Fálkinn - 26.05.1944, Page 11
F Á L K I N N
11
Merkir tönsnlllingar
Frh. af bls. 6.
Patti var átta ára og til 12 ára ald-
urs söng liún að staðaldri í opin-
berum hJjómleikum undir syórn
mágs síns, Maxerices Strakoscli, og
var fádæma mikið með hana látið
á þeim árum í New York og annars-
staðar í Bandarikjunum, þar sem
hún ljet til sín heyra. En Stakosch
þessi var kunnur óperu-i og hljóm-
leikastjóri þar vestra, og síðar, er
Patti var orðin fullþroska söng-
konna, var hann framkvæmdastjóri
hennar (impressario) um iangt
skeið.
Árið 1855 Ijetu foreldrar hennar
hana hætta að syngja opinberlega,
til þess að henni gæfist kostur á
að stunda reglubundið og fullkomið
söngnám. Segir svo ekki af henni
fyrr en hún þreytir frumraun sína
sem fullþroska óperusöngkona í
New York, hinn 24. nóv. 1859, og
syngur þá aðalhlutverkið, eða Lucia
í „Lucia di Lammermoor" Doni-
aettis. Tókst henni það hlutverk og
önnur slík með ágætum.
í Lundúnum söng hún í fyrsta
sinn (á Kgl. ítölsku óperunni) 14.
mai 1861, og þá Amina í „La Sonm-
ambula“ eftir Bellini, og barst liróð-
ur hennar hrátt um alla Evrópu.
Söng hún í Lundúnum allmörg
stóru óperuhlutverka og þótti takast
hvert öðru betur, en síðan söng
hún í ýmsum stórborgum Bretlands
og báru menn hana hvarvetna á
liöndum sjer. Má nú nærri geta, að
leikhússtjórar á meginlandinu yndu
því ekki til lengdar að Bretar nytu
einir unaðar af kvaki þessa dásam-
lega söngfugls, og var hún nú ráð-
in til þess að syngja í Berlín, Brussel
og París. Og allstaðar var sömu
söguna að segja: Patti kom, söng og
sigraði, og var dáð og dýrkuð. En
á Covent Garden söng hún á liverju
ári í 23 ár 1861—1884). Viðfangs-
efnaskrá liennar var ætíð umfangs-
mikil, því að hún liafði á takteinum
aðalsópranhlutverkin í 42 söngleikj-
um og fór með þau oll svo aðdáan-
lega vel, sem verða mátti. Þó er
sagt, að best liafi lienni sjálfri fall-
ið hlutverk Rósinu í „Rakaranum
frá Sevilla“ eftir Rossini, og liafi
hún bæði sungið það og leikið í
algleymingi og alveg óviðjafnanlega
vel. Hafði Rossini verið ákaflega
hrifinn af því, liver skil Patti gerði
þessu hlutverki og endursamdi hann
eða lagfærði ýmsa kafla í hlutverk-
inu sjerstaklega fyrir rödd hennar,
til þess að raddkostir hennar notuð-
ust til hins ýtrasta.
Er nú skemst frá að segja, að lmn
fór hina glæsileguslu sigurför um
alla Norðurálfu og söng i flesum
stórborgum Þýskalands, í Vínarborg,
Pjetursborg o. s. frv. og siðar ferð-
aðist hún um Bandaríkin og Suður-
Ameríku. En þó áð hún væri mikil
óperusöngkona, þá ljet henni ekki
siður að syngja einföld og látlaus
lög. Gat liún þá náð slíkum tökum
á áheyrendum sinum, að þeim fanst
þeir vera komnir í æðri lieima, og
oft höfðu menn tárfellt af hrifningu
undir söng hennar á liljómleikapalli.
Söng hún oft á'liljómleikum í söng-
liöllinni Albert Hall í Lundúnum,
og i síðasta sinn 1. des. 1906, og
ivoru það kveðjuhljóinleikar liennar,
Jón Árnason prentari:
Stjornnspðr.
Alþjóöayfirlit. — Lausleg þýðing.
Ágrip.
Dandaríkin. — Nýtt tungl 22. mai.
Sólin hefir góða afstöðu frá Nep-
tún. Er það sigurvænleg afstaða.
Það lofar einnig góðu í stjórnmála-
legum efnum, lyftir siðferðisvitund
almennings og veitir sigurvonir.
Fjárhagsútlitið er breytilegt, stíg-
ur hátt og getur hrapað djúpt. Besti
hluti júní er timabilið fyrir hinn
20. Þá mun upplausnarástand birt-
ast, sem varir til loka mánaðarins,
því að sumarsólhvörfin eru undir at-
hugaverðum áhrifum, jiví Sól og
Satúrn hafa slæma afstöðu frá Nep-
tún. Bendir þetta á þjóðarörðugleika
í Ameríku í seinni hluta júnímánað-
ar.
Á seinni hluta júnímánaðar hefst
upplausnartímabilið í Norðurálfunni
og mun það sjerstaklega áberandi á
enda var hún þá komin yfir sex-
tugt. Eftir það söng hún stöku
sinnum opinberlega á hljómleikum,
sem haldnir voru til ágóða fyrir
inannúðarfyrirtæki og stofnanir, er
henni voru hjartfólgnar.
Hjer er sagt að framan að hún
hafi sungið í siðasta sinn í Albert
Hall 1. des. 1906. Það er ekki ná-
kvæmt, — Það átti að vera i síðasta
sinn. En hún átti eftir að koma þar
fram enn. Þá var hún orðin 72 ára
gömul, er hún söng þar í allra síð-
asta sinn 20. okt. 1914 eða i byrjun
siðustu heimsstyrjaldar og þá til
ágóða fyrir sjóð Rauða krossins.
Sagt er að jafnvel þá, hafi rödd
hennar verið aðdáanlega fögur og
hressileg. Og þegar hún söng þá að
lokum „Home sweet home“ hrutu
tár af augum æði margra áheyrenda.
Hún var ern vel og við góða heilsu
allt til þess er hún varð hálf-áttræð
þá var eins og ellin bugaði liana
allt i einu og andaðist hún eftir
stutta legu, að heimili sinu i Wales,
hinn 27. sept. 1919.
Listarferill Adelinu Patti var alveg
sjerstæður. Hún söng lengur en
nokkur önnur söngkona. Ef talið er
frá þvi er hún kom fyrst fram
opinberlega í New York 1850, til
þess er hún lijelt kveðjuhljómleika
sína í Lundúnum 1906, þá eru það
56 ár, — og enn söng hún allt fram
á árið 1914. Jjggar hún hætti að
syngja á óperuleiksviðinu, var hún
búin að skila aðalsópranhlutverkum
í 42 óperum eins og áður er sagt,
og er það eflaust hið mesta afrek
af því tagi, sem sögur fara of. Og
hún hafði verið jafnvíg á að syngja
og leika hverslconar lilutverk sem
fyrir kom, hvort heldur var í gaman-
leik eða há-dramatískum, — öll
hlutverkin söng hún af frábærri
snilld, og mörg þannig að aldrei
hefir verið eins dásamlega með þau
farið, — enda var röddin töfrandi
fögur og aðrir hæfileikar söngkon-
unnar frábærlega miklir.
Þess skal svo að endingu getið,
að Patti var þrigift, — en það þykir
nú kvikmyndastjörnum vorra tíma
ekki mikið.
Spáni. Veðurfarið verður ekki hag-
kvæmt, sjerstaklega ekki fyrir land-
búnaðinn, uppskeru og jarðargróða.
Áhrif þessi ná yfir allan heim.
Tokyo. — Bakdyramakk mikið,
undangraftarstarfssemi og undirferli
mun eiga sjer stað og liggja til grund-
vallar fyrir ákvörðunum og gerðum
Japana. Mikil starfsemi mun eiga sjer
stað af þeirra hálfu í öðrum lönd-
um, einkum í nálægð Bandaríkj-
anna. Þetta er óheillamánuður fyrír
Hirohito og ráðandi menn í Japan.
Svo virðist sein Japan setji af stað
liernaðaraðgerðir, sem hepnast í
bili eða að þeir liafa liepni með
sjer á vígvöllum, en slæmar fregnir
munu berast frá loft- og sjóhernað-
araðgerðum, því Satúrn. ér þar í 9.
húsi; slæm pláneta fyrir sjóher Jap-
ana.
Moskóva. — Júpíter er á austur-
himni og bendir á rússneska sigra.
Miklar breytingar eru á ferðinni í
Rússlandi og flytja þetta ókunna
land í fremstu röð heimsviðburð-
anna. Stundsjá Rússa er góð, eink-
um á fyrri liluta júnímánaðar og
fram tií 20.
Lundúnir. — Mikilsverðar fjárhags
áætlanir og breytingar munu á ferð-
inni. Júpíter hefir góð áhrif á stríðs-
baráttukraft Englands. Neptún hefir
slæm áhrif á veðurlag og jarðar-
gróða. Leyniárásir á. England eru
í vændum og margvislegir örðug-
leikar almennings, svo menn verða
að vera vel á verði frá 20. júní til
miðs júlí, þvi að þetta er mjög örð-
ugur tími fyrir hresku þjóðina
Berlín. — Mars er á austurhimni,
Satúrn og Úran í 12. húsi og benda
á ógurlega örðugleika, baráttu og
upplausn á meginlandinu. Borgara-
hernaður breiðist ört út. Almenn-
ingur í Þýskalandi er mjög undir
örðugum áhrifum frá Mars og er í
iniklum víga- og uppreisnarhug. Má
nú búast við að komið sé að snún-
ingsdeplinum í sögunni.
Þegar fer að sjást fyrir lok hern-
aðarástandsins í Norðurálfu, þá er
eðlilegt að við beinum sjónum vorum
i vesturátt og leiða getum að þvi
hvenær Japan muni hrynja. Mars-
öldin hófst 1936 og henni lýkur á
þessu ári (ségir höf. Samkv. fornu
egypsku tímatali hófst liún 1909 og
lýkur 1944. J. Á.), en það hefir sjer-
staka þýðingu fyrir hildarleik Norð-
urálfunnar. En Plútó liefir að því er
virðist aðaláhrif sín á Japan. Þegar
hann fannst var liann í Krabba yfir
Kíria og það leið ekki á löngu áður
en áhrifin komu i Ijós, því á næsi^a
ári rjeðst Japan á Kína.
Áhrif Plútós birtust greinilega þeg-
ar hann komst í samstæðu yið sól
Mússólínis^í júli s. 1. Þá hrökklaðist
ítalski einræðisherrann frá völdum.
Plútó hefir enn þá ekki nálgast
aðra sterka stjörnuspekilega afstöðu
en hann mun komast í sterka af-
stöðu yfir Japan nálægt miðbiki árs-
ins 1945. Ef örlög Mússólinis eru
staðfest af þessari afstöðu, og jeg
lit svo á að svo sje, þú á Japan að
hrynja á næsta ári. Þetta er þegar
fullsjeð, en við verðum að bíða, því
Plútó er mjög hægfara.
ísland. — Samið 14. maí af J. Á.
Opinberara stofnanir, svo sem
sjúkrahús, heilsuhæli, vinnuhæli,
betrunarhús og góðgerðastofnanir
verða á dagskrá og vekja athygli.
Endurbótatillögur og breytingar geta
komið til greina í sambandi við
þessi mál og vakið umræður. Mál
þessi geta og komið til jringsins
kasta eða þeim beitt í þá átt.
1. hús. — Tunglið ræður húsi
þessu og hefir yfir höfuð góðar af-
stöður. Konur og börn eru undir
góðum áhrifum og endurbætur gætu
komið til greina þeim i hag. Breyt-
ingar gætu átt sjer stað í sambandi
við þjóðfjelagsleg viðfangsefni, en
óstöðugleiki nokkur er einnig sýni-
legur.
2. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
Tekjur munu aukast og fjárhagurinn
mun góður, bæði ríkis og banka.
3. hús. — Mars er í húsi þessu
og hefir góðar afstöður, en þó munu
örðugleikar koma í ljós í samgöngu
og flutningum og barátta eiga sjer
stað í sambandi við þær starfs-
greinar. Útgáfustarfsemi gæti orðið
fyrir hnjaski og vandkvæðum nokkr-
um.
4. húSi — Júpíter cr í þessu liúsi.
Góð afstaða fyrir bændur og jarð-
eigendur og búnaðarframkvæmdir.
Jarðhræring gæti komið á eftir þess-
ari afstöðu.
Plútó er í þessu húsi, á sterkasta
staðnum og bendir á örðugleika
nokkra fyrir stjórnina, en áhrif
lmns eru enn þá lítt kunn.
5. hús. — Neptún er í húsi þessu,
örðugleikar geta komið i ljós í
sambandi við leikhús og skemmt-
anastarfsemi. Truflanir geta átt sjer
stað í sambandi við fræðslu- og
kennslumálefni. Fjárhættuspil munu
aukast.
C. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Örðugleikar nokkrir fyrir vinn-
andi stjettir, en baráttuhugur er
sýnilegur. Sjómenn munu nokkuð
láta til sín taka. Hjartasjúkleikar
gætu komið til greina.
7. hús. — Satúrn ræður yfir af-
stöðunni til erlendra ríkja og utan-
ríkismálum. Áframhaldandi truflan-
ir geta átt sjer stað í þeim máluni
og vakið hindranir og tafir.
8. hún. — Áhrif Satúrn gætir hjer
einnig og eru því litil líkindi t>l
þess að þjóðin eignist fje að erfð-
um eða i gjöfum á þessum tíma.
Dánartala, einkum meðal eldra fólks,
mun liækka.
9. Aúis. — Satúrn ræður utan-
iandsviðskiftum og siglinguin og
bendir á ilindranir. Örðugleikar á
sviði trúmála og í lögfræðiiegum
efnum. (
10. lms. —• Satúrn ræður liúsi
þessu. Stjórnin á í örðugleikum og
vandamálum ýmiskonar, sem koma
jafnvel án fyrirvara, þó mun Júpi-
ter draga eitthvað úr í sambandi við
áhrifin frá þinginu.
11. hús. — Þingstörfin munu ganga
sæmilega, því Júpíter ræður húsi
þessu. Fjárhagsástandið gæti vakið
umtal, því Júpíter hefir slæma af-
stöðu til Venusar.
Heildarútlit þessarar stundsjár
bendir á veika afstöðu út á við og
er hún ]ík afstöðu þeirri, sem stund-
r sjá sú sýnir, er jeg lagði yfir augna-
blik það, þegar ísland var hernum-
ið að morgni hinp 10. maí 1940.
Drekklö Egils-öl