Fálkinn


Fálkinn - 04.01.1946, Page 4

Fálkinn - 04.01.1946, Page 4
4 F A L K I N N HJARTFÓLGNASTA SKÁLD NORÐMANNA HENRIK WERGELAND Það er freistandi ad bera saman hjartfólgnustu skáld ís- lendinga og Norðmanna. Dán- ardægur þeirra var með sex vikna millibili, fijrir réttri öld síðan. Báðir dóu þeir ungir. Bóiðir tjóðskáld og ortu á svo fagurri tungu að enn bera þeir af eftirkomendum sínum. Báð- ir einlægir ættjarðarvinir og vakningamenn þjóða sinna. — Á sama hátt og Jónas Hall- grímsson er enn ástsælast allra íslenskra skálda þrátt fyrir Matthías og Einar Benedikts- son, svo er Henrik Wergeland Norðmönnum allra skálda hjart fólgnastur, þrátt fyrir Björn- stjerne Björnsson og JJenrik Ibsen. — Jónas IJallgrímsson var fyrst og fremst Ijóðskáld- ið og náttúruskoðarinn, Werge- land var skáldið og bardaga- maðurinn, málsvari 'hins kúg- aða. En vinir frelsisins voru þeir báðir. Og það er ekki síst frelsisvinurinn Wergeland, sem Norðmenn minnast í dag. — Andi lians vakir yfir vötnunum hjá þeirri þjóð, sem fyrir rúm- um tveimur mánuðum endur- heimti frelsi sitt eftir verstu áiþján, sem hún hefir orðið að þola frá upphafi vega sinna. — Jónas Hallgrimsson dó á 38. aldursárinu. Wergeland lika. Hann átli ufmælisdag 17. júní, með Jóni Sigurðssyni. En báð- ir höfðu þeir á sinni skömmu æfi unnið ótrúlega mikið starf, s'vo að síðari tíma menn eiga bágt með að gera sér grein fyrir, að þeir skuli ekki hafa orðið eldri. HENRIK Arnold Tliaulow WERGELAND fæddist í Kristjánssandi og var elstur barna föður sins Nicolaj, sem var latínuskólakennari þar, en varð síðar prófastur á hin- um sögufræga stað Eiðsvelli. En Thaulownafnið, sem Werge- land var einnig skírður, var ættarnafn móður lians. Föður- ætt skáldsins var hændaætt úr Út-Sogni. Níu ára gamall flutt- ist Wergeland að Eiðsvelli og lifði þar frjálsu lífi, en 11 ára var hann settur í latínuskóla í Osló og var fyrst til húsa hjá háttsettum hershöfðingja á Ak- ershúsi en undi sér þar eigi og íluttist þá i leiguherbergi í götu einni í fátækrahverf- inu; þar bjó hann með öðrum námsmönnum, sem gáfu hon- um „ókeypis kennslu í að drekka sterkt öl í stórslöttum að reykja tóbak“. Þrettán ára skrifaði hann fyrstu blaðagrein sína (í Morgenhladet) og síð- an ýmsar greinar ásamt vini sínum og frænda, Jens Aubert, sem dó kornungur. Wergeland varð stúdent með fyrstu ein- kunn ekki fullra 17 ára gam- all, og lét brátt til sín taka innan stúdentafélagsins; tók mikinn þátt í stælum þar og var óvæginn. Myndaðist þegar einskonar upreisnarflokkur um hann innan félagsins. Hann varð fyrst og fremst talsmaður frelsisins, mannvinur, sem ekki mátti neitt aumt sjá, og brenn- andi ættjarðarvinur en þó fyrst og fremst vinur almúgans, sem þá átti við bág kjör að búa. Oft gaf hann fátækum af mat sínum, og færði sig úr flík til þess að gefa hana fátækum. En þrátt fyrir afskifti sín af ahnennum málum gafst hon- um tími til að rækja guðfræði- nám sitt og til að yrltja. Hann hafði gert frumdrögin að stór- fenglegu verki 19 ára gamall, en síðan lá það í salti í tíu ár; þá lauk hann við það á nokkr- um mánuðum og út kom það á miðju árinu 1830 og nefnd- ist „Sköpunin, maðurinn og Messías“, Ijóðabálkur yfir 700 bls. langur. Nútímafólki mundi liklega þykja margt af þvi, sem þar er sagt, býsna tormelt, enda hleypur skáldið úr einu í annað; liann vill ná til alls, spanna *rá þvi óverðugasta til þess æð ta, frá fornöld um nú- tíð til framtíðar; ekkert vill hann láta sér óviðkomandi. Andagift hans er eins og árflóð í leysingu, er byltir sér í óra- víðuni farvegi. — Á banabeði endurskoðaði Wergeland þetta mikla verk sitt og breytti þvi allmikið. En fáir gáfu því gaum. Einn góður ritdómur birtist um það og fáir lásu það. En sam- tíðarskáldið Welhaven orti um ritið skopkvæði og samdi síðan ádeilu á Wergeland, sem hann gaf út í bókarformi, og þjarmaði þar mjög að Werge- land, sem var örgeðja og hljóp stundum á sig í deilum. Wergeland hafði lokið guð- fræðiprófi 1829 og sumarið 1831 fór liann í kynnisför til Eng- lands og Frakklands og varð fyrir margvíslegum áhrifum í þeirri för. En 27 ára gamall tekur hann viðaukapróf það, sem krafist var til þess að geta orðið prestur, og fer nú að sækja um embælti. Gekk svo í mörg ár að Wergeland sótti um brauð eftir brauð, en yfir- völdunum leist ekki á hann sem sálusorgara. í þeirra aug- um var hann uppreisnarmaður og þótti jafnvel lifa hneyksl- anlegu lifi, svo að Wergeland þóttist sjá fram á að embætt- isprófið mundi aldrei gefa af sér lífsuppeldi, og tók því að lesa læknisfræði, þó að ekki lyki hann því námi, enda fékk liann nú sm’áslarf við bókasafn háskólans. Árið 1839 fékk hann loforð konungs fyrir aðstoðar- prestsembætti í Nannestad „því aumasta i landinu“, en þá bar það við að Wergeland lenti í gleðskap nokkrum, svo að kapelánsembættið „gufaði upp í fallega rautt slcý“. Um þessar mundir trúlofaðist liann fá- tælcri alþýðustúlku, sem' liét Amalie Sofie Bekkevold, og var nú nauðugur einn kostur að fá eitthvert lífsuppeldi. Konungi var í aðra röndina vel lil Wergelands og liét honum 200 dala ársstyrk af eigin sjóði og þægilegu embætli undir eins og laust yrði. Wergeland tók við styrknum með þökkum en bað um að mega endurgjalda hann með því að gefa út alþýðu- fræðslurit; komu af því sex árg. (For Arbeidsklassen, 1839-45). En árið 1840 kom konungur því til leiðar, að Wergeland var skipáður þjóðskjalavörður, og þótti hag hans nú borgið. Þó að hið mikla skáldrit sem áður var nefnt kæmi út 1830 telur Wergeland sjálfur, að sem skáld liafi liann ekki verið far- inn „að skilja greinarmun góðs og ills“ fyrr en fjórum árum siðar. Þá hefir hann öðlast liið tæra, ljóðræna yfirbragð, sem gert hefir hann að óviðjafnan- legu góðskáldi norsku þjóðar- innar. Efnisvalið er viðfemt; liann yrkir barnaljóð og sjó- mannavísur og heimspekileg ljóð, en allt þrungið af tilfinn- ingu — það er hjartsláttur í hörpuslætti lians. En umfram allt er liann náttúruskáld, eins og Jónas, hann hjalar við blóm og um blómin, fyrst og fremst, en líka steinana, dýrin og skýin á festingunni, fiðrildin á blóm- unum og maðkinn í moldinni. „Ekkert er mér liulið,“ segir hann, „ég sé gletturnar í and- liti bárunnar, les skrift lauf- blaðanna, heyri æðar grassins slá og hjarta rósanna titra.“ Ýms bestu kvæði hans eru frá árunum kringum 1840; þá var hann á liátindi snilldar sinnar, rúmlega þrítugur. Og þá stendur um liann meira veður en nokkurn annan mann

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.