Fálkinn - 03.05.1946, Síða 1
16 síður.
UTANFARARKOR
SAMBANDS ISLENZKRA KARLAKÓRA
IJrvalskór, skipaður mönnum úr karlakórnum Geysi á Akureyri og karlakórnum Fóstbræðrum, mun leggja af stað i söng-
för til Norðurlanda þann 6. þ. m. Fyrst er ferðinni heitið til Kaupmannahafnar, en þar verður konsert haldinn í samkomu-
sal Oddfellowhallarinnar þann íh. maí. Frá Höfn verður svo haldið til Svíþjóðar og sungið i Stokkhólmi þann 17., þaðan
svo áfram til Finnlands og sungið í Ábo þann 22., en seinasti áfanginn verður Osló, þar sem konsert verður að líkindum
haldinn þann 27. maí. — Rögnvaldur Sigurjónsson, píanóleikari, verður með í förinni og mun hann leika einleik á konsertun-
um auk þess sem hann annast undirleik. — Söngstjórar verða þeir Jón Halldórsson og Ingimundur Árnason. Fararstjórn
skipa: Jóhann Sæmundsson, yfirlæknir; Ágúst Bjarnason, séra Garðar Þorsteinsson og Sigurður Waage. Karlakórasambönd-
in í þeim löndum, sem heimsótt verða, munu taka á móti kórnum óg annast undirbúning konsertanna. Þarf ekki að efasl
um að þessi söngför verður kórnum og öllum íslendingum til hins mesta sóma; jafnframt því sem hún mun treysta þau
bönd vináttu og einlægs bræðraþels, er ávalt hljóta að einkenna sambúð frændþjóðanna á Norðurlöndum. — Reykvikingum
gefst tækifæri til að kynnast þessum kór á konsertum, sem hann heldur í Gamla Bíó þessa dagana. — Myndin er af öll-
um þátttakendum fararirnar og er hún tekin af Vigfúsi Sigurgeirssyni.