Fálkinn - 23.08.1946, Blaðsíða 15
»>»»»»»t»»»-»ft»»»-frfr»».t-)H.-fr+-»-t-»tttfrfrfrfrt»frt-frfrfrfrfrfrt-frtttfrttfrttttfr><v<v<!><><l>A<>A<><!><><><><>A<>*<><><!><><><:><><>*<!><><><><><><>*<><>^<>
FÁLKINK
15
Bækur sem komið hafa út á þessu ári frá ísafoldarprentsmiðju
1. Heildarútgáfa af ljóðum Einars Benediktssonar.
Einar Benediktsson er höfuðskáld Íslendinga. Ljóð lians
hafa komið út með nokkru millibili, en aldrei fyrri en nú
verið öll samtímis í bókaverslunum. Þessi heildarútgáfa
er smekklega útgefin, og þarf hver góður bókamaður að
eiga hana, jafnvel þótt liann eigi fyrri útgáfur af ijóðum
Einars.
2. Samtíð og saga III.
Þetta 3. hcfti af Samtíð og sögu er langstærst, og eru í
því merkar greinar eftir Sigurð Guðmundsson skólameist-
ara um Læknakviður Bjarna Thorarensen og Líðan og
ljóðgerð Bjarna Thorarensen á Möðruvöllum, Málfrelsi og
meiðyrði, eftir Gunnar Thoroddsen, íslenska síldin eftir
Árna Friðriksson. Er styrjöld stríð milli liagkerfa eftir
Gylfa Þ. Gislason, Um Hallgrím Pétursson eftir Magnús
Jónsson, ísland í frönskum bókmenntum eftir Alexander
Jóhannesson, Tíminn og eilífðin eftir Guðmund Finnboga-
son og Uppruni íslendinga eftir dr. Jón Steffensen. —
Samtíð og saga er ein af merkustu bókum, sem koma út
á íslandi, fróðlegt og skemmtilegt rit.
3. Héraðssaga Borgarfjarðar III.
Nokkuð er síðan tvö fyrri bindi héraðssögunnar komu út.
Þau hlutu ágæta dóma og seldust upp. Þetta 3. bindi er
að mestu helgað bændaskólanum á Hvanneyri og hefir
Guðmundur Jónsson kennari skrifað það. Er það skemmti-
lega skrifað og mikill fróðleikur saman dreginn um skól-
ann og búnaðarmál héraðsins. í ritinu eru um 50 myndir,
prentaðar á sérstakan myndapappír.
4. Frá ystu nesium.
3. liefti af vestfirskum sögnum eftir Gils Guðmundsson.
Með þessu liefti er lokið 1. bindi sagnanna og fylgir því
nafnaskrá yfir allt bindið.
5. Itauðskinna VI.
Er þar lokið öðru bindi og fylgir nafnaskrá yfir bindið.
I Rauðskinnu eru eins og vant er margar góðar sagnir,
enda er hún vinsæl með afbrigðum.
6. Islenzkir sagnaþættir og þjóðsögur Guðna Jónssonar VI.
Lok annars bindis og nafnaskrá. Af sögnum í þessu hefti
mættii nefna sagnir af Ófeigi ríka á Fjalli auk fjölda margra
skemmtilegra og fróðlcgra sagna. a
7. Á bernskustöðvum,
eftir Guðjón Jónsson frá Litlu-Brekku i Barðastrandarsýslu.
Ólafur Lárusson prófessor ritar formála fyrir þessari
skennntilegu bók og segir þar réttilega, að bókin sé merki-
leg þjóðlífslýsing. Þar er lýst ýmsum þáttum í daglegu
lifi manna, eins og það gerist á uppvaxtarárum höfundar.
í bókinni er fjöldi mynda.
8. Raddir úr hópnum.
Sögur eftir Stefán Jónsson. Stefán er eitt okkar bestu skálda.
Fyrri sögur lians liafa fengið ágæta dóma og selst vel. Og
fyrir barnasögur sínar og ljóð er hann þjóðkunnur.
9. Jörðin grær,
síðasta ljóðabók Jóns Magnússonar. í þessari bók cru öll
ljóð Jóns, sem ekki höfðu komið i fyrri bókum lians, en
þau eru að sjálfsögðu i lieildarútgáfu ljóða lians, sem
kom út á síðasta hausti undir nafninu Bláskógar.
10. Lilli í sumarleyfi,
eftir Þórunni Magnúsdóttur, Þórunn er þjóðkunn skáld-
kona og hafa áður komið frá henni margar bækur, sem
hafa hlo'tið nviklar vinsældir. Tryggvi Magnússon hefir
teiknað nokkrar myndir í bókina.
11. Á valdi hafsins,
eftir Jóhann Kúld. Áður hafa komið út eftir Jóhann 4
bækur, en cru nú löngu uppseldar. Bækur Jóhanns eru
fjörlega ritaðar og lýsa vel lífi alþýðu raanna.
12. Fingrarím,
ljósprentuð útgáfa eftir útgáfu, er prentuð var i Kaup-
mannahöfn árið 1838, en sú útgáfa var óbreytt að efni
frá hinni fyrstu, er gefin var út árið 1739. Þetta er merlc
bók, sem hókamenn og fróðleiksfúsir munu hafa gaman
af að eiga og kynnast.
Bókavcrzlun
13. Lokuð sund.
Ferðasögur nokkurra íslendinga frá Þýskalandi, dr. Matth-
ías Jónasson safnaði og bjó til prentunar. Nokkrir þeirra
íslendinga, sem voru i Þýjskalandi i lok ófriðarins, segja
hér frá ýmsu sem fyrir þá bar. Það er merkileg saga og
lærdómsrík.
14. Frændlönd og heimahagar,
eftir Hallgrím Jónasson. Þeir sem gaman hafa af ferða-
sögum og endurminninguin ættu að lesa bók Hallgríms.
Hann segir skemmtilega frá, hefir víða larið og lýsir svo
vel að unun er að lesa.
15. Gestir á Hamri,
unglingasaga eftir Sigurð Helgason. Skemmtileg og falleg
bók, sem allir unglingar hafa óblandna ánægju af að lesa.
í bókinni eru myndir eftir ungan listamann.
16. Glens og gaman,
eftir Þorlák Einarsson frá Borg á Mýrum. Mikill fjöldi
kýmnisagna, sem gripa má til við ýms tækifæri.
17. Forskriftir eftir Benedikt Gröndal.
’ Ljósprentun eftir forskriftabók Benedikts Gröndals, sein
prentuð var í Kaupmannahöfn 1883. Auk þess sem þetta
er prýðileg kennslubók, mun margur hafa gaman af að
kynnast rithönd Gröndals, en liann var, eins og flestum
er kunnugt, listaskrifari og drátthagur vel.
18. Ljóðheimar,
Ijóðabók eftir Jiinar Markan. Einar Markan er öllum ís-
lendingum kur.nur fyrir söng sinn, en hitt er ekki jafn
kunnugt, að hann fæst við ljóðagerð. Nú er tækifærið til
að kynnast Ijóðagerð hans.
19. Hitt og þetta.
Ljóð, sögur og þulur eftir Guðrúnu Jóliannsdóttur frá
Brautarholti. Þetta er ljómandi falleg bók, bæði að efni
og frágangi. Þulur og ljóð Puðrúnar þekkja allir lands-
menn, en þessa bók prýða margar frábærlegar myndir,
eftir Kjartan Guðjónsson, ungan listamann.
20. Fósturlandsins Freyja.
Guðmundur heitinn Finnbogason, tók þessa bók saman.
Það er margt af þvi fegursta, sein ort hefir verið um ís-
lensku konuna. Skennntileg gjöf handa konum á öllum aldri.
21. Snót,
vinsælasta ljóðabók islenskrar alþýðu, er nú komin út á
ný. 1 þessari útgáfu eru öll ljóð, sem komu í hinum fyrri.
Þar hittir margur fornan kunningja.
22. Saratoga,
skáldsaga eftir Edna Ferber. Ástarsaga, spennandi og mjög
skemmtileg.
23. Dýrin tala,
dýrasögur lianda börnum og unglingum. Árið 1935 þýddu
og frumsömdu þeir kennararnir Eirikur Magnússon, Gunn-
ar M. Magnúss og Jón Sigurðsson dýrasögur úr sænsku.
Upplag bókarinnar var þá aldrei heft allt og liefir bókin
verið ófáanleg um hrið. Nú er liún kominn aftur í bóka-
verslanir. í þessari bók munu vera þær bestu dýramyndir
sem komið hafa i íslenskri kennslubók.
24. Rödd hrópandans,
eftir Douglas Reed. Þessi bók hefir komið út áður. Reed
er lieimsfrægur rithöfundur og þessi bók hans hefir
vakið athygli um allan heim.
25. Iceland and the Icelanders,
eftir Helga P. Briem. Myndirnar eftir Vigfús Sigurgeirsson.
Þeir menn, sem vilja senda vinum sínum og kunningjum
erlendis gjöf og kynna landið okkar um leið, æltu að skoða
þessa fallegu bók. Betri gjöf cr eltki hægt að velja.
Bækur Kristínar Ólafsdóttur læknis: Heilsulræði lnismæðra og
Manneldisfræðin eru nauðsynlegar liandbækur á liverju íslensku
heimili.
Og svo eru það Þjóðliættir Jónasar frá Hrafnagili. Varla getur
það talist bókamaður, sem ekki á Þjóðhættina, meðan þeir eru
fáanlegir í bókaverslunum.
I§afoldar
+<>»»»♦<>»»♦»»»»♦»»❖»»<><»»»»»»-»»»♦»♦♦»♦♦»»♦»»»