Fálkinn - 15.02.1946, Blaðsíða 1
SKÍÐASKÁLl VALS
Á íþóttasviðinu hafa knattspyrnumenn áhuga fyrir fleiru en því að setja boltann í mark. í hópi þeirra eru t. d. margir
hinir duglegustu skíðamenn landsins og félög þeirra tefla mönnum sínum árlega fram til keppni i skíðamótum víðsveg-
ar um landið. Flest skiðafélögin eiga líka reisulega skíðaskála á Hellisheiði og hafa þeir allir verið byggðir í sjálfboða-
vinnu. í síðustu viku birti Fálkinn forsíðumynd af skíðaskála Víkings en hér að ofan er mynd af skála annars knatt-
spyrnufélags, Vals, og má vart á milli sjá, hvor fullkomnari er. Valsskálinn stendur í námunda við Víkingsskálann nær Kol-
viðarhóli. Ljósm.: Guðm. Hannesson,