Fálkinn - 03.09.1943, Side 9
stjórninni — örugg hönd á
stýrinu og glögt auga á átta-
vitanum, —- og þá gengur alt
vel.“
AÐ hringsnerist alt fyrir
Tercel, og þetta var ekki
whiskyi Sarkers að kenna.
Hann var farin að verða þreytt-
ur á sjónum, og þessi tillaga
var hýsna freistandi. Að visu
var hann ekki ástfanginn af
Nancy, en honum fanst að sam-
líf með henni mundi að minsta
kosti ekki þurfa að verða leiðin-
legt. Og þarna mundi honum
líða vel, hann fengi tækifæri
til að stunda veiðar, og hann
mundi geta varið tómstundun-
um með gömlum manni, sem
víða hafði farið og margt reynt.
Og svo eignaðist hann fallega
eign og mikið af peningum.
Hann svaraði hikandi: „En
hún Nancy? Haldið þjer að hún
vilji sætta sig við þessa ráða-
gerð? Hún er orðin nítján ára
og veit hvað hún vill.“
„Það er undir yður komið,“
svaraði Jim stutt. „Þjer eruð
maðurinn, sem hún þarfnast,
og það er yðar að láta hana
skilja það. Hún er uppi — er
eiginlega eftir nokkru að biða?“
Tercel hitti Nancy Sarker
u]>pi á flala þakinu, hún var
í loðkápu og var að stara á
norðurljósin.
„Viljið þjer giftast mjer,
Nancy?“ sagði hann. Jim Sark-
er hefði ekki getað verið um-
svifaminni sjálfur. Þetta var
svo eðlilegt. Gagnvart Nancy,
sem stóð þarna í hjarma norð-
urljósanna, hefði það verið
lieimskulegt að nota samskonar
orðatiltæki og notuð eru við
stúlkurnar í Halifax.
Hún sneri sjer rólega að hon-
um. „Hversvegna þá það?“
Hann var ekki viðbúinn þess-
ari spurningu. „Af því .... af
því, að mjer þykir vænt um
yður. Fyrsta skiftið, sem jeg
sá yður, sagði jeg við sjálfan
mig: Þetta er töfrandi, ung
stúlka. Og það eruð þjer. En
jeg er hræddur um, að jeg sje
ónýtur í bónorðsför.“
Hún hló kuldalega. „Fyrsta
sinn sem þjer sáuð mig hjeld-
uð þjer að jeg og Jim værum
smyglarar. Vitið þjer að jeg er
Indíáni í aðra ætt?“ sagði hún
svo upp úr eins manns hljóði.
Honum vai-ð orðfall eitt augna
hlik. Mikið flón var liann að
hafa ekki sjeð þetta fyrr. En
svo sagði hann:
„Jeg veit aðeins að þjer eruð
l'alleg," og það meinti liann.
„Jim hefir altaf vonað 'að jeg
giftist góðum manni. Eruð þjer
það?“
„Já, sagði hann frjálsmann-
lega.
„Og þjer haldið, að Jim geti
gefið yður mig umsvifalaust?“
„Nei, þetta er auðvilað undir
yður sjálfri komið.“
Hún þagði um stund. Svo sagði
hún kuldalega: „Jeg skal hugsa
um þetta. Jeg kann vel við yð-
ur. Þjer komið víst við hjerna
i næstu ferð, er ekki svo. Þá
skuluð þjer fá svarið.“
„Sjáumst þá aftur,“ sagði
hann.
lyrORGUNINN eftir vakti
^ Trale Tercel fyiúr dögun.
Bátur frá togaranum sótti hann
upp að hrímhvitri bryggjunni.
Nancy fór beint upp úr rúm-
inu út á svalirnar og sá hátinn
sigla frá landi. Hún stóð þarna
enn teinrjett og grönn í stutt-
jakka yfir náttkjólnum, þegar
Sarker kom út úr herhrginu
sínu. Hann hafð klætt sig undir
morgunhreyfinguna, í flúnels-
skyrtu og reiðbuxur. Hún sneri
sjer hægt að honum. Sjer til
furðu þóttist hann geta lesið
út úr andlitinu á henni sama
leiðindasvipinn, sem jafnan
hafði verið á konunni hans. En
þetta var ekki nema augnablik,
því að nú sá hún að hann var
með skammbyssu við beltið, og
hún spurði fljótlega: „Hvað
ætlarðu að gera við hana?“
„Veiðiþjófar!“ svaraði hann
stutt.
„Hvar?“
„Inni í firði. Trale heldur að
liann hafi lútt einn þeirra með
haglaskoti í gær.
„Æ-------■“
„Vertu heldur heima i dag,
harnið gott. Við Trale ætlum að
reyna að leita þá uppi. Hann
segir að þeir hafi eintrjánings-
bát. Mig langar að vita hvernig
þeir hafa komist hingað inn,
það lilýtur að vera einliver leið
inn fjörðinn, sem jeg ekki
þekki.“
Hann hvarf en liún gekk inn
i baðklefann af gömlum vana.
En hún nam staðar í dyrunum
og starði á handklæðin og sáp-
una, flísagólfið og fægðu vatns-
kranana, eins og hún liefði al-
drei sjeð þetta fyrr. Svo sneri
hún sjer á hæli, fór inn í her-
hergi sitt og færði sig í veiði-
fötin sín: skyrtu, síðar buxur
og skinnsokka. Hún nældi skyrt-
una saman með nælu í hálsmál-
ið, nælu með slípuðum stein-
um í messingumgerð. Þetta var
djásn sem móðir hennar hafði
ávalt borið, en gaf Nancy að
skilnaði.
í eldhúsinu smurði hún sjer
nokkrar þykar brauðsneiðar og
skar sjer stórt kökustykki með
sykri ofan á. Þetta setti hún
hvorttveggja í rauðan klút.
Eldhússtúlkan sá til hennar en
sagði ekki neitt. Hún hafði lært
það af reynslu, að skifta sjer
aldrei af því, sem Nancy hafði
fyrir stafni. En Tlirale sást
hvergi. Nancy fór niður í háts-
naustið og skaut fram ein-
trjáningnum.
Þessi fjörður var einkennileg-
ur í lögun. Hann teygði sig inn
í landið eins og kreptir fingur
á hendi. Hún stýrði eintrján-
ingnum inn einn „fingurinnn“,
hjelt áfram gegnum helti úr
sefi, þar sem maður skyldi
halda að ómögulegt væri að
komast áfram. Svo breikkaði
vatnið aftur og niyndaðist dá-
lítið stöðuvatn, umkringt af
greni og furu. Þarna var hún
þessi leynihöfn, sem veiðiþjóf-
arnir þektu, — þessir sem Jim
Sarker hafði illan befur á.
Þegar báturinn tók niðri í
fjörusandinum stóð hár mað-
ur, gamall upp úr rjóðri einu
og horfði á hana, gljáandi svört-
um augum.
„Hvar er Mathieu?“ spurði
hún og hoppaði i land.
Hann leit til hliðar. Svarta
hárstiýið á honum var fljettað
í margar, mjóar fljettur og
hundið saman í hnakkanum.
Hún gekk fram hjá honum og
inn í rjóður, sem háir runnar
lokuðu þeim megin, sem vissi
að ströndinni. Blakkur, ungur
maður með svart hár lá þar
endilangur á lyngbeði. Hjá hon-
uni var útbrunnið bál og ein-
trjáningur á hvolfi. En upp við
trje stóðu tveir riflar og nokkrir
pokar fullir af fiðri.
Indiánarnir tveir höfðu dval-
ið þarna nokkrar vikur og skot-
ið villigæsir, vegna fjaðranna,
alveg eins og forfeður þeirra
höfðu gert frá ómuna tið.
Henni fanst eithvað tignar-
legt vera við alt þetta frum-
stæða, eitthvað sem hafði miklu
meiri áhrif á hana en allur
íburðurinn lieima hjá henni.
Indíánarnir höfðu nýlega setið
að fuglasteik, sem þeir liöfðu
steikt á teini yfir bálinu.
Malhieu horfði dálitið illi-
lega á liana, svörtum augunum.
Hann hreyfði sig ekki. Hann
var i skinnsokkum, ljerefts-
hrókum og slitinni skyrtu. Gam-
all flókahattur lá hjá honum.
„Einn af karlmönnunum þín-
um skaut á mig i gær,“ sagði
hann.
„Thrale?“
„Litli feiti karlinn, sem kann
svo vel að læðast.“
„Það er Thrale. Ert þú særð-
ur, Mathieu?“
Hann hristi hausinn ergileg-
ur. „Skotið fór yfir hausinn á
mjer. En fyr má nú vera fúl-
menskan — að skjóta á fólk!
Við erum hræddir. Við þorum
ekki að kveikja hál. Við förum
hjeðan i dag.“
„Við komum ekki aftur,“
sagði gamli maðurinn.
„Ó!“ sagði Nancy hrygg.
Ungi maðurinn starði á hana.
Svo sneri hann sjer og horfði á
klútinn, sem hún hafði haft
með sjer. Á hvei'jum degi í
heila viku, síðan hún hafði
uppgötvað staðinn þeirra, liafði
liún komið til þeirra með eitl-
hvað gott úr eldhúsinu. Hún
lagðist á hnje og leysti upp
klútinn, við hliðina á unga
manninum. Sá gamli horfði
hænaraugum á sætindin, sem
ungi maðurinn hámaði i sig.
Loks braut Mathieu af kökunni
og fleygði bita til þess gamla,
eins og maður kastar beini í
hund. Svo borðaði hann af-
ganginn sjálfur.
Nancy sat á liækjum og horfði
á þá. Hann benti á brúsa, sem
var fullur af köldu uppsprettu-
vatni. Hún rjetti honum hann.
Hann teygaði í sig vatnið. Svo
lagðist hann út af aftur, saddur
og ánægður, en gamli maður-
inn færði sig hikandi nær og
saup nokkra sopa af brúsahum.
Nancy lá á maganum og
studdi höndunum undir hök-
una og horfði í augu Mathieu.
„Hvert ferðu núna, Mathieu?
Þegar þú ferð hjeðan?
Upp með ströndinni inn að
Sandá og á stað, sem heitir New
Alford. Þar eiga Indíánar
heima. Og þar er sögunarmylla.
Jeg vinn stundum í þeirri sög-
unarmyllu.“
„En hvað gerir þú þess á
milli?“
Hann horfði dreymandi aug-
um upp í skýin. „Jeg flakka og
hitti aðra Indíána, sje nýja
staði, veiði fisk, fer á veiðar,
ríð körfur og smíða axarsköft,
sem jeg sel. Alt þetta geri jeg.“
„Og livað gera Indíánastúlk-
urnar?“
„Það sama.“
Þögn. „Átt þú nokkra konu?“
„Nei.“ Hann hætti að liorfa
á skýin og augu þeirra mættust.
Þau horfðust lengi í augu.
Gamli maðurinn tók riffil og
gekk niður að sjónum. Hann
leit við eftir dálitla stund. Son-
ur hans og ókunna stúlkan liöfðu
ekki hreyft sig. Mathieu starði á
hana alveg eins og hann hafði
starað á rauða klútinn með
matnum i.
Gamli maðurinn kom aftur
eftir klukkutíma. Nú sat Math-
ieu upprjettur. Hann var að
hretta upp hattinn sinn og festa
harðið með nælunni liennar
Nancy. Og unga stúlkan lá við
hliðina á lionum.-----