Fálkinn - 26.07.1946, Page 7
FÁLKINN
7
í fæðuleit. — Hungursneyðin i Uny-
verjalandi er meiri en í flestum öðr-
um löndum Evrópu. Og þó að eitt-
hvað sé til í búðam borganna öðru
Iworu, þá hefir fjöldinn allur ekki
peninga til að kaupa fyrir, en fólkið
greiðir þá oftast með fötum, sem
það d, og vöruskiftin hafa þannig
að miklu leyti útrýmt peningavið-
skiftunum. Myndin sýnir ungversk-
ar húsmæður sitjandi utan á eim-
reið á leið upp í sveit. Þar ætla þær
að leita sér að einhverju ætilegu,
því að í horginni eru þeim allar
l>jurgir bannaðar.
Láðs- og lagarbílar. — Hér sjáum
við árvaka Lundúnabúa á reynslu-
hátíð þessara nýju bíla. Þeir geta
jafnt farið á sjó og landi og reynd-
ust hið mesta þarfaþing á stríðs-
tímunum.
Biskup vígir brú. — / styrjöldinm
rofnaði járnbrautarsamband milli
meginlands Grikklands og Pelops-
skaga. Þjóðverjar sprengdu brúna,
sem liggur yfir Korinþu-skurðinn,
en skurður sá er grafinn gegnum
mjótt eiði, er tengir Pelosskagann
við meginlandið. Nú hefir verið
byggð brú þarna til bráðabirgða,
en hún er þó aðeins fyrir járnbraut-
ir. Biskupinn af Korinþuborg vígði
brúna í viðurvist margra gtrískria
stórmenna og fulltrúa frá UNRRA.
Myndin er af biskupnum, er hann
gengur yfir brúna og biður henni
blessunar.