Fálkinn - 15.02.1946, Blaðsíða 3
F Á L K i N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
AHar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/
SKRADDARAÞANKAR
Það er sagt að þrumuveður hreinsi
loftið. Væri það rétt þá ætti að
liafa lireinsast til í loftinu núna,
eftir þrumudyn nærri sex ára. Og
sé það rétt, sem gamla fóllcið sagði,
að blóðtökur lireinsuðu „óhreina
vessa“ úr líkamanum, þá ætti lítið
af þeim vessum að vera i mannkyn-
inu núna, eftir stærstu sláturtíð ver-
ahlar.
í marga mánuði hafa dómstólar
ófriðarþjóðanna verið að dæma mál
föðuríandssvikaranna og stríðs-
glæpamanna Þjóðverja, æðri og
lægri, bæði liöfuðpauranna sem réðu
styrjöldinni og kúguninni, og til-
kvaddra starfsmanna og sjálfboða-
liða, sem hafa haft það sér til dægra-
styttingar í nokkur ár að liýða
menn og brjóta i þeim bein og tenn-
ur, drepa þá með gasi, hengingu og
skotum, eða svelta þá i hel.
Þjóðirnar, sem lentu í hernámi
eru í tukthusvandræðum. Það hefir
verið sagt, að ef Danir ættu að
hegna öllum þcim þegnum sínum,
sem sekir eru um óþjóðlegt fram-
ferði, jjyrftu þeir að reisa tugthús
fyrir um 25 miljónir krópa. Og það
er vitanlegt, að Danir hafa tekið
vægar á liðsmönnum Þjóðverja en
t. d. Norðmenn, enda var meira
til af tukthúsum eftir Þjóðverja í
Noregi en í Danmörku. Og nú eru
Norðmenn að talca fé af smásyndur-
um, samkvæmt þeirri reglu, að all-
ir, sem hafa fénast á viðskiftum
við Þjóðverja missi jiann ágóða og
fái sekt að auki, eins og efni þola.
En loftið hreinsast ekki við þetta.
Það er molluloft yfir veröldinni
enn, alveg eins og nýtt þrumuveð-
ur sé í aðsigi. Enn er hætt við
að reyndin verði sú, að styrjöldin
verði ekki til að hreinsa til í ver-
öldinni fremur en síðast.
Og það hreinsast ekki lil fyrr
en einhver atómsprengja kemur
fram á andlega sviðinu. Ný vakning
og viðurkenning á því, að þrátt fyr-
ir allar tækniframfarir er mannkyn-
ið á hættubraut, sem getur orðið
heimsmenningunni til glötunar.
Eftir fyrri lieimsstyrjöld voru
menn að spá því, að hún yrði sú
síðasta. Nú spáir enginn sliku. —
Menn trúa ekki á Fróðafrið né
Þúsundáraríki.
Leikfélag Templara:
Tengdamamma
Ef einhver skyldi vera svo fá-
fróður að halda, að Templarar hafi
ekkert annað á stefnuskrá sinni en
baráttu gegn brennivini, þá ætti sá
hinn sami að reyna að kynna sér
starfsemi þeirra og félagslíf örlítið
nánar. Það yrði ef til vill til þess
að liann gengi i regluna.
Að vísu fær enginn upptöku í
Góðtemplararegluna án þess fyrst
að sverja sig hatraman óvin áfengis
og einlægan fylgjanda þess, að því
sé útrýmt fyrir fullt og allt, en
um leið og hann gerir það, fær liann
óhindraðan aðgang að fjörugu fé-
lagslífi og skemmtunum, sem eru í
flestu tilliti mjög frábrugðnar og
ólíkt göfugri en þær skemmtanir,
er nú tiðkast mest hér um slóðir.
í hverri stúku eru fundir haldn-
ir reglulega með mjög stuttu milli-
bili. Vissár nefndir hafa það hlutverk
að gangast fyrir kaffikvöldum, mál-
fundiim og dansleikjum, en slíka
dansleiki sækja menn auðvitað fyrst
og fremst í þvi sjálfsagða augna-
miði a'ð dansa, en ekki til að drekka
sig fulla, eins og oft vill brenna
við á almennum dansleikjum hér
í bæ. 1 mörgum stúkum starfa auk
þess ýmsir skemmtiklúbbar svo sem
spjlaklúbbar, taflklúbbar og sauma-
klúbbar, þvi allir eru meðlimir regl-
unnar samtaka um það, að verja
tómstundum sínum þannig, að þeim
sé bæði gagn og gaman að. í fám
orðum sagt, er félagslíf TemiDlara
til fyrirmyndar og vel þess vert
að þvi sé gaumur gefinn.
Enn er samt ótalinn einn merk-
asti þátturinn í starfsemi og skemm-
lanalífi Templara, en ])að er leik-
félag þeirra. Árlega liefir það sýn-
ingar á einhverjum góðum sjón-
leik og tekst það venjulega mjög
vel, enda hefir Leikfélag Templara
inörgum ágætum leikurum á að
skipa.
Á þessu ári hefir leikfélag Templ-
ara valið sér til meðferðar sjónleik
í 5 þáttum, sem heitir Tengda-
Framhald á bls. lk.
Kristjana ISenediktsdóltir sem Þura
gamla, vinnukona á Heiði.
Soffía Guðlaugsdóttir sem Björg á Heiði og Guðjón Einarsson
og Finnborg Örnólfsdóttir sem hjónin Ari og Ásta.
Hallgrímur Tulinius, stórkaupmað- Ingimar Jónsson, skólastjóri, verð- Sveinbjörn Jónsson, byggingameist-
ur, varð 50 ára H. j). m. ur 55 ára í dag (15. febr.). ari, varð 50 ára 11. þ. m.