Fálkinn - 31.05.1946, Blaðsíða 7
FÁLKINN
/
UTANRÍKISRÁÐHERRAFUNDÚRIN N í PARÍS. — Rúðstefna stórveldanna fjögurva í Paris útti að búa i
haginn fyrir friðarrúðstefnuna ú komandi sumri. Þrátt fyrir nokkurt ósamkomulag hefir þó allmikill ú-
rangur náðst að settu marki. Hér ú myndinni sjáum við utanrikisráðherrana Molotov og tiyrnes ásaml
fylgdarliði þeirra við komuna til Parísar.
Hinir „fjórir stóru“ utanríkisráðherrar sjást hér i heimboði hjá forseta Frakklands, Gouin, i forsetahöllinni
Þeir standa í þessari röð frá vinstri: tievin, Gouin, tiyrnes, Molotov og Bidault.
„GRAND NATIONAL“ — frægustu
veðreiðar heimsins voru háðar í
apríl, i fyrsta skifti síðan 19M, því
að siðan hafa þær legið niðri. Á
myndinni sést ein af hinum mörgu
torfærum brautarinnar, ,,Beechers
tirook“, sem mörgum hejir orðið
hált á.
VIÐ GRÖF FÉLAGANS. Enskur og
indverskur her barðist við bæinn
líohima. Þarna var innrásartilraun
Japana i Indland stöðvuð. tiardag-
inn var blóðugur, og margir menn
féllu af hvornmtveggju. Hér sjást
tveir breskir hermenn, sem börð-
ust þarna við gröf fallins félaga í
hermannakirkjugarinum við borgina.
MAUNO PEKKALA heitir núverandi
forsætisráðherra Finnlands, er tók
við embætti Paasikivis þegar hann
varð forseti. Eitt af fyrstu verkum
hans var að fara til Moskva til þess
að semja við Rússa um ýmsar til-
slakanir á vopnahléssamningnum
frá 1944, og er talið að honum hafi
orðið nokkuð ágengt.
Hér skulu þeir dæmdir. — Nú dregur að skuldadögunum fyrir japön ku striðsglæpamennina. Hinir efslu
á „svarta listanum“ hljóta dóm sinn i þessum sal, hinum fornu heimkynnum japanska hermálaráðuneyt-
isins i Tokío. Virðist hér ekki ósvipað um að litast og i réttarsalm m í Niirnberg.