Fálkinn - 04.01.1946, Síða 11
FÁLKINN
11
- LITLA SAGAN -
K. G.:
Hái múrinn.
Það var ekki fyrr en í vikunni
sem leið, er Dana Means dó, áttatíu
Qg eins árs að aldri, að ég heyrði
æfisögu hans. Den Dyer, sem hafði
verið í þjónustu hans í þrjátíu ár,
sagSi mér frá þessu.
— Móðir lians dó, þegar hann
fæddist, og tveimur árum síðar dó
faðir hans. Chris Andrews og kon-
an lians tóku drenginn sér í son-
ar stað. Þau voru bændafólk. Þegar
Dana hafði gengið í skólann í þrjú
ár fannst þeim liann hafa lært eins
mikið og liann þyrfti með, svo að
hann var látinn liætta skólagöngu
en byrjaði að vinna á heimilinu í
staðinn.
Hann bjó hjá þeim i tíu ár enn.
Svo strauk hann. Drengurinn var
oroinn gramur, skiljið þér. Hann
hafði aldrei fengið að leika sér við
önnur börn eða taka þátt í neinu,
sem börn liafa venjulega gaman af.
Og börnin, scm óttu föður og móður
og fengu að ganga í skólann, átlu
falleg föt, fengu að hafa heimboð
og þurftu ekki að vinna nema stund-
um, þau litu niður á hann og gerðu
gys að honum.
Eftir að hann strauk varð eng-
inn jjarna var við liann i ein þrjátíu
til fjörutíu ór. Þá kom hann aftur
í lúxusbíl ásamt bílstjóra og þjóni.
Fólk stóð og gapti af undrun, og
þegar það frétti, að þessi ríki gestur
væri sami maðurinn og drengurinn,
sem hafði alist upp lijá Chris And-
rews, gaf það sig fram og ætlaði
að heilsa honum með handabandi
og bjóða hann velkominn í plássið
'aftur.
En Dana veigraði sér við að
heilsa því með liandabandi. Hann
hafði ekki gleymt óréttinum, sem
hann liafði orðið að þola. Daginn,
sem hann strauk hafði liann aðeins
hafl eitt takmark: að verða ríkur.
Honum hafði skilist svo sem þelta
væri eina leiðin til þess að ávinna
sér virðingu og aðdáun. Og svo
hafði drengurinn strengt þess lieit
að koma aftur á bernskustöðvarnar
og særa alla þá, sem liöfðu átt sinn
þátt i að eitra uppvaxtarár hans.
Hann keypti gömlu jörðina lians
Andrews (bæði Chris og konan lians
voru dáin fyrir löngu). Og það
fyrsta sem liann gerði þar var að
Játa setja afar Iiáa steingirðingu
kringum landareignina. Það tók sex
mánuði að fá það gert. Samtímis
voru aðrir settir til að breyta
húsinu og byggja það upp. Þarna
reis upp stóreflis höll, en í kring
voru trjágarðar og sundlaugar, þar
sem gamli bærinn hafði staðið.
Þessi háa steingirðing lokaði Dana
inni frá öllum skiftum við umheim-
inn. Hann bjó þarna aleinn, harður,
bitur og hefnigjarn. Fyrst botnaði
fóllc ekkert í honum. Hélt að liann
ætlaði að lána út peninga af ein-
tómum mannkærleika, og svo setti
það jarðirnar sinar i veð. En þegar
hann svo fór að girða jarðirnar og
reka fólkið burt af þeim, sá fólkið
liver hin sanni tilgangur hans var.
Þetta var aðferð Dana lil þess að
hefna sín á þcim, sem einu sinni
höfðu gantast að honum. Og innan
skamms átti liann meiri jarðeignir
en nokkur annar maður í öllu fylk-
inu.
En svo sannfærðist hann um það
smátt og smátt, að hann liafði feil-
reiknað sig. Fólkið afrækti hann.
Hann hélt að það mundi grátbæna
hann og ganga á eftir honum. En
það geröi það eklci.
Hann sat einn þarna fyrir innan
múrinn með biturt glott á vörun-
um. Árin liðu. Enginn lónaði pen-
inga lijá honum. og enginn vildi
framar selja honum land. Fólk hætti
smámsaman að muna eftir að liann
væri til. En hann leigði sér leyni-
snata, sem keyptu meira land, og
hann kynokaði sér að selja það,
þegar ríkið þurfti á því að halda
undir byggingar.
Ákvörðun hans um að lifa óháður
öðrum en láta aðrar verða háða
sér varð æ óbifanlegri lijá honum
með hverju ári sem leið. En fyrst
nú, þegar hann er dauður er fólk
farið að verða vart þess að liann
hafi vcrið til. Hversvegna? Vegna
þess að það vildi ná i peningana
hans og löndin. Og það fær það líka.
Mikið fcr í óborgaða skatta og reikn-
inga. Auðitað fer þetta í mál, en
fólkið vinnur. Sveitin nýtur auðæf-
anna, hvort sem Dana vill eða ekki.
— Den lauk sögu sinni. Hann
stóð enn og starði á steingarðinn
þegar ég sldldi við hann. Skömmu
síðar varð mér lilið á smágrein í
blaði. Þar var ágrip af arfleiðslu-
skrá Dana. Samkvæmt henni áttu
allar eignir lians að renna til bæjar-
ins og skyldi varið á þann liátt sem
ráðsmönnum hans þætti best henta.
o
GLEÐILEGT NÝÁR!
þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
h.f. Ölgeröin Egill 5kallagn'mssDn
GLEÐILEGT N Ý Á R !
þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Sjóklæðagerð íslands h.f.
GLEÐILEGT NÝÁR !
þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Verslunin Fálkinn
Óskum öllum viðskiftavinum vorum
GLEÐILEGS NÝÁRS
með þökk fyrir það liðna.
Vinnufatagerð Islands
Óskum öllum viðskiftavinum vorum
GLEÐILEGS NÝÁRS
UErsIun Ingibjargar Jnhnsnn
Óskum öllum viðskiftavinum vorum
GLEÐILEGS NÝÁRS
nteð þökk fyrir það liðna.
Nýja Efnalaugin