Fálkinn


Fálkinn - 17.09.1943, Page 4

Fálkinn - 17.09.1943, Page 4
4 F Á L K I N N Líf og dauði Fasismans Eftir Wickham Steed f grein þessari rekur fyrverandi ritstjóri „THE TIMES“ sögu Mussolinis í 25 ár og lýsir hinu raunverulega ástandi í Ítalíu undir harðstjórn Mussolinis. "þ ETTA er ákæra á Benito Mussolini og ýmsa aðra, sem áttu þátt í glæpum hans eða liðu þá. Jeg hefi heimild til að skrifa hana, af þvi að jeg sá að hann var glæpamaður í fyrsta og eina skiftið, sem jeg hitti hann, fjóru og háll'u ári áður en Victor konungui' Emanuel skipaði liann forsætis- ráðherra ítala, í» október 1922. Jeg hefi ekki beðið með að vega að honum þangað til hann var dottinn upp fyrir. Jeg hefi veg- ið að honum hvar og livenær sem jeg hefi getað, áður en hann komst til valda og meðan hann sat að völdum. Jeg hefi skoðað hann sem ímynd hins versta, sem koinið getur fram í ítölsku skaplyndi, sem hinn illa anda Ítalíu, sem safnaði að sjer illum öndum, svipuðum sjálf- um sjer, og gat ekki komist lijá að steypa Ítalíu í glötun. Hvernig komst je,g að raun um, að Mussolini var glæpa- maður, munu menn spurja. — Það vildi svona til: í mars 1918 var jeg sendur til ítölsku víg- stöðvanna sem formaður áróð- ursnefndar frá Samherjum. — Tilgangur hennar var sá að af- stýra því, ef unt væri, að Aust- urríkismenn og Þjóðverjar hæfi nýja sókn gegn ítölsku herlín- unni við ána Piave, en þeirri víglínu höfðu ítalir haldið éftir hinar válegu ófarir við Capo- retto i október 1917. Gætu Ital- ir ekki varið þessa viglínu með aðstoð þriggja breskra og 3ja franskra herdeilda, voru horfur á, að óvinirnir gætu þeyst vest- ur yfir Norður-ítalíu og ógnað suðvestur-landamærum Frakk- lands, samtímis því a, Luden- dorf beitti allri orku til þess að rjúfa víglinu Bandamanna í Norðaustur-Frakklandi. Og þá yrðu horfurnar geigvænlegar. Áróður gelur því aðeins kom- ið að gagni að hann tákni á- kveðna stefnu. Fram að óförun- um við Caporetto hafði Ítalía enga stefnu aðra 'en þá, að eign- ast nokkra skika af Austurnki, sem Bretar, Frakkar og Rúss- ar höfðu lofað Þjóðverjum með leynisamningi, er gerður var í London í april 1915, og áttu að vera sigurlaun ítala. Á sumum þessum skikum áttu Jugoslavar heima. Þegar Jugoslavarnir í Austurríki og Ungverjalandi fengu veður af þessu loforði snerust þeir öndverðir gegn Bandamönnum. Varð nauðsyn- legt að hæta úr þessu og lcoma á sáttum milli Itala og Jugo- slava og Ieggja grundvöll að meiri og betri stefnu hvað ítali snerti, svo að þeir fengi vegleg- an sess við friðarborðið og ýms stjórnmálaleg og fjárliagsleg hlunnindi. 1 lok desember 1917 höfðu Victor Emmanuel ítalíukonungur, nokkrir breskir vinir mínir og jeg talað máli sátta og sam- lyndis milli ítala og Jugoslava í London. Snemma ársins 1918 voru þessar uppástungur gerðar ar að grundvelli á fundi i Paris milli allra þeirra íbúa Habs- borgarkeisaradæmisins, sem voru Germanar eða Maygarar, en þráðu frelsi. Þeir ákváðu þar að lialda fund í Róm og lýsa yfir samvinnu og sjálfstæði allra þessara undirokuðu þjóð- ílokka. Jafnframt fjekk jeg samþykki ítalska forsætisráð- herrans, Orlando, til þessarar nýju stefnu. Þannig hafði þessi ráðstefna, innan Bandamanna- þjóðanna grundvöll að hyggja á. Var send nefnd til Ítalíu til þess að vinna málinu fylgi meðal pólskra, tjekkóslóvak- iskra, jugoslaviskra og rúm- enskra hermanna í her Austur- ríkis og Ungverjalands. Að þessu var unnið frá því síðla i mars og allan apríl 1918. Var búist við að Austurríkis- menn og Þjóðverjar hæfi nýja sókn í apríl. Hinn 21. marz hafði Ludendorrf brotist gegn- um víglínur Bandamanna í Norðaustur-Frakklandi. En snemma í apríl var þingið um Habsborgarþegnana lialdið i Róm og tókst ágætlega. Yfir- lýsingar og samþyktir þess fundar veiktu samheldnina í óvinahernum í Ítalíu. Og eng- in ný sókn varð í apríl. Tveggja stunda tal við Mussölini. Þegar jeg fór um Milano und- ir lók aprílmánaðar 1918, livatti Badoglio marskálkur ítalskur vinur minn mig til að liafa lal af Mussölini og vinna hann lil fylgis við hina nýju stefnu. Hann sagði mjer að Mussolini væri byltingarsinn- aður sósíalisti og hefði stofn- að dagblað, Popolo d’Itcilia, með miklum framlögum frá franska utanrikisráðuneytinu, einnig liafði liann fengið styrk frá vopnasmiðjum í Genúa og einhverja slatta frá bresku sendisveitinni í Róm, sem sir Samuel Hoare stýrði þá. Vinur minn sagði að Mussolini væri orðinn allmikill áhrifamður Síðan álti jeg tveggja stunda tal við Mussolini. Hann hafði talsverð áhrif á mig, þó að mjer þætti allmikið óðagot á lionum. Hánn þóttist skilja á svipstundu þýðingu hinnar nýju stefnu og að hún mundi hafa í för með sjer að Ítalía kæmist í öndvegi Balbo flugmarskálkur, hætulegasti keppinautur Mussolini. Hann fórst meö þeim hætti, aö vítisvjel sprakk i flugvjelflians, nálægt Tobriik, sum- ariö 1940. Skyldi hún liafa komiö úr sama staðnum og gjöf Mussolini til kardínálans. 6 meðal þjóða Mið-Evrópu og Suðaustur-Evrópu og gera hana óháða Þýskalandi og Frakk- Jandi. Svo lagði hann til, með illyrmislegu augnaráði, að und- ir eins og Italir hefíju fengið töglin og hagldirnar lijá þess- um undirokuðu þjóðum, gæti hún leikið sjer að þeim, útskúf- að sumum en att sumum hverri á móti annari. Honum leist mjög vel á þá hugmynd. Mjer fanst hún smánarleg. ,Þegar ítalski vinurinn minn spurði mig hvernig mjer hefði litist á Mussolini. sagði jeg: „Jeg kyntist aldrei Charles Peace (sem var helsti morðingi í Englandi á 19. öld), en jeg' geri ráð fyrir, að liann mundi hafa haft lík áhrif á mig og Mussolini. Þessi Mussolini ykk- ar er glæpamaður. Ef til vill stórglæpamaður, en undir öll- um kringumstæðum glæpamað- ur.“ „Jeg met dómgreind yðar mik ils,“ svaraði hann, „en jeg held hvorlci að Mussolini sje glæpa- maður eða eins mikill og bjer haldið.“ Meira var ekki sagt. Dæmi um svik Mussolini. Nákvæmlega fjórum árum síðar, í apríllok 1922 þegar jeg var staddur á alþjóða viðskifta- ráðstefnunni í Genúa skrapp vinur minn þangað frá Milano til þess að liitta mig. Hann minti mig á livað jeg hafði sagt um

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.