Fálkinn - 26.07.1946, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
Einar Nörby kgl. óperusöngvari
Einn hinn besti óperusöngvari
I)ana gistir land okkar þessa dag-
ana með konu sinni. Þetta eru
hjónin Einar og Guldberg Nörby.
Hann er barítónsöngvari, en liún
er píanóleikari og leikur undir söng-
inn hjá manni sinum. Þau liafa
haldið hljómleika í Reykjavík á
vegum tónlistarfélagsins við hinar
bestu viðtökur. Þeir íslendingar,
sem séð liafa herra Nörby á óperu-
sviðinu í Kaupmannahöfn og Stokk-
hólmi, segja að hann sé ekki aðeins
góður söngmaður, lieldur einnig
ágætur leikari, en þetta hvorttveggja
liefir gert hann að ágætum óperu-
söngvara. Einar Nörby hefir hljóm-
mikla barítónrödd, sem er lireim-
fögur og karlmannlég. Hann liefir
rika túlkandi gáfu, sem sérstaklega
nýtur sín vel í óperulögum. Hann
er reyndur og þaulþjálfaður söng-
maður, sem kann að syngja eftir
listarinnar reglum, og liafa menn
hér haft yndi-af að hlýða á söng
hans, því að hann syngur af viti og
kun náttu.
Einar Nörby er konunglegur
„kammersöngvari“, en þessari nafn-
bót geta aðeins bestu söngvarar
skartað, því að aðrir verða ekki
heiðraðir með lienni. Hinn mjög
svo dáði danski söngvari á sínum
tima Wilhelm Herold fékk þessa
nafnbót, svo og hinir kunnu söngvar-
ar Helge Nissen og Cornelius. Af
dönskum söngvurum, sein nú eru
uppi, mun einna mest orð fara af
Melchior, sem um langan tíma hefir
verið við Metropoiitanópeauna í
New York,
Frú Guðmiuida Línberg, Skólavörðu-
hoJt 13, verður 50 ára 20. júlí.
Lúðvig C. Magnússon skrifstofustjóri,
varð fimtugiir 23. jútí síðastliðinn.
Clemens Marot var hirðþjónn
Franz keisara I. en líka hagmæltur
vel og fyndinn. Á velmaktardögum
sínum fór hann einu sinni til Róm
með kardínálanum af Lothringen og
gengu jieir fyrir páfa. Kardinálinn
gekk á undan inn að páfatróninum,
beygði sig og kyssti á fót páfa.
Þegar Marot sá þetta tók hann við-
bragð og snaraðist út.
--- Mikil hörmúng! sagði kardí-
nálinn þegar hann hitti Marot, litlu
síðar, — hvað hafið þér gert? Vit-
ið þér ekki að það er hneykslan-
legt brot á öllu velsæmi að fara af
páfafundi eins og þér gerðuð?
Hvað gat ég gert annað? sagði
Marot. — Sá ég ekki með eigin aug-
um, að jafn tiginn maður og
þér kysstuð á ristina á páfanum.
Hvar haldið þér að jafn lítilmótlegur
maður og ég hefði ótt að kyssa
hann?
$ $ $ $ $
Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar
Skúlatúni 6. Sími 5753.
FRAMKVÆMIR:
Hverskonar viðgerðir á Dieselmótorum
og Benzínmótorum.
SMÍÐUM:
Bobbinga úr járni fyrir mótorbáta.
Elnnft-emur gróðurhús úr járni, mjög
hentug við samsetningu.
Rafkatla til upphitunar á íbúðarhúsum.
Rafgufukatla.
Síldarflökunarvélar o. m. fl.
Vjelaverkstæði
Sig. Sveinbjörnssonar
Sími 5753.
Danska landsliðið.
Framh. af bls. 3.
var haldið að Geysi og |>ar sesl
að snæðingi í hinum nýby ggða og
rúmgóða veitingasal staðarins, þar
árnaði borgarritari, Tómas Jónsson,
gestunum allra heilla í nafni bæjar-
stjórnar Reykjavikur, og lét i Ijós
l)á von að þeir eignuðust góðar
endurminningar um för þessa. Er
máltíðinni var lokið var gengið upp
að Geysi og borin í hann sápa, og
lét hann ekki lengi standa á sér,
gaus hann vel, og þótti gestunum
gosið býsna mikið, og létu hrifningu
sína óspart í Ijósi. Heim var ekið
um Ljósafoss og mannvirkin þar
skoðuð, síðan var ekið til Þing-
valla, en þar var staðnæmst um
stund og drukkið kaffi. í báðum
þessum ferðum, til Þingvalla og
Gullfoss og Geysis var veður sér-
slaklega fagurt, glampandi sól, logn
og hiti. Annars voru Danirnir mjög
heppnir með veðrið meðan þeir
dvöldu hér.
Auk þessara ferða var farið bæði
um bæinn og nágrenni hans. Að
Álafossi þar sem Sigurjón Péturs-
son, einn kunnasti íþróttafrömuður
þjóðarinnar tók á móti flokknum
af mikilli rausn, og að Reykjum,
til Hafnarfjarðar og víða. —
Sunnudaginn 21. júlí fór svo síð-
asti kappleikurinn fram, kdpptu
Danir við úrval Reykjavíkurfélag-
anna og lauk þeiin leik, sem var
fjörugur og vel leikinn, einkum af
hálfu íslendinga, með fullum sigri
Reykvíkinga 4:1. Létu Danir í ljós
nokkra undrun yfir úrslitunum, sem
virtust koma þeim mjög á óvart,
en þó ef til vill enn meir, hversu
Reykjavíkurúrvalið var miklu betra
en lið það, sem þeir áltu i höggi
við á miHilandaleiknum.
Að þessum leik loknuin var s.vo
dansleikur haldinn fyrir þá í Sjálf-
stæðisliúsinu og loks kveðjusamsæti
í Stúdentagarðinum á mánudags-
kvöld, en 'þriðjudagsmor^un, 23.
júlí héldu þeir svo lieim á leið
flugleiðis til Stokkhólms, eins og
fyrr segir.
Ljósmgndirnar tók Fálkinn.