Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1947, Page 4

Fálkinn - 31.01.1947, Page 4
4 FÁLKINN \ Steinþór Sigurðsson: Á VATNAJÖKLI med vélsleða og jeppa Bandið Það er elcki greiðfært suður Ódáðahraun, þótt hægt sé að fara það á bíl. Að minnsta kosti var áfrainlialdið elcki mikið á leiðangrinum sem hélt suður hraunið 4. ágúst í sumar. — Árni Stefánsson, aðalbifvéla- virki og vélsleðavirki fararinn- ar ók i fararhroddi i jeppa með vagn í eftirdragi. Á vagninum var vélsleðinn bundinn, og inni í jeppanum töluverður hluti af farangri leiðangursins. Þá kom Einar Sæmundsson í fyrrver- andi stríðsvagni, þ. e. jeppa án yfirbyggingar, allmikið af far- angri og viðgerðarverkstæði leiðangursins, en allar bensín- birgðir í eftirdragi, en alls voru það um 450 lítrar af hensíni sem lagt var upp með frá Álfta- gerði. Þegar þurrt var veður voru eftirsóknarverðustu sætin í jeppanum hjá Einari, því það- an var hægt að njóta útsýnis- ins í allar áttir. Loks kom Egill Kristbjörnsson á fordinum. f hon- um lá allt það dót, sem við vildum hafa sem liandbærast á leiðinni. Þetta var og er mesti ágætis bíll. Ekki einn af þessum nýju bílum, sem reka niður kúluna strax og minnsta ójafna er á veginum, heldur bíll, sem er fær i flestan sjó. Þar sem jepp- arnir fóru á fyrsta lággíri upp sandhrekkurnar og sigu svo hægt, að vart var hægt að sjá þá lireyfast upp á hraunstallana, sem svo tóku við, þar fór ford- inn á fullri ferð og tók loftkast þegar hann lenti á hraunstall- inum, en engar alvarlegar bil- anir urðu. Ef eitthvað smávægi- legt var að þurfti eigandinn hara að bregða sér úr bílnum og hlaupa uppi fremsta bílinn til þess að ná í viðgerðarmann- inn. En sem betur fór kom þetta sjaldan fyrir. Það var ekki fyrr en á heimleiðinni, að annað framhjólið fann upp á því að fara undan bílnum og taka krók á leið sína beint ofan í síkið í Skagafirði, svo eigandinn varð að vaða upp í mitti til þess að ná í það. Verra var það með bílinn hans Einars. Bensíndælan vildi ekki vinna rétt, og allt kom fyrir ekki. Loks var hún af- skrifuð og stór dunkur bundinn ofan á bílinn og benzínið látið renna sjálfkrafa í Karbúrator- inn um gúmmíslöngu. Þetta gekk að vísu ágætlega, nema hvað karbúratorinn vildi stífl- ast. Var eklci haldið tölu á því, hve oft liann var tekinn frá bílnum og hreinsaður. Við hinir, þ. e. Einar Pálsson og ég vorum svona hér og þar, stundum á undan og stundum á eftir, eða þá í eða á einhverjum hílnum, og venjulega mátti sjá rauðu skotthúfuna hans Sigurð- ar Þórarinssonar í grennd við eitthvert rofaharðið, því þar var hann að rýna í öskulögin. En því miður fór rofabörðunum fækk- andi eftir að komið var upp úr' Suðurárbotnum. En sem hetur fer eru greið- færir kaflar á leiðinni og um lcvöldið var komið að jaðri Dyngjujökuls. Norðan við jað- arinn eru þarna rennisléttar leirur og sandar, þar sem vest- ustu kvíslar Jökulsár á Fjöllum breiða úr sér og sveigjast frá jökulröndinni, en jaðarinn sjálf ur er girtur allháum kambi af jölculruðningi, sem ekki er á- rennilegur á að sjá. Næsta jnorgun er allt tekið af jepp- unum, keðjur settar á þá, og þeir útbúnir í eldraunina. Aðrir fara að ryðja brautina yfir jökulurðina. — Þetta verk gengur greiðlega, því að Jóhannes Áskelsson, Árni og Egill hafa verið þarna fyrir hálfum mán- uði og farið upp með jeppa. Það Það þarf ekki að lýsa því, hvernig vegurinn var. Víðast livar var þunnt lag af fínni möl, rennblautri, svip- aðri steinsteypuliræru ofan á glær- um jökulís. Þegar farið var að hreyfa við þessu var eins og allt blotnaði UPP> °g Þar sem maður sökk i með vaðstígvélin vildu þau sitja föst. Jepparnir komust þó upp með að- stoð, og dótið bárum við á eftir. Jökullinn var sléttur að baki jökul- urðarinnar og hallaði honum jafnt uppeftir. Stórar jökulkerlingar voru langa á víð og dreif, en á milii þeirrg ís, sundurskorinn af mjómn rennum. Sumsstaðar eru iækir í skorum þess- um og á einum stað förum við yfir allstóra á. Þeir Árni og Einar Sæm aka bílunum og Egill gengur á undan og velur leiðina ásamt þeim Sigurði. og Einari Páls, en ég geng á eftir og merki leiðina með 11 km. löngum tvinnaþræði, sem Haraldar- búð liafði gefið leiðangnnum. Stundum eru greiðfærir kaílar, þar sem við sitjum á jeppunum, en þess á milli þarf að staðnæmast og leita að leið áfram og stundum iiöggva leið milli ísturnanna. Nú rennur tvinninn á enda. Þar er sett flagg á bambusstöng og siðan gengið eftir áttavita í suður. Þetta flagg fundum við aldrei aftur. Mun það hafa fallið i roki, er síðar kom, en tvinnann fann Egill nokkru neðar Þrem til fjórum krn sunnar var sett annað flagg og um 18 km frá jökul- / Kverkfjöllum Leiðiti upp Dyngjujökul

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.