags heimsótti hún ákveðnar búðir og verzl- unarslaði, en síðdegis heimsótti Sjana aðrar húðir og verslunarstaði, en Villi Frikk fór í járnbrautarstöðvarnar og aðra þvilíka staði af leiðinlegra taginu, alla nema Frank- línsgötu — þangað þýddi ekkert að hleypa Villa. Hún hafði glæpst á því fyrr á tim- um, en það varð til þess, — í tvö skifti af hverjum þremur — að Villi drakk sig full- an og Ijet sig vanta í tvo daga, og þá ætl- aði kona Villa, Marta Frikk, sem var gjald- keri blaðsins, alveg að sleppa sjer og öll skrifstofan komst á öfuga endann i nokkra daga. Franklínsstræti var því bannvara fyr- ir Villa nema eftir klukan sex á laugardags- kvöldum. Þá átti hann með sig sjálfur og enginn skifti sjer af athöfnum hans, með- an þær gátu samrímst hagsmunum hlaðsins. Gamla konan vissi af langri reynslu, hvar frjettir var að finna. Hjá líkkistusmiðun- um fjekk hún að vita um dauðsföll og slys- farir. Höskuldur líkkistusmiður var full- komlega nýtískumaður í sinni grein; hann átti sjálfur ofurlítið líkhús í kirkjugarðin- um; klæddist fínum fötum og kallaði sig mortalista. Annars var ekki annað að hafa i hans búð en kaldranalegar staðreyndirnar. Skrifstofa hans var einskonar hiðstofa dauðans, máluð fjólublá og svört, með dökkgrænni gólfábreiðu og rauðviðar skrif- horði en hak við það sat Höskuldur, og var dökkklæddur, jafnvel þó enginn væri dáinn. Bæði skrifstofan sjálf og öll persóna hans dró kjarkinn úr frúnni. Það var eins og einhver óhugnanlegur þungi lægi á allri stofnuninni, sem ekki einungis nálægði mann dauðanum, heldur gerði hann einnig óþarflega hátíðlegan og vandasaman, líkt og höfðingja-móttöku. Og Höskuldur sjálf- ur hafði sjaldan neinar upplýsingar eða hendingar að gefa. ann var eins og af öðr- um heimi, án nokkurs sambands við sam- borgara sína. Heimsóknir þarna urðu því ávalt stuttar. „Góðan daginn, Höskuldur.“ „Góðan daginn, frú Lýðs.“ Höskuldur útfararstjóri stóð upp og kom á móti frúnni, núandi saman höndum, áð- ur en hann heilsaði. Heilsun lians gerði hana altaf dálitið órólega, því að einhvern- veginn skein út úr köldum, grænum aug- um útfararstjórans, að hann skoðaði hana sem væntanlegt lík. Oftar en einu sinni liafði hún hugsað gremjulega: „Þegar jeg dey, getur hann ekki tekið auglýsinguna sína aftur, þvi Gunnfáninn deyr með mjer. „Nokkuð í frjettum, Höskuldur? „Nei, ekkert síðan við jörðuðum hann Jón heitinn í gær. Gátuð þjer fylgt?“ — Jeg er ekki mikið fyrir jarðarfarir, svaraði frúin og þokaði sjer út að dyrunum. Höskuldur var samt fyi-ri til að ná í hurðarhúninn og opna fyrir henni, því jafn- vel þótt deyjandi hlað eigi í hlut, er betra en ekki að koma i því........ „Þjer megið ekki hugsa þannig um jarð- arfarir, frú. Þetta er ekki annað en að fara gegnum hlið.“ „Það er sjálfsagt rjett hjá yður, Höskuld- ur, en .... (hún vildi ekki segja, að hún kynni ekki við hátíðleika mannsins, sem við hliðið stóð) .... en .... jeg hef nú svo mikið að gera, að jeg vil ekki hugsa svo langt fram í tímann. „Verið þjer nú sælar, frú Lýðs. „Verið þjer nú sælir, Höskuldur. Þegar hún var komin út á götuna, dró hún djúpt andann og sogaði að sjer þetta þurra, hreina loft, sem Flesjuhorg var svo fræg fyrir. Hún stakk blýantinum niður, smelti aftur töskunni og stefndi i næsta stað, sem var útfararstofan hans Jahha Nýborg. Jabbi var á hennar aldri og' lifsskoðun, svo hún kom inn til hans alveg laus við þennan lotningarótta, sem jafnan greip hana í návist Höskulds. Hún hafði líka þekt Jabba síðan hann var strákur. Hann var úr nágrannasveitinni við húgarð föð- ur hennar. En Ilöskuldur var frá Brook- lyn. Verslun Jahha var i þægilegu, gömlu húsi úr rauðum tígulsteini, sem stóð spöl- korn frá sjálfu strætinu, og öðrumegin við það var hesthús, sem liafði að geyma svarla líkvagninn og svörtu vagnhestana. Frú Lýðs kunni þessu vel; henni þótti vænl um, að enn skyldu vera til tveir hestar i heiminum, sem gætu dregið hana síðasta áfangann hjerna megin, þegar til kæmi. Henni gast alls ekki að þeirri tilhugsun að láta þeyta sjer í gröfinu í lík-Buicknum hans Höskuldar. Þegar hún opnaði dyrnar, sat Jahbi og nokkrir kunningjar hans kring um gamla ofninn. Hiti var þar inni og loftið mettað tóhaksreyk og ljettum ilm af líksmurnings- vökva, en einhvernveginn tók aðkomu- maður ekki meira eftir þessum hálfsúra ilm en hann myndi hafa tekið eftir bjór- lyktinni í ölstofu. Þetta heyrði staðnum til, og ekkert við það að athuga. Kunn- ingjarnir vorú flestir á aldur við Jahha, allir yfir sextugt, allir ættaðir úr sveit, og áttu sjer því svipaðar endui-minningar og gamla konan sjálf. Hún þekti þá alla. Þeir voru frá húgörðum Liti á sljettunum, en af því að laugardagur var, voru þeir komnir til horgarinnar í bíltrogunum sínum. Einn þeirra, þverhausinn Samúel Hansson, vildi ekki einu sinni eiga híl, lieldur kom liann í grindavagni, með tveimur skjóttum fyr- ir, og var lireykinn af. Allir lieilsuðu þeir henni, er hún kom inn, og Samúel gamli þejrsti gusu mikla af tóbakslegi í sagdall, sem stóð við ofninn og sagði: „Sæl, Villa min! Altaf liefir þú yngst í livert skifti, sem jeg sje þig.“ Jabbi skipaði Samúel að eftirláta frúnni stólinn sinn, því á þessum stað aflauk frú Lýðs ekki erindi sínu standandi, eins og í himnaríkisbiðstofunni hjá Höskuldi. Iljer sat hún og skrafaði. Hér safnaði hún að sjer frjettum utan úr sveitinni, og bend- ingum um fæðingar, giftingar og jarðar- farir, sem þar voru yfirvofandi, — og þetta var stórt svæði, sem um var að ræða. Hjer tók hún upp pappír og blýant og ritaði með torlæsilegri rithönd safn sitt til sögu hjeraðsins, sem hún elskaði svo heitt. Jabbi Nýhorg var maður feitur — ok- feitur. Þegar hann sat, seig maginn á hon- um fram og hvíldi á hnjánum. Hann stóð ekki upp þegar frúin kom inn, því liann lyfti ekki maganum af hnjánum, nema nauðsyn hæri til. Hann ljet sjer nægja að hrosa og segja: „Jæja, Villa, hvað segirðu í frjettum? „Jeg verst allra frjetta, svaraði frú Lýðs. Samúel gamli rjetti henni Mexíkóvindl- ing, kveikti i hjá henni og sagði: „Nú ætlar dóttir hans Hensa gamla að fara að giftast strálcnum hans Jóa.“ „Hver þeirra?“ „Sú, sem var á hárgreiðsluskólanum.“ „Þá hættir hún víst við hárgreiðsluna og snýr sjer að bleyjunum,“ sagði Jabbi. Pappírinn og blýanturinn komu upp úr gömlu töskunni. „Hvernig gengur það með snepilinn?“ spurði Samúel. „O, sona og sona,“ svaraði frú Lýðs og hamaðist að skrifa. „Það, sem þú þai'ft, er einhver ungur og upprennandi maður, sem getur hjálpað þjer,“ sagði Jahhi. „Aldurinn færist vfir okkur öll, jafnvel þig, Villa mín.“ „Hvar á jeg að ná í þann mann?“ „Reyndu að biðjast fyrir,“ sagði einn kunninginn. „Metódistarnir ætla að fara að halda einhverja stóreflis vakningasam- komu yfir á Litla-Gili. Þú ættir að fara þangað og biðja prestinn að leggja gott orð með þjer.“ Nú kom hver með sína ögnina af frjett- um úr sveitinni og frúin skrifaði alt hjá sjer. Gunnfáninn var gott hjeraðsblað, það flutti altaf nógar frjettir úr sveitinni, og áskrifendurnir hrugðust heldur ekki i

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.