Fálkinn


Fálkinn - 29.05.1942, Blaðsíða 6

Fálkinn - 29.05.1942, Blaðsíða 6
6 F Á L K 1 N N Litla sagan: Per Kellberg: Fyrsta mótlætið. A RVIÐ var ekki nema tólf ára en hann var þegar oröinn skáldhneigður. 1 sumarleyfinu rangl- aði hann oft einn um akra og engi og inn í skógana og kjarrið. Þar naut liann lífsins í fullum mæli og settist þá stundum á stein og orkti langar sonettur um svölurnar, sem þutu á flugi um loftið eins og ör væri skotið, og um blómin, sem lineigðu sig í sumargolunni og lilóu við sólu. Hann var tvímælalaust lýriskt skáld. Hann fjekkst lítið um alvarleg efni, um blóð, tár og ástir og þetta stafaði meðfram af því, að hann hafði ekki að svo stöddu kynst þessu beiska kryddi mann- legrar tilveru. Ásthneigðin var reynsla, sem beið hans er liann kæmist lengra áleiðis á lífsleiðinni, og svo mundi hitt koma í kjölfar ástarinnar. En eins og sakir stóðu voru það svölurnar og blómin, sem heilluðu hann mest. Ennfremur hafði Arvið þann vanda á hendi að vera afmælisdaga- skáld fjölskyldunnar, en þetta taldi hann ekki list heldur handverk, og þar þurfti ekki annað en nota stór orð og íburðarmiklar lýsingar. Arvið skoðaði þetta sem ábatasama frístundavinnu, sjerstaklega þegar amma hans átti i hlut, því þá hrutu stundum til hans krónur, eins og fimmeyringar í klinki. Amma átti einn afmælisdag á ári og hjelt upp á fimm aðra og þessvegna áskotn- aðist Arvið talsvert fje annanhvern mánuð. Eitt var það, sem Arvið hafði sjer- staklega gaman af, og það var að safna jurtum. Þetta var ekki nema eðlilegt um annan eins náttúruvin og hann var. Fyrsta sumarið sem hann hneigðist að þessu var hann öllum stundum úti um engi og skoga, með blikkkassa í ól um öxl- ina og ofurlitið gref i hendinni. Þetta var liið ákjósanlegasta sam- bland gagns og ánægju, því að jafn- framt fræðslunni i jurtafræði knúði þetta starf hans skáldæð hans til aðgerða. Og jafnóðum og jurtasafn hans stækkaði jókst safn hans af náttúruljóðum. Já, þetta var mikið þroskasumar fyrir Arvið litla. Vikuna áður en prófa skyldi Arvið i þekkingu hans á jurtunum, sem hann hafði safnað, lokaði hann sig inni í herberginu sínu á hverju kvöldi og yfirfór safnið sitt hvað eftir annað. Hann var næmur og átti auðvelt með að læra utanað og þegar faðir hans hlýddi honum yfir í siðasta sinn fyrir prófið kom það á daginn, að það var ómögulegt að reka hann í vörðurnar. Svo kappsamur var liann, að honum fór líkt og enska st'jórnmálamanninum, að liann dreymdi nóttina fyrir — ekki að hann ætti að halda ræðu i neðri málstofunni, því að það gat ekki komið fyrir Arvið — heldur að hann væri í sífellu að þylja upp jurtanöfn, og upp úr þessu vaknaði hann og var þá að romsa körfu- blómaættina. Nú var dagurinn og stundin kom- in og Arvid gekk fram fyrir kenn- arann, blóðrjóður í andlitinu. Nú var svo ástatt, að kennarinn hafði af einhverjum ástæðum horn í síðu Arviðs. Það kann að vera að Arvið hafi verið dálítið svörull, en þó var ekki ástæða til að telja liann óróabelg. Og hann kunni lexíurnar sínar altaf vel. En stundum vildi hann koma með skýringar frá eigin brjösti á ýmsum náttúrufyrirbrigð- um og þær skýringar fóru alltaf í þveröfuga átt við skýringar kenn- arans. En liann barðist jafnan fyrir skoðunum sínum eins og hetja, svo að stundum varð kennaranum svarafátt. En þetta kunni náttúru- vísindakennarinn ekki við, heldur sló hann því föstu, að Arvið væri svörull og frakkur strákgepill, sem lialda þyrfti í hemilinn á. — Nú! sagði liann stutt og rjetti fram jurt, en lijelt hendinni um nafnmiðann. -— Hvaða jurt er þetta? — Þetta er ljett spurning hugs- aði Arvið með sjer og óx hugur. Svo sagði hann upphátt: — Það er primula veris! Kennaranum fanst votta fyrir þrjósku í rödd Arvids og hnyklaði augabrúnirnar. Næst tók hann or- kideu og spurði um nafnið, og Arvið svaraði rjett. — Hvar fanstu hana? Um þetta blóm hafði Arvið orkt tvær línur í ljóðabókina sína, það var það eina sein liann mundi. En hann mintist ekkert á það. í stað- inn svaraði hann. — Við tjarnarbakkann. — Rangt! Þessi blóm vaxa ekki við tjarnarbakka. Hefir þú yfirleitt safnað nokkrum af þessum blóm- um sjálfur? — Já, jeg liefi tínt hvert einasta af þessum blómum sjálfur, sagði Arvið og lagði áherslu á hverja einustu samstöfu. Hann var bæði reiður og leiður. — Jeg efast um að þú segir það satt! Nú má jeg ekki vera að sinna þjer lengur. Næsti! Arvið stóð þarna eins og steini lostinn og sagði ekki neitt. Honum fanst eins og liann liefði verið sleg- inn linefahöggi i andlitið og fanst hann ringlaður og geta ekki hugs- að skýrt. Og aðra eins vinnu og hann hafði lagt í jurtasafnið silt! Þetta var ósvifni, sem tók út yfir allan þjófabálk. Þegar hjöllunni var hringt gekk hann snúðugt úl úr kenslustofunni og beint heim, og þegar hann kom heim lagðist hann upp i rúm og fór að hágráta, sum- part af reiði en þó meira af sorg. hann hafði verið beittur rangindum, í fyrsta slcifti á æfi sinni. Frá þessum degi stafar lcvæði Arviðs, „Lífsleiði“ — fyrsta kvæðið sem kom á prent eftir hann. Flugherinn en lykill að sigrinum. Mikilverðasta einstaka staðreynd- in, sem komið hefir fram i þessu stríði er sú, að völdin á hafinu eru nú ekki komin undir orustuskipun- um lengur. Yfirráðin í lofti eru yfirráðin á sjónum. Ef við viðurkennum þessa stað- reynd og högum olckur eftir henni, þá höfum við í höndunum lykilinn að því að vinna stríðið, þvi að við erum eina þjóðin, sem getur smiðað loftflota, sem yfirgnæfir loftflota annara þjóða. Á einum stuttum mánuði í stríð- inu í Kyrraliafinu sáum vjer stór- kostlegri eyðileggingu herskipa, en nokkurntíma hefir orðið i sögu sjó- liernaðar. Fleiri stórskipum var sökt en í orustunni við Jótland. forðum, en það er stærsta sjóor- usta síðari tíma. Og það voru flug- vjelar, sem óttu mestan þóttinn i Kyrraliafsorustunum. Sennilega liefir um fimtungur allra lierskipa á sjónum verið gerð- ur óvígur um stundarsakir eða fyr- ir fult og alt — af flugvjelum. Ekk- ert hefir gerst jafn stórkostlegt i sjóhernaði siðan herskipið Merri- mac sigldi til Hampton Roads 8. mars 18G2 og sökti skipunum Cum- berland og Concfress, en þau voru bæði úr timbri. Þjóðverjar lögðu undir sig Noreg 1940 með lítilfjörlegum slcipakosti, fyrir augunum á sterkasta flota heimsins. Undir vernd flughers síns, sem þá var meiri máttar hinum enska tókst Þjóðverjum að flytja þúsundir af herliði yfir Norðursjó. Hinn 12. nóvember sama ár söktu enskar tundurskeytaflugvjelar þrem- ur ítölskum orustuskipum og tveim- ur beitiskipum við Taranto, eða gerðu þau óvíg. Hinn 10. janúar 1941. söktu þýskar og ítalskar flug- vjelar enska beitiskipinu Southamp- ton í austanverðu Miðjarðarhafi og skemdu flugvjelaskipið Illustrious og orustuskipið Malaya. Hinn 27. mai skemdu enskar tundurskeytaflug- vjelar Bismarck svo alvarlega, að liann laut lægra haldi fyrir her- skipum á eftir. Og síðan frjettirnar i Pearl Har- bor og við Malayaskaga, sem enn eru í fersku minni, veit allur her- menskuheimur, að eigi verður um það deilt, að flugvjelar liafi í fullu trje við herskip. Brynreiðar og skriðdrekar geta þvi aðeins gegnt starfi sínu, að þau njóti varnar flughers síns. Öll gagn- rýni Breta á atburðunum við Mala- yaskaga snýst um þá skissu, að flugliðið í Singapore skyldi ekki vera látið aðstoða Prince of Wales og Repulse. Sú staðreynd að flug- herinn fjekk ómæli af missi þessara tveggja skipa, en ekki skipin sjálf, er besta sönnunin fyrir því, að völdin á hafinu eru flutt frá her- skipunum til flugvjelanna. Hvernig verkar þessi gerhylting í sjóhernaði á Bandaríkin? Ættum við að láta liugfallast? Þvert ó móti. Með árangri þeim, sem Japanar liafa nóð með notkun flugvjela, hafa þeir lagt spilin upp í hendurnar á okkur. Því að völdin í loftinu eru okkar styrkur. Engin þjóð jafnast við Amerikumenn í vjeltækni — Japanar allra þjóða síst. Og vjel- fræðikunnáttan er hyrningarsteinn lofthernaðarins. Flugvjelasmiðir okk- ar standast samkepni við færustu stjettarbræður sina meðal annara þjóða. Og stórframleiðsla okkar tekur fram öllu samskonar í ver- öldinni. Með þeim möguleikum, sem við höfum til stórframleiðslu á flugfloti okkar að hafa komist fram úr flugflota Japana órið 1943. En það er ekkLnóg, að floti okkar sje jafn- vígur honum að tölunni til, þvi að Japanar standa betur að vígi land- fræðilega en við. Þeir hafa, ef svo mætti segja, „hundrað ósökkvanleg flugvjelamóðuskip fyrir akkerum“ í vesturhluta Kyrrahafs — Caroline- eyjar og Mariane-eyjar — milli Hawaii og Filippseyja. Það eru þess- ar flugstöðvar öllu frennir en flot- inn, sem hafa gefið Japönum yfir- ráðin í liöfunum austur og suður af Asíu. og við höfum raunalega fá flugvjelamóðurskip til þess að tefla fram gegn hinum ósökþvanlegu flug- völlum Japana. En ef Amerika og Bretland lialda Ástraliu og Indlandi sem herstöðv- um, þá munu yfirburðir okkar í lofti fá að njóta sín, svo að óvin- irnir kenni á þeim. Frá þessum slóðum munum við hrekja þó norður Fjrrsta loftárásin. Fyrstu loftárásir veraldarsögunn- ar voru gerðar fyrir 93 árum, en þá vörpuðu Austurríkismenn þrá faldlega sprengjum yfir Feneyjar úr alt að 4500 feta hæð. Franzj Ucliatius, austurrískur herverkfræð- ingur, hafði gert tilraunir með loft- belgi, sem fyltir voru heitu lofti, sem liitað var frá eldstó, er fest var neðan í þá. Lagði hann til að þessa loftbelgi yrði látið væri látið reka yfir Feneyjar, og skyldi í hverjum loftbelg vera tímavjel, er á tiltelc- inni stundu losaði sprengju úr loft- belgnum. Yfirherstjórnin vísaði þessari 'tillögu á hug, en keisarinn lagði fyrir Ucliatius að koma hug- myndinni í framkvæmd. Gerði Uchatius nú 100 loftbelgi, en tókst ekki að fullgera eldstór nema í 50 þeirra. Fór hann nú með þessar nýju vígvjelar sinar um borð í herskipið Volcano, sendi upp litla tilraunaloftbelgi og flutti sig stað úr stað, þanaað til þeir komust á rjetta staði yfir borgina, og sendi nú upp fyrsta sprengjuloft- belginn. Sprengjan sprakk á stræti, sein fult var af fólki. Komst alt í uppnám við þessa óvænlu árás ofan úr skýjunum. Margt fóllc tróðst und- ir, er það flýði á burt um hin þröngu stræti og brýr borgarinn- ar. Uchatius sendi loftbelgi sina upp dag eftir dag og eyðilegging- arnar fóru sívaxandi, og það var ekki síður eldhættan en sprengjurn- ar, sem unnu tjón. Þvi að belgirnir hitnuðu oft svo mikið, að það kviknaði í þeim og komu þeir þá brennandi til jarðar og kveiktu frá sjer. Feneyjabúum lærðist fljótt, að óráð væri að skjóta á helgina, því að þá hröpuðu þeir og síðari vill- an var verri liinni fyrri. Eyðilögð- ust margar byggingar af eldi, áður en hinir felmtruðu borgarbúar komu ó hjá sjer brunavörnum, sem dugðu. En eigi fórust nema fjórir menn í þessum loftórósum en 26 særðust, þó að árásirnar orkuðu miklu um, að veikja baráttulíug borgarbúa. Sló svo miklum óliug á fólk, að utanborgarmenn þorðu ekki að koma í borgina, og vegna aðflutningaleys- is ló við, að borgarbúar kæmust i svelti, því að allar lífsnauðsynjar varð, að flytja að. Það var að því komið, að Fen- eyjabúar gæfust upp, þegar árás- irnar liættu alt í einú. Höfðingjar í liði Austurrikis, sein litu Uchatius öfundaraugum, fengu þvi framgengt að stjórnin neitaði að láta liann fá fleiri eldstór í loftbelgina 50, sem hann átti eftir. — En undir eins og árásirnar liættu tókst Fen- eyjabúum að rjúfa umsát Austur- ríkismanna. frá Filippseyjum og Fonnosa, norð- ur i lijarta japanska keisaradæmis- ins og lóta þá finna bragðið frá Pearl Harbor heima í sínum eigin liúsagarði. Mahan aðmíráll hjelt því fram, að sú þjóð sem hjeldi yfirráðunum á höfunum, ætti sigurinn vísan. Þetta er alveg jafn satt í dag eins og þegar það var skrifað, árið 1890. Mahan átti vitanlega við orustuskip og beitiskip, er hann talaði um yf- irráðin á hafinu. En núna, eftir at- burðinn á Pearl Harbor eru tundur- skeytavjelar, sprengjuflugvjelar og orusluflugvjelar þau tæki, sem gefa yfirráðin á sjónum. Hjeðan i frá munu þessi tæki verða undirstöðu- vopn alls sjóhernaðar. Orustuskip, beitiskip, tundurspillar og kafbót- ar verða þeim til aðstoðar og upp- fyllingar. Þetta er bylting í sjóhernaðinum. Ef Ameríkumenn færa sjer þetta í nyt þá er oklcur lokasigurinn vis. Strategicus í „Boston GIobe“

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.