Fálkinn - 12.03.1943, Side 2
2
F Á L K I N N
ÓLI SMALADRENGUR
Þessi barnaleikur, sem sýndur
var hjer fyrir mörgum árum hefir
nú verið tekinn til leiks á ný, und-
ir leikstjórn þeirra systranna
Emilíu Borg og Þóru Borg Einars-
son. En leikendurnir eru allir börn
og mikið af dönsum gerir bjart
yfir ieiknum.
Þessi leikur er æfintýri um Óla
smaladreng, sem sofnar inni i skógi
og vaknar aftur við það, að hann
er orðinn konungur i æfintýraríki.
Þar á hann tvær hollvættir að, sem
geta gert sig ósýnilegar, þegar á þarf
að halda, með því að breiða slæðu
eða huliðshjálm yfir höfuð sjer og
þær hjálpa Óla jafnan þegar þörf-
in er mest, svo að honum tekst mæta
vel að gegna konungsstörfunum.
Meira að segja svo vel, að rjetti kon-
ungurinn kýs að iáta hann ráða fram
úr vandamálum, sem fyrir honum
liggja, en auðvitað dettur konung-
inum ekki í hug, að Óli smaladreng-
ur geti það. Þetta fer þó á aðra
leið. Óli ræður svö snildarlega fram
úr vandræðunum að konungurinn
gefur honum dóttur sína i stað þess
að skipa honum að snauta heim.
Enda er Óli vitanlega ógn góður og
vandaður drengur, eins og allir
drengir eiga að vera.
Það er mikið hlegið og mikið
klappað í Iðnó, þegar verið er að
sýna Óla smaiadreng. Þarna eru sem
- sje flestir áhorfendurnir börn, og
sum svo Jítil, að þau verða að
standa uppi á bekkjunum, til þess
að sjá joað sem fram fer. Og svo
klykkir leikurinn út með því, að
allir leikendurnir koma þramm-
andi fram af leiksviðinu og ganga
hringinn i kring um allan áhorfenda-
hópinn, og því þykir krökkunum
nærri því mest gainan að.
Leikurinn stendur ekki nema
klukkutíma, enda voru tvær sýningar
á honum á sunnudaginn var. Og alt
af er meira en nóg af krökkum til
að sjá hann. Jeg er viss um að það
ísTand i myndum
Fyrir nokkrum dögum sendi ísa-
foldarprentsmiðja frá sjer mikið og
vandað safn af myndum frá íslandi.
Hjer er í rauninni ekki um að ræða
aukna og endurbætta útgáfu af Is-
Jands-myndabókinni frá 1938 (sem
endurprentuð var, nokliuð breytt,
árið 1939) lieldur nýja bók, þó að
vitanlega sje þar nokkuð af sömu
myndunum. En nær undantekning-
arlaust eru þessar myndir svo stór-
ar að þær taka yfir lieila síðu bók-
arinnar (stærðin er lík og á for-
síðumyndum Fálkans). Myndavalið
er stórum aukið; m. a. er þarna
mikið af góðum mynduin frá Aust-
fjöiðum, en þær voru fáar í eldri
bókunum. — Bókar þessarar verður
getið nánar síðar.
(V/V/V/V(V
Siysastöð er nauðsynleg.
Hjer í blaðinu er birt tilkynning
frá stjórnarnefnd og forstjóra Land-
spitalans um það, að framvegis taki
spitalinn ekki á móti sjúltlingum
til minniháttar læknisaðgerða, vegna
annríkis læknanna. Verða menn því
að snúa sjer til lælcnanna í bænum
í þeim erindum framvegis. Það er
aðeins þegar um alvarleg slysatil-
felli er að ræða, sem Landspitalinn
veitir sjúklingum móttöku. — Er
orðin brýn þörf á, ,að bærinn komi
upp stöð, sem veitir slösuðu fólki
viðtöku, og þyrfti hún að vera í
miðbænum. I
Þorvaldur Guðjónsson. skipstj., Vest-
mannaeyjum, varð fimtugur 10. þ. m.
er fjöldi, sem ætlar sjer næst, ef
pabbi og mamma vilja .gefa þeim
■fyrir aðgöngumiðanum.
Hjerna sjáið þið nokkrar myndir
úr leiknum. Efst er mynd af Óla
smaladreng, hann liggur sofandi úti
í skógi; en konungurinn og liirð-
menn hans koma að honum. En á
þeirri næstu eru hollvættirnar tvær
á balc. við hann. Á litlu myndinni
sjáið þið vonda bóndann og mein-'
lausa bóndann., sem Óli smaladreng-
ur sættir.
Tóta frænka.
Er miðstöð verðbrjefaviðskiftanna.
handarkrika
CRGAM DEODORANT
stöðvar svitan örugglega
1. Skaðar ekki föt eða kari-
mannaskyrtur. Meiðir
ekki hörtmdið.
2. Þornar samstuntis. Not-
ist undir eins eftir rakstur
3. Stöðvar þegar svita,
næstu 1-3 daga. Eyðir
svitalykt, lieldur handar-
krikunum þurrum.
4. Iireint, hvitt, fitulaust.
ómengað snyrti-krem.
5. Arrid hefir fengið vott
orð alþjóðlegrar livottar-
rannsóknarstofu fyrir þv;
að vera skaðlaust fatnaði
ARRID er svita-
stöivnnarnieðal-
ið.sem selst mest
Reynið dós i dag
ARRID
Fæst í öllum betri búðum
Flugurnar tímgast svo hratt, að
þær geta látið eftir sig tólf ættliði
á einu sumri. Ein fluga getur á þess-
um tíma orðið ættmóðir 100-^-200
miljón flúgna, sem bera sóttkveikj-
ur of óþrif á heimili almennings.
í flestum menningarlöndum er nú
háð barátta gegn flugnaplágunni, en
hjer virðist helst, sem þær sjeu
heiðursborgarar, eins og rottur og
mýs.
Frægir læknar fá oft góðan skild-
ing fyrir verk sín. Þannig er ;■ agt
að enski hálslæknirinn sii; MorelJ
Mackennie hafi fengið 400.000 fyrir
að stunda Friðrik III. keisara, dr.
Lorenz frá Wien fjekk 640.000 kr.
fyrir að lækna mjaðmarskekkju á
dóttur ameríkansks auðkýfings og
annar auðkýfingur bauð dr. James
Gale miljón krónur, ef hann gæti
læknað í honum lömun, en annars
fengi hann ekki neitt. Lækningin tókst
og miljónin var greidd.
í Þýskalandi eru eins og viðar
til söfn, sem geyma á grammófón-
plötum raddir ýmsra höfðingja og
þjóðkunnra söngvara og listamanna.
Elsta grammófónplalan i safninu i
Berlin geymir rödd Lúðvíks annars,
konungs í Bayern. Hann dó, brjál-
aður, árið 1886.